Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987. Menning Þrisvar sinnum Ingrid Andy Wartiol í Norræna húsinu Bandaríski fjöllistamaðurinn Andy Warhol er svo mikill augna- karl í samtímanum að varla gerist þörf á að halda sérstakar sýningar á verkum hans. Warhol er stöðugt í slúðurdálkum allra helstu dagblaða og tímarita hins vestræna heims, stendur sjálfur að útbreiddu tímariti, Interview, og grafík hans birtist með reglulegu millibili í bókum, blöðum og tímarit- um. Er þá ekki þörf á að kynnast nán- ar þessum áhrifamikla listamanni og verkum hans, svona eins og öðr- um í hans sporum? Warhol sjálfur telur enga þörf á þvi. Við erum öll á yfirborðinu, seg- ir hann í samtölum, á því plani erum við virk út á við, engin þörf er á að kafa dýpra. Ferill Warhols hefur mestmegnis gengið út á að búa til yfirborðsmynd- ir af því fólki sem virkast er á sínu plani, og er orðið að goðsögnum í nútímanum: kvikmyndastjömum, listamönnum, stjómmálamönnum með sexappíl, og fólki sem er frægt fyrir að vera frægt (Jackie Onassis o.fl.). Þessar myndir Warhols eru ævin- lega litaðar útsetningar á myndum úr dagblöðum og tímaritum, stækk- aðar og fjölfaldaðar af verkamönn- um hans, fyrir spekúlanta í lista- heiminum. Þeir kynna myndimar svo aftur í blöðum og tímaritum í allri sinni litadýrð, opinberar sýn- ingar á þeim eru nánast formsatriði. Ég vil vera vél Warhol forðast í lengstu lög að láta í ljós eigin tilfinningar gagnvart því fólki sem hann vinnur „port- rett“ af. Myndimar eiga að vera algjörlega hlutlausar. „Ég vil vera eins og vél, framleiða eins.og vél,“ segir listamaðurinn á einum stað. Myndimar mega meira að segja vera hrútleiðinlegar. „Mér finnst gaman að því sem er leiðinlegt," er haft eftir Warhol. Til að reyna á þolgæði áhorfenda sinna framleiðir Warhol mörg til- Andy Warhol - Með hatt (Ingrid Bergman). brigði um sömu frummyndina og oftast em öll tilbrigðin sýnd i sam- einingu. Ég gleymi því aldrei er ég sá heilan sal í gamla Nútimalistasafninu í París sneisafullan af Maó-myndum eftir Warhol. Á endanum tókst lista- manninum að gera mig leiðan á Maó. Því verður ekki á móti mælt að á sínum tíma lék Warhol lykilhlutverk í hinni alþjóðlegu popplist sem gekk ekki síst út á að virkja ýmsa yfir- borðs- og auglýsingamennsku neysluþjóðfélagsins og gera úr henni alvöru myndlist við hæfi þessa sama þjóðfélags. Næstum vélrænar ítrekanir hans á einu og sama stefi urðu síðan vatn á myllu naumhyggjustefriunnar (mínímalismans), gott ef ýmsir spek- ingar í listrænni beitingu töl- og stýrifræða (cybemetics) töldu sig ekki eiga Warhol eitthvað að þakka. ívitnunarstefna Og uppgangur póstmódemismans, sem er meðal annars mikil ívitnun- arstefna, kann að hafa í för með sér nýtt og jákvætt endurmat á Warhol. Mynd]ist Aðalsteinn Ingólfsson En á síðustu árum hefur Warhol í raun gert lítið annað en að hvíla á gömlum lárviðum. öðm hvoru tek- ur hann sig þó til og framleiðir fjárfestingakúnst fyrir galleríeigend- m- eins og Börjeson hinn sænska, sjá silkiþrykkin af Ingrid Bergmann, sem nú em til sýnis í anddyri Norr- æna hússins. Myndimar em þrjár, tvær eftir „stills" úr kvikmyndum („Með hatt“ og „Nunnan"), og ein eftir þekktri ljósmynd af Ingrid úr lifanda lífi („Hún