Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. 37 Margt manna var samankomið á opnun sýningarinnar og sérstaka athygli vakti sýningarskráin því forsíðuna prýðir litmynd af Ingrid Bergman Andys. Forstöðumaður Norræna hússins - Knut Ödegárd - sést hér á tali við Steve Gangsted og Nicholas Ruwe. DV-myndir BG Borgarar í Hong Kong Björn Borg er þessa dagana á ferðalagi um Hong Kong með sambýliskonu og ungan son, Jannike Björling og Robert. Tennishetjan hrífst mjög af öllu austurlensku og illgjarnir pennar segja mataróstina greinilega á vaxtarlag- inu. Varadekk er komið um miðjuna á Birni sem á upphaf sitt að rekja til kínverskrar matargerðarlistar og bíður kappans ekkert annað en strangur megrunarmatseðill þegar hann stígur fæti sínum á sænska grund aftur. Það er enginn dans á rósum að vera ímynd íþróttaáhugamanna og hafa atvinnu af því að auki. Sviðsljós Ólyginn sagði... Sýning á verkum Andys Warhol - og verkamanna hans - er komin til lands- ins og er með aðsetur í Norræna húsinu. Skiptar skoðanir eru á verkum þessa fræga popplistamanns sem einkum er þekktur fyrir andlitsmyndaraðir af frægu fólki - leikarar eru hans eftirlætismyndefni. Monroemyndirnar eru löngu heimsþekktar og á þessari sýningu getur að líta sömu hugmynd með Ingrid Bergman í brennipunktinum. Hingað til lands koma verkin frá Sví- þjóð og eru þrjú þeirra til sölu - eitt seldist reyndar strax á fyrsta klukku- tímanum eftir opnunina. Tony yngir Bandariski leikarinn Tony Curtis verður eldri og eldri með hverju árinu sem líður og jafnframt verða ástmeyjarnar yngri og yngri. Hin átján ára sýningar- stúlka, Debee Ashley, var oröin heldur öldruð fyrir kappann og hann skipti henni út fyrir aðra yngri. Sú lukkulega heitir Shawn Weekly og er sautján ára gömul og nú bíða menn uggandi eftir næsta leik. Síðustu fregnir herma að á foreldrafundum í barnaskólum Hollihæða sé nú rætt um að gera sér- stakar ráðstafanir ef karlinn sést á vappi um skólalóðina. David Bowie kemst á vinsældalistann í Japan og er þar fimmti í röð dáðra Breta. Hann er þar við hlið Pauls McCartney og Bobs Geldorf. Geldorf þótti í öðrum löndum ekki koma til greina vegna þess að hann er irskur að ætterni en Japanirnir kærðu sig kollótta um slík smáatriði. Blaðafregnir um eiturlyfjaneyslu Boys Ge- orge útiloka kappann frá listan- um að dómi erlendra en að því slepptu er talið að sá kvenlegi poppari hefði orðið þeim Paul og David skæður keppinautur. Stefanía prinsessa gerir það gott í hljómplötusöl- unni og virðist söngur hennar ætla að hanga alllengi á topp fimmtíu í Frans. Sama gildir reyndar um nágrannalöndin og aðdáendaklúbbar spretta upp eins og gorkúlur á allar hliðar. Furstinn faðir kvensunnar hafði ” fremur viljað sættast á fata- hönnunina en poppstjörnuí- myndina og er karlinn heldur óhress með þróun mála. Stebba stefnir stíft á stjörnuhimininn í poppbransanum og nú biða menn eftir næsta skrefi frá prins- essunni - og einstaka minnast varlega á þann möguleika að kókaínneyslan verði búin að koma Stefaníu í verulegar ógöngur áður en henni tekst að koma einhverju bitastæðu frá sér á næstunni. Viktoría yi prinsessa var á dögunum viðstödd frum- sýningu á kvikmynd sem gerð var eftir sögu Astrid Lindgren - Börnin í Ólátagarði. Þar hitti sú stutta höfundinn og sagði af því tilefni að henni fyndist myndin mun dauflegri en bækurnar og virtist skáldið vera á sömu skoð- un. Þegar sjónvarpsfréttamenn spurðu hins vegar Viktoríu um álit á kvikmyndinni svaraði hún stuttaralega að hún nennti ekki að brjóta heilann um heimsku- legar spurningar. Silvia drottn- ing stóð að baki dóttur sinnar, varð eins og þrumuský í framan og hefur prinsessan eflaust fengið nokkur vel valin orð í eyra þegar heim í höllina var komið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.