Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Blaðsíða 34
f
34
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
1
I
i
1
i
I
I
i
í
}
K
i
i
f
i
I
\
I
AncUát
Elías Kristinn Haraldsson vörubif-
reiðastjóri lést 15. janúar sl. Hann
fæddist á Hellissandi 15. mars 1925.
Foreldrar hans voru Haraldur Guð-
mundsson og Elín Oddsdóttir. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Ester
Friðþjófsdóttir. Þau hjónin eignuð-
ust níu börn. Elías verður jarðsung-
inn frá Ingjaldshólskirkju 24. janúar
kl. 14.
Ragna Lára Ragnarsdóttir lést 14.
janúar sl. Húnfæddistájóladag 1935,
dóttir hjónanna Ragnars J. Lárus-
sonar og Andreu F.G. Jónsdóttur.
Ragna eignaðist tvö böm. Útför
hennar verður gerð frá Háteigs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Kristín Björg Borgþórsdóttir,
Þiljuvöllum 27, Neskaupstað, verður
jarðsungin frá Hafnarffarðarkirkju
föstudaginn 23. janúar kl. 15.
Anna Kristín Karlsdóttir, Unnar-
braut 12, Seltjarnarnesi, verður
jarðsungin frá Neskirkju föstudag-
inn 23. janúar kl. 10.30.
í morgun kom hópur undirmanna á farskipunum í veg fyrir að leiguskipið
, Jan, sem er á vegum Sambandsins, væri bundið við Holtabakka í Sunda-
höfn. Eftir nokkurt þóf lagðist skipið við ankeri og beið átekta meðan reynt
var að ná samkomulagi i málinu. DV-mynd RG
Farmannadeilan:
Verkfallsátök við
Holtabakka í morgun
í morgun kom til átaka þegar leigu-
skipið Jan, sem siglir á vegum
Sambandsins, ætlaði að leggjast að
Holtabakka í Sundahöfn. Tíu manna
hópur farmanna stóð á bryggjunni og
kom í veg fyrir að hægt væri að binda
skipið. Það sneri þá frá og lagðist við
ankeri. Þannig stóðu málin þegar DV
fór í prentun.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur, sagði að
hér væri ekki um skipulagða verk-
fallsvakt að ræða, heldur hefðu
sjómenn bara ákveðið að minna á sig
með þessum hætti enda væru þeir
orðnir þreyttir á fyrirstöðu skipafélag-
anna í samningamálunum. Þá spilaði
líka inn í þetta óánægja sjómanna með
leiguskipin sem væru óeðlilega mörg
hér á landi.
Þór Guðmundsson, verkstjóri í
skipaafgreiðslunni í Holtabakka,
sagði að sjómenn hefðu raðað sér á
bryggjukantinn og komið í veg fyrir
að skipið legðist að. Engin alvarleg
átök hefðu átt sér stað og ekki hefði
verið kallað á lögregluna.
„Við erum friðsemdarmenn og leys-
um málin á friðsaman hátt,“ sagði Þór.
-S.dór
Svemr Hermannsson um fræðslustjöramálið:
Er að velta fyrir mér
að stilla
Jón G. Hauksscm, DV, Akureyri
„Fræðsluráðið er með uppástungu
um að Sverrir Thorsteinsson á Stóru
Tjömum verði skipaður fræðslustjóri
til bráðabirgða. Eg þekki lítið til
Sverris og veit lítið um hann. En ég
met mikils að fræðsluráðið reyni að
koma til móts í þessu máli og leysa
vandann," sagði Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra við DV.
Á fundi sínum í gær samþykkti
fræðsluráð Norðurlandsumdæmis
eystra ofangreinda tillögu. Einnig
samþykkti ráðið tillögu þess efriis að
skipuð verði hlutlaus rannsóknar-
nefnd til að rannsaka fræðslustjóra-
málið. Þessari tillögu beinir fræðslu-
ráð til Alþingis.
Sverrir sagðist hins vegar ekki geta
séð að hann gæti haft samband við
fræðsluráð á meðan Þráinn Þórisson
gegndi þar formennsku. „Þráinn hefur
til friðar
lýst mig ósannindamann í efnum þar
sem ég hef haft fullkomlega rétt fyrir
mér og hef sýnt fram á það. Við slíkan
mann get ég ekki rætt,“ sagði Sverrir.
„Ég hef verið að velta því fyrir mér
að stilla til friðar í umræðunum sem
verða á Alþingi í dag,“ sagði Sverrir
ennfremur „og athuga hvort þing-
menn vilja nú ekki hægja aðeins á sér
í þessu máli því Alþingi bætir ekki ráð
sitt gagnvart almenningi með þeim
málflutningi sem þar hefúr tíðkast.
