Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
Útlönd i>v
Mannkynið bráðum
fimm milljarðar
Á miðju þessu ári munu íbúar
jarðarinnar verða fimm milljarðar
en þeir urðu fjórir milljarðar árið
1974. Er greint frá því í skýrslu sem
Sameinuðu þjóðimdr birtu í gœr.
Fjölgunin kemur ekki á óvart
þar sem mannkynið var þrír millj-
arðar árið 1960. Frá miðjum þriðja
áratugnum liðu aftur á móti þrjá-
tíu og fimm ár meðan mannkyninu
fiölgaði úr tveimur milljörðum í
þrjá og meira en öld leið er því
fiölgaði úr einum milljarði í tvo.
Mest er fiölgunin í Áfríku, Suð-
ur-Ameríku, Suður-Asíu og Aust-
ur-Asíu.
Rústir 19
fomra borga
Fomleifafræðingar hafa fúndið í
Kína rústir nítján fomra borga.
Sumar þeirra eru taldar meir en
tvö þúsund ára gamlar. Fundust
þær í norðausturhéraðinu Heil-
ongjiang.
Er þetta landbúnaðarsvæði sem
áður var fenjaland.
Stærsta borgin virðist hafa
spannað nær einn ferkfiómetra og
fylgir henni mikið vegakerfi, tveir
borgarmúrar og virkisgröf á norð-
urmörkunum. Þama er þegar búið
að grafa upp mikið af leirkerum.
Kafbátar pukrast
við Noregsstrendur
Vamannálaráðuneyti Noregs
bárust á síðasta ári yfir 50 tilkynn-
ingar þar sem borgarar höfðu séð
til kafbáta á siglingu við Noregs-
strendur. Er þama einvörðungu
talað um kafbáta sem ekki var vit-
að um deili á.
Er talið fúllvíst að margir þess-
ara kafbáta hafi verið erlendir og
í algjöru óleyfi innan norskrar
landhelgi. Margsinnis var floti og
flugher kallaður út til leitar inni
á fiörðum þar sem kafbátamir
höfðu sést en aldrei bar leitin ár-
angur.
15 handteknir fyr-
ir mafíutengsl
ítalska lögreglan handtók í gær
fimmtán menn sem sakaðir eru um
hlutdfeild í glæpastarfsemi maf-
íunnar. 400 lögreglumenn tóku
þátt í því að ríða netið um menn-
ina.
Ellefú mannanna vom hand-
teknir í Castellamare del Golfo á
vesturhluta Sikileyjar, tveir í Pal-
ermo og tveir á Norður-Ítalíu. Þeir
em sakaðir um hlutdeild í svikum
mafíunnar varðandi bygginga-
framkvæmdir á vegum þess opin-
bera á Vestur-Sikiley.
Tukthúslimur strauk
frá bhíði sinní
Breskur tukthúslimur, sem af-
plánar tólf ára fangelsi fyrir rán
og skotárásir, braust út í frjálsræð-
ið þegar honum var veitt undan-
þága til þess að yfirgela fangelsið
til þess að láta gifta sig. Brúðina
skildi hann eftir flóandi í tárum.
Sex menn, sem földu andlit sín á
bak við lambhúshettur, réðust á
leigubifreið brúðhjónanna, vopn-
aðir jámstöngum. Bmtu þeir
bílrúðumar og neyddu fangavörð-
inn, sem fylgdi brúðgumanum
handjámaður við hann, til þess að
losa handjámin. Sluppu þeir burt
allir sjö þótt urmull lögregluþjóna
væri við dómshúsið þar sem hin
borgaralega giftingarathöfii átti að
fara fram.
Fangelsisstjómin sætir nú mik-
illi gagnrýni fyrir að hafa hleypt
fanganum út fyrir múrana.
Þrír fórust og tveggja til viðbótar
var saknað eftir að gassprenging tætti
í sundur íbúðarblokk í Númberg í
Bæjaralandi í fyrrinótt.
Björgunarsveitum tókst að grafa
alla aðra íbúa út úr rústunum. Fimm
þurfti að leggja inn á sjúkrahús vegna
meiðsla.
Blokkarbyggingin var fiögurra
hæða og gjöreyðilagðist í sprenging-
unni. Einn íbúanna í húsinu hafði þó
um miðnæturleytið fundið gaslykt og
gert viðvart svo að velflestir vom
komnir út áður en sprengingin varð.
Fjölmiðlarisinn Rupert Murdoch
kom til Sydney í Ástralíu í gær, sann-
færður um að hann gæti staðist
samkeppnina um yfirráð yfir stærsta
fiölmiðlafyrirtæki Ástralíu.
Sagði hann við fréttamenn að hann
hefði þegar komist yfir fiömtíu og tvö
prósent hlutabréfa í fyrirtækinu Her-
ald and Weekly Times og að hann
Tveir bræður, 21 árs og 23 ára gaml-
ir, sem bjuggu á jarðhæð, vom þó
ófundnir í rústunum þegar síðast frétt-
ist.
hefði ekki hug á að láta þau af hendi.
Keppinautur hans, John Fairfax
Ltd., hefur boðið hærra og einnig farið
fram á dómsúrskurð þess efnis að
Murdoch verði ekki leyft að skrásetja
hlutabréfin í sínu nafni þar til gagntil-
boðið hefur verið rætt. Þrátt fyrir það
kvaðst Murdoch ekki ætla að hækka
tilboð sitt í fyrirtækið.
Rupert Murdoch, eigandi stærsta fjölmiðlafyrirtækis í heimi, heldur átram
tilraunum sínum til þess aö stækka við sig og er nú kominn tll Ástralíu í
þeim tilgangi. - Símamynd Reuter
Tólf myrtir í S-Afríku
Lögreglan í Suður-Afríku leitar
nú að byssumönnum er myrtu tólf
manns snemma í gær í þorpinu
Kwamakhuta.
Gerðu þeir skotárás á hús nokkurt
og réðust síðan inn í nærliggjandi
kofa þar sem þeir slátmðu sjö böm-
um sem lágu í fasta svefni. Vom
bömin á aldrinum þriggja til sjö
ára, að sögn vitna.
Fjölmiðlarisinn
gefst ekki upp