Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Side 21
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
21
5 sekúndum
pi í Rostock
kur hjá íslenska liðinu
Bjami Guðmundsson skoraði mikilvæg
mörk en hann gerði töluvert af mistök-
um þó það verði að játast að það er
varla við mennskan mann að eiga þar
sem Wieland Schmidt er.
I raun verður þetta að teljast írábær
árangur. Leikmenn liðsins komu sinn
úr hverri áttinni og liðið í heild skorti
samæfingu.
-SMJ
Náðum stigi af einu
besta liði heims
- segir Paul Tiedemann, þjálfari A-Þjóðverja
Spfai Knstiánov^n, ny. ~ Wahl var klipptur út í síðari hálfleikn-
------------------------ um.“ -JÖG
„Þetta er afar slæm b\Tjun,“ sagði
Paul Tiedemann, þjálfari Austur-Þjóð-
verja. „Schmidt, markvörður okkar, var
að vísu stórkostlegur en það er engu að
síður ekki hægt að gera fleiri mistök í
einum og sama leiknum. Við vorum
mjög heppnir að ná jafntefli, við náðum
öðru stiginu af einu allra besta landsliði
heims. Nokkrir leikmanna minna voru
í andlegu ójafnvægi. Þeir hafa ekki náð
sér á strik eftir tapleiki með félagsliðum
sínum i Evrópumótunum í vikunni sem
leið. Til dæmis gat Peter Pysall ekki
tekið við hlutverki Frank Wahl, en
íþróttir
Landsliðið fær320.000
fyrir gull í Rostock
Steön Kristjánssan, DV, Rostodc
Ef íslenska liðið lendir í 1. sæti á
Baltic Cup fær hver leikmaður 20.000
kr. í sinn hlut. Og ef þessi tala er tek-
in saman þá þarf HSÍ að greiða 320.000
kr. til landsliðsmanna okkar ef þeir
ná þeim frábæra árangri að vinna
Baltic Cup.
n ’ i
Oruggthja i
Pólverjum
Steön Kristjánsson, DV, Rostodc
Pólverjar komu mjög á óvart og
sigruðu Sovétmenn örugglega,
27-24, eftir að hafa verið yfir,
13-10, í hálfleik. Mikla athygli
vakti leikur gömlu kempunnar
Jerzy Klempel en hann átti stór-
leik þó hann hafi ekki skorað nema
4 mörk. Sérstaka athygli vakti eitt
mark sem hann skoraði úr viti.
Hann stillti sér upp á línunni og
þóttist ætla að skjóta. Þess í stað
sneri hann sér í heilan hring og
ruglaði markmann Sovétmanna
svo að hann datt í gólfið. Þá kast-
aði Klempel boltanum í markið við
mikinn fögnuð áhorfenda. Þetta
var í lok leiksins en þá voru Pól-
verjarnir famir að gera grin að
Sovétmönnunum. -SMJ
Staðan i
Úrslit í gær: |
Austur-Þýskaland-ísland.....17-17 ■
Svíþjóð Vestur-Þýskaland...21-21 I
Pólland Sovétríkin.........27-24 "
Staðan á mótinu er nú þessi eftir eina I
umferð: ■
1. PóUand....... 1 1 0 0 27-24
2. V-Þvskaland... 10 10 21-21
3. Svíþjóð...... 1 0 1 0 21 21
4. ísland........ 10 10 17-17
5. A-Þýskaland... 10 10 17-17
ö. Sovétríkin.... 1 0 0 1 24-27
Þessir leikir fara fram í dag:
fsland V-Þýskaland
Svíþjóð - Sovétríkin
^ólland - A-Þýskaland
?l
Fyrir annað sætið fá landsliðsmenn-
imir 16.000 kr. en það gerir 256.000
samtals og fyrir 3. sætið fá landsliðs-
mennimir okkar 12.000 kr. en það
gerir 192.000 samtals.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
landsliðsmenn okkar fá bónusgreiðsl-
ur. Þeir fengu einnig einhveijar
greiðslur fyrir HM í Sviss þó að 6.
sætið þar hefði ekki dugað til hárrar
greiðslu.
- En hvemig fer fjárvana samband
eins og HSÍ að því að greiða þessa
upphæð?
Það kom fram í viðtali við Jón
Hjaltalín Magnússon, formann HSÍ,
að sambandið er nú með ýmsar fjár-
aflanir í gangi. Bílahappdrætti HSI er
í íúllum gangi núna og einnig verður
tekið við áheitum á skriístofu HSI í
síma 685422. Er fúll ástæða til að
hvetja fólk til að styðja við bakið á
strákunum okkar, sem byrja svo frá-
bærlega á Baltic Cup, með því að láta
eitthvað af hendi rakna.
-SMJ
• Martin Schwalb, leikstjórnandi V-Þjóðverja, lék frábærlega í gær. Hér sést
hann skora hjá íslendingum en liðin mætast í kvöld.
„Hávaxnir Svíar voru
erfiðir viðureignar“
- segir Simon Schobel, þjátfari V-Þjóðverja
Stefán Kristjánssan, DV, Rostodc
Svíþjóð og V-Þýskaland gerðu jafrt-
tefli, 21-21, í gærkvöldi eftir að Svíar
höfðu verið yfir, 11-9, í hálfleik. Á
tímabili í seinni hálfleik komust Svíar
fimm mörk yfir en óðagot í sókninni
á lokamínútunum kostaði þá annað
stigið.
Martin Schwalb skoraði hvorki fleiri
né færri en 10 mörk í leiknum og var
ekkert þeirra úr vítakasti. Fyrir Sví-
þjóð skoraði Bjöm Jilsen mest 7 mörk
(5 v.).
„í fyrri hálfleik áttum við í miklum
erfiðleikum með Svía, sem em mjög
hávaxnir, en eftir að hafa verið fimm
mörkum undir í seinni hálfleik tókst
okkur að ná okkur á strik með taktísk-
um breytingum á leik okkar. Með betri
nýtingu í sókninni hefðum við sigr-
að,“ sagði Simon Schobel, þjálfari
V-Þjóðverja.
„Við mættum góðu v-þýsku liði en
hjá okkur var á köflum of mikill órói
í sókninni. Við skutum of snemma og
álítum að jafritefli sé í raun tap fyrir
okkur,“ sagði Roger Carlson, þjálfari
Svía, sem var að vonum óánægður
með að fá aðeins annað stigið. -SMJ
Algjör nýjung í hártoppafestíngum
og hártoppum
Nú er hártoppurinn fléttaður fastur við hárið sem
fyrir er í staðinn fyrir límborða.
Þú syndir, þværð þér um hárið, þurrkar það og
greiðir án þess að þurfa að taka hártoppinn af þér.
Lífið verður leikur með nýju hártoppafestingunni.
Höfum einnig hinn vinsæla „Miracle“ hártopp
ásamt öðrum gerðum í ýmsum verðflokkum.
Þú ættir að líta inn eða panta tíma í síma
22077, gera samanburð og þiggja góð ráð.
HÁRSNYRTISTOFAN
GREIFIM
HRINGBRAUT 119 « 22077