sjálf j. Tuttugu og eitt próf- þrykk af sömu myndum er síðan hengt upp þeim til samlætis. Tæknin er óaðfinnanleg, myndim- ar smart, túlkunin hlutlaus. Að minnsta kosti verð ég ekki var við þá „einlægu persónulegu tilfinn- ingu“ sem Per-Olof Börjeson verður tíðrætt um i sýningarskrá. Auðvitað er tilbreyting að því að sjá „frummyndir" eftir Warhol hér á landi. Allt að einu finnst mér ekki í verkahring Norræna hússins að halda sýningar fyrir voldugt einka- gallerí á borð við Börjesons, sem þar að auki hefur legið undir ámæli frá samtökum sænskra grafíklista- manna fyrir vafasama viðskipta- hætti. -ai Heimildir um hugarfarssögu Rætur Sýnisbók islenskra bókmennta (1550-1920) Mál og menning 1986, 440 bls. Þetta „dæmasafn úr íslenskum bók- menntum" mun einkum vera ætlað til bókmenntakennslu í framhaldsskól- um, en einnig almenningi, eins og vant er með slík safririt. Það er valið af fjórum íslenskukennurum við fram- haldsskóla, og benda þeir á að val í slíkt rit hljóti jafhan að vera álita- mál, en fyrir þeim hafi einkum vakað að það birti „ekki einasta það sem „best“ hefði verið ort og samið á tímaskeiðinu heldur gæfi það einnig nýtilega mynd af aldarhætti og menningar- sögu. Bókmeimtir öm Ólafsson í öðru lagi vildum við gjama velja texta sem kölluðust á hverjir við aðra. Á öllum öldum hafa yrkisefiii skálda verið nokkuð svipuð ef al- mennt er orðað. Staða mannsins í tilverunni, viðhorf hans til annarra manna og æðri máttarvalda, hug- leiðingar um ást og dauða, sælu og kvöl - allt eru þetta sígild efni og er von okkar að kennarar og nemendur geti ef þeir óska rakið sig gegnum dæmasafnið eftir yrkis- efnum ekki síður en eftir ártölum sögunnar. Þess skal einnig getið að val okkar markaðist nokkuð af því hvaða ljóð viðkomandi skálda hefðu verið val- in í Skólaljóð. Þótti okkur einsýnt að þessar tvær bækur gætu að nokkru notast saman.“ Af fyrsta lið skýrist það þá að hér er töluvert efni sem ekki verður talið til skáldskapar: bréf, annálsgreinar, sagnarit, formálar og dómar. Þetta á að sýna hugsunarhátt tímans, sumt sýnir fremur lífskjör. Dæmasafn við íslandssögu Hefði þá ekki verið ráð að taka líka valdar lagagreinar? Þetta er fróðlegt og góður fengur að fá saman á bók svo margar stefnuyfirlýsingar um skáldskap. Vissulega vantar þá ýmis- legt á að það sé tæmandi, enda hefur það sjálfsagt ekki staðið til. En þessir textar verða til þess að bókin fellur fremur undir dæmasafn við Islands- sögu, einkum hugmyndasögu en bókmenntasögu. Hér eru þrjú brot úr greinum eftir Gest Pálsson, en eitt hefði fyllilega nægt, það sem tekið er úr „Nýi skáldskapurinn". I stað hinna hefði átt að birta smásögu eftir Gest, það er hneyksli að engin slík skuli vera í þessari sýnisbók. Þær eru ekki allar langar. Raunar er furðulegt hvað vantar í þetta safnrit: þulur og þjóðkvæði, við- lög og þjóðsögur! Það er hvorki meira né minna en það besta sem til er af íslenskum bókmenntum lungann af þessu tímabili, sem hér er sniðgengið! Um þetta geta menn sannfærst með því að fletta safhritum svo sem Kvæðasafni AB, Fagrar heyrði ég raddirnar, íslands þúsund ár, Kvæði og dansleikir, Sýnisbók ís- Gestur Pálsson: „Engin smásaga' lenskra bókmennta, íslenskri lestrarbók. Hvemig stendur á þessu