Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 22. JANIJAR 1987. Til sýnis og sölu POTTOFNAR með Danforskrönum, lampar og innihurðir á góðu verði. Komið í Síðumúla 12, (bakhús) milli kl. 14 og 18 virka daga DV. Listskreytingasjóður ríkisins. Listskreytingasjóður ríkisins starfar samkvæmt lögum nr. 34/1982 og er ætlað að stuðla að fegrun opin- berra bygginga með listaverkum. Verksvið sjóðsins tekur til bygginga sem ríkissjóður fjármagnar að nokkru eða öllu leyti. Með listskreytingu er átt við hvers konar fasta og lausa listmuni, svo sem vegg- skreytingar innan húss og utan, höggmyndir, málverk, veggábreiður og hvers konar listræna fegrun. Skal leitast við að dreifa verkefnum milli listgreina þannig að í hverri byggingu séu fleiri en ein tegund listskreyt- inga. Þegar ákveðið hefur verið að reisa mannvirki sem lög- in um Listskreytingasjóð ríkisins taka til ber arkitekt mannvirkisins og byggingarnefnd, sem hlut á að máli, að hafa samband við stjórn Listskreytingasjóðs þannig að byggingin verði frá öndverðu hönnuð með þær listskreytingar í huga sem ráðlegar teljast. Heim- ilt er einnig að verja fé úr sjóðnum til listskreytingar bygginga sem þegar eru fullbyggðar. Umsóknum um framlög úr Listskreytingasjóði skal beint til stjórnar Listskreytingasjóðs ríkisins, mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, á tilskildum eyðublöðum sem þar fást. Æskilegt er að umsóknir vegna framlaga 1987 berist sem fyrst og ekki síðar en 1. ágúst nk. Reykjavík, 19 janúar 1987, Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins. Trésmiðir takið eftir AL 96 sögin er komin á markaðinn Virutex AL 96 er ristisög og bútsög. Sagar í þverskurð 90°, 62x145 mm. Sagar í þverskurð 45°, 62x 95 mm. Ristir 37 mm þykkt. Vegur aðeins 15 kg. Verð með söluskatti 25.774.00 ,pPif# WKrtí WAGNER GUHDO Beta 'WWTf f n Iþróttir • Boris Becker hefur nú tekið upp siði John McEnroe og sendir dómurum og áhorfendum tóninn ef iila gengur. - Simamyndir/Reuter Becker gnísti tönnum - er hann tapaði á ástralska meistaramótinu í tennis Opna ástralska meistaramótið í tennis er nú nánast í hámarki. Viður- eignir í undanúrslitum í einliðaleik kvenna fara fram á morgun en í ein- liðaleik karla á föstudag. Mótið hefur verið afar spennandi og tvísýnt eins og jafnan. Mesta athygli hefur þó vakið slök frammistaða undrabamsins vestur-þýska, Boris Becker. Hann var sleginn út úr keppni af Ástralíumanninum Wally Masur. Becker tók tapinu illa og lét jafnframt dólgslega á meðan á leiknum stóð, gnísti tönnum og gólaði jafrit á dóm- ara sem fjölmarga áhorfendur. Var áhorfendum skemmt en dómurum ekki og sektuðu þeir garpinn fyrir ósið- semi. Mátti hann reiða fram litla 2 þúsund dali (u.þ.b. 80 þús. krónur) vegna fyrirgangsins. Þá er það nýjast af högum Beckers að segja að þjálfari hans, Gunter Bosch, ákvað að hætta í gær. Ástæð- una segir Bosch vera þá að hann sé ósáttur við viðhorf Beckers til leiks- ins. Bosch neitar þó að framferði Beckers á mótinu hafi valdið þessu. Bosch hefur þjálfað Becker í tvö ár en hann var áður unglingalandsliðs- þjálfari Þjóðverja. Masur komið á óvart Wally Masur þessi hefur á hinn veg- i Lést ”í | eftir leik j I Steön Kria^ánssan, DV, Rœtoclc I Markvörður spánska liðsins | ■ Malaga lést á sjúkrahúsi fyrir ■ I nokkrum dögum eftir að hafa lent I I í harkalegu samstuði við mótherja I ’ sinn. Hann fékk fót andstæðings- ■ | ins í höfuðið. í byrjun leit ekki út | fyrir að þetta væri alvarlegs eðlis I I því hann kom fram í sjónvarpsvið- | ■ tali eftir leikinn. . I Hins vegar fór hann fljótlega eft- I I ir viðtalið að finna fyrir höfuð- ■ ■ verkjum