Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Side 30
30
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
Fréttir
Frá veitingu Menningarverðlauna DV árið 1981. Eyjólfur Melsted, tónlistargagnrýnandi DV, afhendir Jóni Ásgeirssyni,
tónskáldi og tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins, verölaunagripinn, sem er „riddarakross" úr postulíni eftir Kolbrúnu
BjörgóHsdóttur.
Eins og getið var um í síðustu viku
verða Menningarverðlaun DV afhent
íslenskum listamönnum á sex sviðum
þann 26. febrúar næstkomandi.
Þriggja manna dómnefndir, skipaðar
gagnrýnendum DV, gagnrýnendum
annarra íjölmiðla og áhugafólki úti í
bæ, hafa nú flestar hafið störf og munu
Eim ein Vikankomm...
í Vikurtni er fjölbreytt efni
- eitthvað fyrir alla
Valgeir í
viðtali Vikunnar.
rtKonuimi mirmi og fleirum fínnst ég
stundum hafa óhugnanlegan hæfileika
til að kreista ánægju úr hverju sem
er,“ segir Valgeir Guöjónsson tónlistar-
maður og fyrrverandi eöa núverandi
Stuðmaður meðal annars í viðtalinu og
er bráðhress að vanda.
Misjafnt hvað fólki fínnst faflegt, segir
leikkonan Guðlaug María Bjamadóttir,
nafn Vikunnar, í stuttu spjafli um leik-
feriflnn, sjónvarpsmynd Nínu Bjarkar
og fleira tengt leikhúslífinu.
Ýmislegt er hægt að gera sér til
skemmtunar í London án þess að
brenna gat á budduna og bræða
greiðslukortið, til dæmis að lenda í
veislu í bedúínatjaldi. Pistifl frá London
íþessariViku.
Þorri gengur í garð - samantekt um
karlinn.
Kynning á væntanlegum kvikmyndum.
Krossgátur. Handavinna.
Mataruppskriftir.
Þýfið, spennandi sakamálasaga.
Faflegasti sendiherrann.
Það er plbreytt efni í Vikunni, ekkert
vafamál.
VIKXN er blaðið
Dómnefhdir
fa frjálsar
hendur
- menningarverðlaunin í aðsigi
skila áliti sínu um miðjan febrúarmán-
uð.
Á næstunni verða dómnefhdamenn
kynntir hér í DV.
Fyrstu ár menningarverðlaunanna
voru þau aðeins veitt i fimm greinum:
leiklist, bókmenntum, tónlist, myndlist
og arkitektúr, en í kjölfar hins mikla
uppgangs íslenskra kvikmynda við
upphaf þessa áratugar var árið 1981
ákveðið að veita einnig viðurkenning-
ar fyrir framlög til íslenskrar kvik-
myndagerðar.
Dómnefndir hafa mjög frjálsar hend-
ur um verðlaunaveitinguna innan
hverrar greinar. Hægt er að veita bók-
menntaviðurkenninguna fyrir skáld-
sögu, smásögu, ljóð, bókmenntahug-
anir (esseiur), jafnvel bókmennta-
gagmýni, ef nefiidinni sýnist svo.
Tónskáld, einstakir hljóðfæraleikar-
ar, hljómsveitarstjórar, söngvarar og
aðrir tónlistarfrömuðir geta hlotið
tónlistarverðlaunin, sömuleiðis geta
nánast allir sem viðriðnir eru leikhús
hlotið leiklistarverðlaunin.
í myndlistinni er hægt að heiðra
myndlistarmenn á ýmsum sviðum,
myndlistarstofnanir, jafnvel myndlist-
argagnrýnendur, einnig hafa nefndar-
menn í arkitektúmefnd tiltölulega
fríar hendur í vali. Sfðastnefhda
nefndin hefur einnig notað sér það
frjálsræði með þvi að verðlauna ekki
aðeins húsbyggingar heldur einnig
mannvirki eins og biýr og hönnunar-
afrek eins og stól Valdimars Harðar-
sonar.
Þótt hugur og alvara fylgi hverri
veitingu menningarverðlaunanna,
sem eru einu viðurkenningar sinnar
tegundar á Islandi, hefur einnig verið
reynt að halda upp á hverja veitingu
með lítilli menningarhátíð á einhverj-
um vistlegasta og „menningarlegasta"
veitingastað borgarinnar, Hótel Holti.
Þar gefast listamönnum, blaða-
mönnum og gagnrýnendum tækifæri
til að skiptast á skoðunum og njóta
saman þess viðurgemings sem bestu
matreiðslumenn borgarinnar tilreiða
af þessu menningarlega tilefni.
Em málsverðir þessir orðnir umtal-
aðir meðal íslenskra sælkera þvi við
það tækifæri hafa verið gerðar til-
raunir með ýmislegt ljúffengt fiskmeti
sem sjaldan sést á borðum íslendinga.
Er matseðill vegna menningarverð-
launa venjulega birtur á neytendasíðu
DV í kjölfar veitingarinnar.
En sjálf verðlaunin og verðlauna-
hafamir em vitaskuld í fyrirrúmi. Á
næstu dögum munum við segja frekar
frá undirbúningi verðlaunaveitingar-
innar og rifja upp það sem gerst hefur
í þeim málum á síðstliðnum átta árum.
-ai