Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Síða 32
32
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
Dægradvöl
Stjörnuspeki:
Skrífað stendur
Texti: Borghildur Anna DV-myndir Ragnar S.
„Hvað er eiginlega að gerast í bæn-
um?“ spurði forviða starfsmaður á
skrifstofu fæðingardeildar Landspítal-
ans í Reykjavík. Spyrjandinn er
Hjördís Sveinbjömsdóttir og hefur
hún svo sannarlega ástæðu til að
undrast. Að undanfömu hefur síminn
ekki þagnað á skrifstoíunni - og stöð-
ugur straumur fólks kemur og bankar
upp á hjá þeim að auki. Allir hafa
sama erindið fram að færa: „Geturðu
gefið mér upp nákvæman fæðingar-
tíma?“
Ástæðan er aukinn áhugi á stjömu-
speki. Til þess að geta látið gera
fæðingarkort þurfa menn að vita ná-
kvæman fæðingartíma - stað og stund.
Ef réttur tími er ekki fyrir hendi er
ekki nokkur leið að vita rísandann
með nokkurri vissu - sem er ákaflega
mikilvægt atriði - og er það mjög til
baga við túlkun kortsins síðar. Því
hafa menn samband við það sjúkrahús
sem þeir höfðu fyrst viðdvöl í þégar
innreiðin var gerð í þennan heim -
það er að segja ef fæðingarstundin er
ekki alveg á hreinu. Sjúkrahúsin
gerðu hins vegar ekki ráð fyrir slíkum
uppákomum við skipulagningu skjala-
geymslanna og á Landspítalanum
setja hinir verðandi stjömuspekingar
svo sannarlega strik í reikninginn.
Mamma á afmæli - hvenær?
„Kannski er það verst að margir sem
hringja vita ekki fæðingardag móður
sinnar sem er forsenda fyrir því að við
finnum skýrsluna," segir Hjördís. Að
fenginni þeirri vitneskju á hún eftir
að fara niður í kjallarann og róta þar
lengi í gömlum skýrslum við hinar
frumstæðustu aðstæður. Ekki bætir
úr skák að margir sem biðja um þessa
þjónustu gegnum síma gera sér ekki
grein fyrir fyrirhöfninni og láta því
ekki svo lítið að sækja hinn skráða
fæðingartíma. Hrúga af slíkum ósótt-
um vottorðum liggur á skrifstofunni
og sífellt hækkar bunkinn.
FÆDtNGARKORT
f fí.ív.>«> <>!} -afc&S&í
«».ír>?,<.. !,:,»>*<>) . >* '••?>K; m vtttfi* ;íOS-> 4
>,'><•"•.*?•<.irxís *><»:«■>>**^ivssíts ÍJítiA
" ' '
Stjörnukort fyrir Heimsmynd
„Ég var nú héma út af öðru,“ segir
Herdís Þorgeirsdóttir, ritstjóri Heims-
myndar. Hún stendur inni á skrifstofú
Stjömuspekimiðstöðvarinnar við
Laugaveg og rýnir í stjömukortið sitt
ásamt æðstapresti staðarins - Gunn-
laugi Guðmundssyni.
Herdís er að láta renna korti fyrir
þekktan íslenskan stjómmálamann en
hennar fékk að fljóta með í kaupunum.
Þar er ýmislegt fróðlegt að sjá - hún
er til að mynda vatnsberi með tunglið
í meyju. Margir vatnsberar hafa lagt
fyrir sig störf sem em áberandi í þjóð-
félaginu og þá oft tengd stjómmálum
- Reagan Bandaríkjaforseti er ágætt
dæmi um slíkan vatnsbera. Þar sem
Herdís hefur svo tunglið í meyju kem-
m- inn hagsýni og gagmýnt hugarfar.
Gunnlaugur segir greinilega aukinn
áhuga á stjömuspeki frá því að hann
byrjaði að starfa við þetta fyrir sex
árum. Hann giskar á sjötíu til áttatíu
prósent aukningu og ekki síst núna
frá því fyrir síðustu jól.
„Það er einnig aukning á beiðnum
um fyrirlestra í félögum frá síðasta
hausti og almennur vaxandi áhugi á
stjömuspeki í heiminum. Samtök
áhugamanna um stjömuspeki er mjög
líflegt félag - næsti fundur er í byrjun
febrúar á Hótel Loftleiðum og þar
verður fiallað um húsin.“
Jón Óttar til umræðu
Það er stöðugur straumur fólks inn
til Gunnlaugs alla daga en ekki verður
hjá því komist að láta fljóta með sam-
tal stjömuspekingsins við einn
nemanda af námskeiðum sem hann
hefur haldið. Hann réttir Gunnlaugi
fæðingarkort yfir borðið og segist ætla
að prófa hann - vill fá að vita hvaða
manngerð er þama á ferðinni.
„Ljón með tunglið í meyju og rísandi
sporðdreki," segir Gunnlaugur hugs-
andi og skoðar kortið nánar.
Herdís Þorgeirsdóttir var aö láta renna korti fyrir einn af stjórnspekúlöntum þjóðarinnar. Stjörnu-
spekingurinn, Gunnlaugur Guðmundsson, renndi þá hennar korti i leiðinni og þar var auðvelt
að finna skýringar á fjölmiðlaáhuga Heimsmyndarritstjórans.