og var fluttur á sjúkrahús. ■ I Þar kom í ljós að hann hafði orðið I fyrir alvarlegum meiðslum og varð 1 | að gera á honum skurðaðgerð en | - hún dugði ekki til því hann lést á _ | skurðarborðinu. ■ Hann var nýbúinn að skrifa und- ■ I ir fimm ára samning við Malaga. I I Leikmenn spánskra handknatt- I * leiksliða vottuðu honum virðingu ■ I sína um síðustu jielgi með einnar I J mínútu þögn. Þetta er fjórði J | íþróttamaðurinn sem deyr af slys- | ■ förum á stuttum tíma á Spáni. Um . Ijólin létust þrír leikmenn körfu- I ■ knattleiksliðsinsTenerifeíbílslysi. I ■ -JKS. I I_________________________________I inn staðið sig framar öllum vonum. Hann sigraði Ný-Sjálendinginn Kelfy Evemden í átta manna úrslitum og mun því leika gegn Svíanum Stefan Edberg í undanúrslitunum. Róður Mazur verður þó án efa þungur úr því sem komið er því Edberg þessi sigraði á mótinu í fyrra. I hinni viðureigninni í undanúrslit- unum leika ekki ófrægari kempur en Tékkinn Ivan Lendf og Ástralíumað- urinn Pat Cash. Cash þessi hefur farið á kostum á mótinu til þessa. Hann sigraði Frakkann Yannick Noah í átta manna úrslitum og átti Fransmaður- inn afdrei möguleika. Lendl vann einnig auðveldan sigur á Svíanum Anders Jariyd. „Ég er á sigurbraut," segir Lendl, „og geri því ekki mörg mistök. Ég leik nú betur en ég gerði á Wimbledon í fyrra.“ í einliðaleik kvenna leika tékkneska stúlkan Hanna Mandlikova og vest- ur-þýska stúlkan Claudia Kohde- Kilsch annars vegar en tékkneska stúlkan Martina Navratilova og sænska stúlkan Catarina Lindqvist hins vegar. Leikir þessir verða allir án efa tví- sýnir og erfitt er að spá fyrir um hveijir muni komast í úrslit. Það er þó trú flestra sérfræðinga að Lendl og Navratilova muni bæði leika í úrslit- Fjölmiðlamenn í Englandi beita nú öllum ráðum til að halda frambærileg- um knattspymumönnum heima fyrir. Svæsnar slúðursögur úr ítölsku deildakeppninni standa þeim nú nærri hjarta en þarlend knattspyma kallar á athygli flestra þessa dagana, bæði leikmanna og áhorfenda. Fjölmiðlamenn í Englandi ýja að dólgslátum áhorfenda og siðleysi með- al fjárhaldsmanna þeirra er tengjast knattspymunni með einum eða öðrum hætti. Em þá hin umsvifamiklu sam- tök mafíunnar jafiian nefiid. Þá leggja blaðamenn mikla áherslu á gífurlega hörku leikmanna sem beita, að áliti þeirra, öllum tiltækum ráðum til að hefta hvem þann mann sem kann að fara með knött. Hinn heimskunni knattspymumað- ur, Trevor Francis, sem nú leikur með ítalska liðinu Atalanta, er á öndverð- um meiði við enska blaðamenn. „Ég fyrirlít þau ósannindi um ítalska knattspymu sem fylft hafa síður um í ár, enda fremst tennisleikara hvort í sínum flokki. Menn em hins vegar á öndverðum meiði er andstæðingar þeirra koma til sögunnar. Spádómar em enda ávallt reistir á óburðugum grundvelli. Þótt tennisleikaramir séu án efa missterkir ræður forsjónin miklu um úrslit leikja í þessari heimsfrægu tenniskeppni sem öðrum. -JÖG. • Það dugði lítið fyrir Yannick Noah aö biðja til æðri máttarvalda þegar Pat Cash sigraði hann á opna ástr- alska meistaramótinu. breskra blaða nú nýverið. 1 raun ræð- ur líkamsstyrkurinn mun meiru á Englandi en hér og þar em fleiri spill- andi þættir." Þótt margur telji breska knatt- spymu í háum gæðaflokki em þeir vart færri sem álykta gagnstætt. „Ég mun aldrei leika í Englandi," segir til dæmis danski landsliðsmaður- inn Sören Lerby. „Það væri hreint bijálæði að góna á boltann fljúga yfir höfuð sitt í tíu mánuði á hveiju ári.“ -JÖG. •Trevor Francis. Ekki gott að vera á Ítalíu - segja Englendingar við knattspymumenn sína

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.