vali? Útgefendur nefha það ekki, en þeir virðast eingöngu taka verk eftir nafngreind skáld, hvemig sem á því stendur. Hitt má og vera að þessi bestu bókmenntaverk tímabilsins frá siða- skiptum fram á 19. öld birti ekki viðhorf eins ljóslega og fyrmefhd bréf, sagnarit o.fl. Én þá finnst mér undirtit- ill bókarinnar mjög villandi, þótt vissulega séu hér líka góð bókmennta- verk innanum. Val kvæða viðunandi f annan stað er það sláandi, að í þessari „sýnisbók íslenskra bók- mennta" em aðeins tvær smásögur. Þetta nefha útgefendur sjálfir í for- mála, og kenna því um hve lítil bókin sé. En hér er um val að ræða, það hefðu rúmast fáeinar góðar smásögur í stað fyrmefhdra annálsgreina, emb- ættisbréfa o.s.frv. Ekki er hér rúm til að gera miklar athugasemdir við efnisval. Oft fylgir þetta safn svo náið vali Sýnisbókar íslenskra bókmennta að þess hefði átt að geta í formála. Það em einkum textar frá 17. öld. Val kvæða virðist yfirleitt viðun- andi. Góð kvæði em tekin eftir Einar Ben. Þar sem em „Hvarf séra Odds, í Dísarhöll, Móðir mín og Úr Einræðum Starkaðar". En af hveiju í ósköpunum þurfti að taka „Draum"? Til að auka á fjölbreytnina? Það var auðgert án þess að fara að sanna að jafrivel Einar hafi getað ort lélegt kvæði a.m.k. einu sinni um ævina. Og auðfundin væm miklu betri kvæði hans en „Grettis- bæli“ - sem mig grunar að hafa verið valið af hugmyndafræðilegu sjónar- miði frekar en listrænu, til að sýna einstaklingshyggju Einars. Enginn skilji orð mín svo, að ég sé að amast við þessum heimildum um hugarfarssögu, sem setja svo mjög svip sinn á þetta úrval. Það er mikill feng- ur að þeim, og slíkt efhi hefur jafhan verið í sýnisbókum íslenskra bók- mennta. Villandi hugmynd En mér finnst að slíkir textar eigi betur heima sem dæmi í Islandssögu- bókum, og i sýnisbók bókmennta mega þeir ekki ryðja burt listrænum textum svo sem fyrmefridum þjóðkvæðum og þjóðsögum. Fyrst svo er, þá gefur þessi bók afar villandi hugmynd um íslen- skar bókmenntir tímabilsins. Og í höndum óöruggs kennara er hætt við að hún gefi mjög villandi hugmynd um hvað sé einkenni bókmennta- verka. Ætla mætti að það væri skipu- leg umfjöllun efhis, einörð skoðana- boðun af einhverju tagi, en það er hið mesta öfugmæli. Góðu bókmennta- verki má líkja við orgelleik, þar sem margar raddir eru stilltar í samhljó- man, sem verður ekki öðru vísi birt. I skáldverki orka þannig saman atriði svo sem persónusköpun, lýsingar, spenna, hljómfall setninga, stílblær orða, bygging verksins og fleira. Enda þótt ekki verði fundið að því að birta valda texta, þá verður að meta þetta safhrit sem heild, með til- liti til hlutverks þess. Nú má vera að önnur safnrit eigi að nota með því, svo sem smásagnasöfh. En það liggur beinast við að bera það saman við fyr- irrennara þess, Islenska lestrarbók, sem Sigurður Nordal tók saman 1924, og náði fyrst yfir tímabilið 1400-1900, en frá 1942 yfir tímabilið 1750-1930. Miðað við það safn er Rætur stórkost- leg afturför. Bókin er einkar smekklega úr garði gerð, og prýði að teikningum Ingibergs Magnússonar. Illa kann ég þó við dökkgráan grunn innskotsklausna. Gott er að orðaskýringar eru jalhan neðanmáls eða á spássíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.