Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Síða 19
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
19
•Peter Pysall.
Okkar slakasti
leikur í
langan tíma
- segir Peter Pysall
Steön Krisjánsson, DV, Rostodc
„Við bjuggurast við sigri en eftir
að hafe komist í 10-5 í fyrri hálf-
leik gerðum við mörg ljót mistök
í þeim seinni og töpuðum stigi á
því,“ sagði Peter Pysall eftir leik-
inn. „Miðað við síðustu leiki hjá
okkur er þetta einn sá slakasti í
langan tíma. Við getum leikið mun
betur. Ef íslenska liðið heldur
áfram að leika jafri vel og gegn
okkur getur það náð mjög langt á
þessu móti. Við vonum að íslenska
liðið spili aftur svona vel. Ég er
mjög hrifinn af íslenska liðinu í
heild og með góðum leikkerfum
og frábæru línuspili drógu þeir úr
okkur tennumar í síðari hálfleik."
-JKS
Alan Brazil:
Hættur við
að hætta
Alan Brazil, sem tilkynnti fyrr í
vikunni að hann yrði að hætta
knattspymuiðkun, hefúr nú end-
urskoðað afstöðu sína og ákveðið
að reyna að leika áfram. Brazil
hefur verið mjög þjáður vegna
bakmeiðsla upp á síðkastið og hef-
ur það auðvitað háð þessum
frábæra knattspymumanni mjög.
Hann hefur nú ákveðið að reyna
til þrautar og leita sér lækningar.
Hann leikur nú með QPR en þang-
að var hann keyptur fyrir níu
milljónir. -SMJ
Leikið í
Englandi
Kuldaboli, sem hefúr heijað á
Bretlandseyjar undanfama daga
og vikur, er að veslast upp og er
hitinn víðast hvar yfir frostmarki
um þessar mundir. Talsmaður
breska knattspymusambandsins
taldi líklegt í gær að flestallir
knattspymuleikir í Englandi yrðu
leiknir um næstu helgi.
Nokkrir knattspymuvellir em
með undirhita. Þeir helstu em
vellir Everton, Coventry, Liver-
pool, Manchester City og Arsenal.
Fjögur knattspymufélög hafe
komið sér upp gervigrasvöllum:
QPR, Luton, Oldham og Preston.
FerAtlitil Beveren?
- Hann er of dýr en við höfum áhuga, segja forráðamenn Beveren
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
„Já það er rétt - við höfúm mikinn
áhuga á að fá Eðvaldsson í okkar rað-
ir. Hann er mjög góður leikmaður og
mundi styrkja lið Beveren. En trúlega
er hann of dýr fyrir okkur,“ sagði forr-
áðamaður belgíska liðsins Beveren.
Þeir hjá Beveren hafa nú mikinn
áhuga á því að fá landsliðsfyrirliða
• Hugsanlegt er að landsliösfyrirliðinn okkar, Atli Eðvaldsson, sé nú á leiðinni
til Beveren í Belgíu.
Leikurinn í tölum
- Þorgils álti línusendingu sem gaf mark!
Stón Kristjánsson, DV, Rostodc
Arangur íslensku leikmannanna í
leiknum gegn Austur-Þjóðverjum var
sem hér segir:
• Kristján Arason: Skoraði fimm
mörk en skaut tólf sinnum að mark-
inu. Þijú markanna voru úr vítaköst-
um. Sex skot voru varin frá Kristjáni
og eitt fór framhjá. Bolta glataði hann
tvívegis, ein línusending frá honum
gaf hins vegar mark.
• Þorgils Óttar: Skoraði fjögur
mörk úr jafiimörgum tilraunum. Hann
glataði boltanum þrívegis en vann
hann einu sinni. Og undarleg stað-
reynd, ein línusending frá Óttari gaf
mark.
•Bjami Guðmundsson: Skoraði
þrjú mörk úr sjö skottilraunum. Þijú
skot voru varin og eitt fór framhjá.
Hann tapaði boltanum einu sinni.
Náði boltanum einu sinni og fiskaði
þijú víti.
•Guðmundur Guðmundsson: Skor-
aði tvö mörk úr þremur tilraunum,
eitt skot hans var varið. Guðmundur
fiskaði eitt víti.
•Alfreð Gíslason: Eitt mark úr
fimm tilraunum. Fjögur voru varin og
boltanum tapaði hann tvívegis.
•Sigurður Gunnarsson: Skoraði
eitt mark úr fimm skottilraunum, þrjú
voru varin og eitt fór framhjá. Hann
tapaði boltanum einu sinni en ein
línusending hans gaf mark.
•Páll Ólafeson: Eitt skot varið, ein
línusending gaf mark.
•Geir Sveinsson: Eitt mark úr jafn-
mörgum tilraunum.
•Einar Þorvarðarson: Varði 12
skot.
Þeir Karl Þráinsson og Július Jón-
asson komu ekki við sögu í þessum
leik.
Þess má geta að sóknamýting ís-
lendinga var 40,4%, þeir skoruðu 17
mörk úr 42 sóknum. Sóknamýting
Austur-Þjóðverja var hins vegar
41,4%, þeir settu boltann 17 sinnum í
markið hjá Islendingum úr 41 sókn.
íslendingar voru færri í 8 mínútur
en Austur-Þjóðverjar í 4.
