Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Side 23
FIMMTUDAGUR 22. JANUAR 1987.
23
Fréttir
Herferð landlæknis gegn eyðni:
Frægt fólk með smokka
Valgeir Guðjónsson: - Viltu láta
mynda þig með smokk?
Bíl stoliö
og krafist
lausnargjalds
Rannsóknarlögregla ríkisins hand-
tók síðdegis á mánudag mann sem
hafði stolið BMW bifreið úr Álfhei-
munum og krafið eigandann um 600
þúsund króna lausnargjald ef hann
vildi fá bifreiðina óskemmda. Maður-
inn viðurkenndi verknaðinn og til-
raun til f]árkúgunar.
Eigandi bifreiðarinnar var vakinn
upp aðfaranótt mánudags og honum
tilkynnt að bifreiðinni hefði verið sto-
lið og lausnargjaldsins krafist. Hann
trúði ekki hringingunni en annað kom
í ljós um morguninn og tilkynnti hann
þá RLR um stuldinn. Bifreiðin fannst
á mánudaginn í Hamraborginni í
Kópavogi, óskemmdur en um var að
ræða eina dýrustu gerðina af BMW
að verðmæti 11 til 12 hundruð þúsund
krónur.
Maðurinn, sem stal bifreiðinni, mun
hafa komist yfir lykla að bifreiðinni
fyrir tilviljun fyrir tæpum tveim mán-
uðum. -SJ
Smygl í Hofsjökli
Sjö skipverjar af Hofsjökli hafa við-
urkennt að eiga um 141 lítra af vodka
sem tollgæslan fann við leit í skipinu.
Áfengið fannst við venjulega leit og
var falið í vélarrúmi og bak við þiljur
í íbúðum skipverja.
Að sögn tollgæslunnar er stutt síðan
smygl fannst í Hofsjökli.
-SJ
Seljahverfi:
Æskulýðsmiðstöð
flutt annað?
Ákvörðun um það hvað verður um
hugmyndir um að koma upp æskulýð-
smiðstöð í þeim hluta Seljahverfis sem
kallað hefur verið „listamannahverfi"
hefur enn ekki verið tekin af borgar-
yfirvöldum, samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk hjá Hjörleifi B. Kvaran
hjá borgarverkfræðingi.
Á sínum tíma hafði verið tekin um
það ákvörðun að koma upp æskulýðs-
miðstöð fyrir unglinga í hverfinu og
var keypt einbýlishús i því skyni.
Vegna þessa komu fram mótmæli íbúa
í nágrenninu sem óttuðust hávaða og
ónæði frá æskulýðsmiðstöðinni og var
þá ákveðið af borgarinnar hálfú að
fresta máhnu um hríð.
Að sögn Hjörleifs er óljóst hvað
verður um mál þetta, hvort æskulýðs-
miðstöðin verður í húsi því sem áður
hafði verið ætlað til starfseminnar eða
hvort hún verður reist annars staðar.
-ój
Nökkvi sjósettur
Jcm G. Haukssan, DV, Akureyii:
Nökkvi HU-15 var sjósettur á Akur-
eyri í hádeginu á laugardaginn.
Nökkvi er í eigu samnefiids útgerðar-
félags á Blönduósi. Særún hf. á
Blönduósi er stærsti hluthafinn með
10 milljónir af 24 milljóna króna hlut-
afé. Aðrir eru Blönduóshreppur,
Islenska útflutningsmiðstöðin og
10-12 einstaklingar. Nökkvi er rað-
smíðaskip og er systurskip Oddeyrar-
innar sem nýlega var sjósett. Skipið
verður gert út frá Blönduósi og er 300
tonn.
„Þetta er traustur hópur. Markmið-
ið er að gera smokkinn minna óttaleg-
an í augum almennings en verið
hefur," sagði Valgeir Guðjónsson, gít-
arleikari hljómsveitarinnar Strax, um
herferð landlæknis gegn eyðni sem
hefst í febrúar. Það er auglýsingastof-
an Svona gerum við sem ser um
framkvæmd herferðarinnar en Valgeir
var fenginn til að hringja f hóp valin-
kunnra karla og kvenna og fá hann
til að koma fram í smokkaauglýsingu.
„Ég býst við að ég hafi verið fenginn
til að hringja vegna þess að ég þarf
ekki að kynna mig með flóknum
hætti,“ sagði Valgeir í samtali við DV
en neitaði aðspurður að gefa upp nöfri
þeirra sem fallist hafa á að láta ljós-
mynda sig með smokk. „Þetta er alls
konar fólk, stjórnmálamenn, lista-
menn, fjölmiðlafólk og skemmtikraftar
svo eitthvað sé nefrit."
Þá hefur það verið nefht við Valgeir
að hann semji lag með texta þar sem
kvatt er til notkunar smokka. Það
yrði fyrsta smokkalagið í íslenskri
tónlistarsögu.
NÝIARREGLUR
UMIÐGJALDAGREIÐSIUR
Áfangahækkun iðgjalda til lífeyrissjóða SAL.
Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSI frá 26. febrúar 1986skulu iðgjöld til lífeyrissjóða
aukast í áföngum á næstu 3 árum, þar til 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða 4% af
öllum launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda-
skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur gilda þó
um iðgjaldagreiðslur sjómanna.
Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir:
Árin 1987-1989:
a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á mánuði
hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal ekki greiða
4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem svarar til iðgjalds
fyrir 1731/3 klst. miðað við tímakaup hlutaðeigandi starfs-
manns í dagvinnu, að viðbættu orlofi.
Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð.
b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 1731/3 klst. að viðbættu orlofi,
sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir:
Árið 1987
Starfsmenn: 1 % iðgjald af þeim hluta tekna, sem ekki var tekið iðgjald af,
samkvæmt a-lið.
Atvinnurekendur: 1.5% iðgjald af sömu fjárhæð.
c) Hinn 1. janúar 1988 aukast framangreindar greiðslur, samkvæmt b-lið þannig, að
starfsmenn greiða 2% og atvinnurekendur 3% og frá 1. janúar 1989 greiða starfs-
menn 3% og atvinnurekendur 4.5%.
Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% iðgjald af öllum launum og atvinnurek-
endur með sama hætti 6%.
Nauðsynlegt er að starfsmenn og atvinnurekendur geri sér grein fyrir þessum nýju
reglum um iðgjaldagreiðslur af öllum launum til lífeyrissjóða í áföngum. Munið að nýju
reglurnar tóku gildi 1. janúar s.l.!
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
j. ASB og BSFÍ • Lsj
j. byggingamanna • Lsj
j. Dagsbrúnar og Framsóknar • Lsj
j. Félags garðyrkjumanna • Lsj
j. framreiðslumanna • Lsj
j. málm- og skipasmiða • Lsj
j. matreiðslumanna • Lsj
j. rafiðnaðarmanna • Lsj
j. Sóknar
verksmiðjufólks •
Vesturlands •
Bolungarvíkur •
Vestfirðinga •
verkamanna, Hvammstanga •
stéttarfélaga í Skagafirði •
Iðju á Akureyri •
Sameining, Akureyri •
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
j. trésmiða á Akureyri
j. Björg, Húsavík
j. Austurlands
j. Vestmanneyinga
. Rangæinga
. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
. verkafólks í Grindavík
j. Hlífar og Framtíðarinnar