-JÖG
Dregið í Evrópukeppninni
Þessi lið drógust saman á Evrópu-
mótunum í handknattleik:
I undanúrslitum í Evrópukeppni
meistaraliða leika annars vegar Tu-
sem Essen, lið Alfreðs Gíslasonar,
og SKA Minsk frá Sovétríkjunum
og Metaloplastica, Júgóslavíu, gegn
Gdansk frá Póllandi hins vegar.
í undanúrslitum í Evrópukeppni
bikarhafa leika annars vegar Swab-
ing frá Þýskalandi gegn Amicitia
Zúrich frá Sviss og Slovan Ljubljana
frá Júgóslavíu gegn ZSKA Moskva
hins vegar.
í IHF keppninni leika annars veg-
ar Granitas Kaunas frá Sovétríkjun-
um gegn Gummersbach, liði
Kristjáns Arasonar og Athletico
Madrid gegn norska félaginu Urædd
hins vegar. -JÖG
I
I
I
I
L.
Jafht á Spáni
Spánverjar og Hollendingar áttust við í vináttulandsleik í knatt-
spymu í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á heimavelli Barcelona og
lauk honum með jafntefli. Hvort lið gerði 1 mark. Ruud Gullit tók
forystu fyrir Hollendinga á 20. mínútu en Ramon Caldere jafnaði
fyrir Spánverja á 71. mínútu. -JÖG.
n
i
i
i
i
j
okkar, Atla Eðvaldsson, í sínar raðir
og hafa verið að spyijast fyrir um
hann. í vor rennur samningur Atla
hjá v-þýska liðinu Bayer Uerdingen
út og styður það þessar vangaveltur.
Þá hefur það heyrst að þegar séu hafn-
ar viðræður á milli Beveren og
Uerdingen.
Eins og kunnugt er leikur Guð-
mundur Torfason nú hjá Beveren.
Einnig eru þar fyrir Ekeke frá Kamer-
ún, David Fairclough, V-Þjóðveijinn
Frans Josef Schmecling og Pólverjinn
Kusto. Aðeins mega leika þrír leik-
menn með liðinu og er ætlunin að
selja Ekeke. Schmecling er meiddur
og Kusto verður talinn Belgi á næsta
ári en þá hefúr hann leikið í fimm ár
í Belgíu.
„Veit aldrei hvað getur gerst í
atvinnuknattspyrnu“
„Ég verð að segja eins og er að ég
hef ekkert heyrt um þetta en hins veg-
ar veit maður aldrei hvað getur gerst
í heimi atvinnuknattspymunnar,"
sagði Atli Eðvaldsson þegar hann var
spurður um hugsanleg félagaskipti.
„Samningur minn - og reyndar einnig
Lámsar - rennur út nú í vor og þvi
ekki nema von að svona vangaveltur
komi upp. í raun er allt opið í þessum
málum," sagði Atli sem er nýkominn
úr 12 daga æfingaferð til Mexíkó.
Það mun vera umboðsmaðurinn
Willie Reinke sem vakti áhuga Bever-
en á Atla en hann hefur komið nálægt
flestum viðskiptum á íslenskum leik-
mönnum erlendis.
Þess má geta að Atli er metinn á
um 10 milljónir ísl. króna (450.000 v-þ.
mörk) en að sögn Atla hefúr hann um
það klásúlu í samningi sínum að ef
hann fer fram á sölu þá verði ekki
sett hærra verð á hann.
-SMJ
•Charlie Nicholas er í miklu stuði þessa dagana og skoraði hann tvö mörk
i gærkvöldi.
Charlie Nicholas
skoraði tvö mörk
- og Arsenal er komið í undanúrslít deildarbikarsins
Arsenal vann Nothingham Forest
með 2 mörkum gegn engu í enska
deildarbikamum í gærkvöldi. Charlie
Nicholas fór á kostum í leiknum, hann
skoraði fyrra markið og lagði seinna
upp það sem Martin Hayes skoraði
utan úr vítateig.
Þá tapaði Everton á heimavelli fyrir
Liverpool, 0-1, og var það markavélin
Ian Rush sem skoraði sigurmarkið er
6 mínútur voru til leiksloka. Þess má
geta að Jim Beglin, bakvörður Liver-
pool, fótbrotnaði í viðureign nágrann-
anna og verður hann sjálfeagt frá
keppni það sem eftir er vetrar.
Með þessum sigrum eru Arsenal og
Liverpool bæði komin í undanúrslit í
deildarbikamum.
Þá vom einnig nokkrir leikir í ensku
bikarkeppninni (FA Cup) í gærkvöldi.
Úrslit leikjanna voru sem hér segir:
Newcastle- Northampton.............2-1
Brighton - Sheffield United........1-2
Chelsea- Aston Villa...............2-1
Huddersfield - Norwich.............2-4
Þá lék Manchester United æfingaleik við
Rauðu stjömuna fi-á Belgrad og sigruðu
Stjömumenn með einu marki gegn engu.
•Tveir leikir fóru einnig fram í úrvais-
deildinni í Skotlandi í gærkvöldi. Aber-
deen sigraði Hearts, 2-ð, og Celtic lagði
Hibemian að velli með 1 marki gegn engu.
Celtic hefur þar með endurheimt efsta
sætið í deildinni.
-JÖG