En menn mega vita að ég ætla ekki
að hvika í þessu fræðslustjóramáli."
„Ég vil ekki tjá mig um þau um-
mæli Sverris að hann vilji ekkert við
mig tala. Hann hefur ekki rætt við
mig og enn hef ég hvergi séð þetta
haft eftir honum," sagði Þráinn Þóris-
son, formaður fræðsluráðs, við DV.
„En það verður að koma í ljós hvort
Sverrir vill tala við mig eða ekki.“
I gærkvöldi
t Þoriákur H. Helgason kennari:
„Ég er svona stór“
Jón úr Vör varð 70 ára í gær og
Ríkisútvarpið hélt upp á afmælið. í
viðtali við Gylfa Gröndal sagðist Jón
hafa selt 30 eintök af Þorpinu fyrstu
10 árin eftir að bókin kom út. Nú
eru 40 ár liðin frá útkomu hennar
og Jón úr Vör er kominn í heiðurs-
launaflokk listamanna.
Ég er býsna lystugur fjölmiðla-
neytandi, meira að segja kaupi ég
erlent dagblað. Kemur þá upp í huga
minn að í síðustu viku birtist í
stærsta dagblaði í Svíþjóð heilsíðu-
auglýsing sem bar yfirskriftina
„Borðið með náttúrunni". Þar var
frystur fiskur sem sagður var veidd-
ur ómengaður norður í dumbshafi.
Mér var hugsað til markaðs íslend-
inga með fjallalambið og fiskinn
beint úr náttúrunni. í stað þess nið-
urteljum við bændur og búalið.
Hingað austur á Selfoss heyrast
ekki allar bylgjur, en gamla gufurad-
íóið skilar mörgu fróðlegu. Fréttim-
ar í RÚV gamla eru sér á báti. En
í gær voru sjónvarpsféttimar for-
vitnilegri. Gaman var að heyra at-
hugasemdir Sigfúsar, bæjarstjóra á
Akureyri, um mikla bílaeign og
aukna eftir að tollar vom lækkaðfr
í samningunum verkfallshreyfingar-
Þorlákur H. Helgason.
innar og ríksstjómarinnar. Sagði
Sigfús að skattleggja ætti bíla sér-
staklega. Það fór vel á því að á eftir
var sagt frá því að austur í Kína
heföi ríkisforsvarsmanni verið steypt
af stóli „Vegna borgaralegs fijáls-
lyndis". Á þá einkabílisminn vænt-
anlega lengra í land að skattleggjast
austur í Kína en norður á Akureyri.
Þjóðremban var í hámarki í gær er
Austur-Þjóðveijar náðu að jafna á
síðustu sekúndum leiksins við „okk-
ar menn“.
í morgun sögðu morgunvaktar-
menn að Akureyringar fæm líklega
í stuttbuxum í vinnuna. Líklega
verður hitunarkostnaður ekki jafh-
mikill á næstunni. En í gær var sagt
frá því að hitunarkostnaður á lands-
byggðinni væri margfaldur á við það
sem hann er í Reykjavík.
Karl A. Þorsteins ræðismaður lést
á heimili sínu, Hagamel 12, Reykja-
vík 21. janúar.
Minningarathöfn um Sigurð Sigur-
jónsson, skipstjóra, Breiðvangi 32,
Hafnarfirði, sem fórst með m/s Suð-
urlandi 25. desember sl. fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju laugardaginn
24. janúar kl. 14.
Tóma G. Hallgrímsson frá Siglu-
firði, andaðist í Borgarspítalanum
mánudaginn 19. janúar.
Sigurður Olgeirsson vélstjóri,
Langholtsvegi 181, er látinn.
Ingibergur Gíslason frá Sandfell,
Hólagötu 23, verður jarðsunginn frá
Landakirkju, Vestmannaeyjum,
laugardaginn 24. janúar kl. 14.
María Magnúsdóttir, Bræðraborg-
arstíg 55, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju á morgun, föstudag-
inn 23. janúar.
„Ég mun þreifa fyrir mér í málinu
í dag og útiloka ekki að til sáttafund-
ar verði boðað en það er þó fátt sem
eykur mér bjartsýni eins og málin
standa," sagði Guðlaugur Þorvaldsson
sáttasemjari í morgun.
Hann sagðist hafa verið í sambandi
Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák,
skipar nú 2.-3. sætið á alþjóðlega
skákmótinu í Wijk aan Zee í Hollandi
en í gær vann Helgi Englendinginn
Flear í 5. umferð mótsins. Helgi er
með 3,5 vinninga.
Efsta sætið á mótinu skipar Nigel
Short frá Englandi með 3,5 vinninga
eins og Helgi en eina biðskák að auki.
Jafn Helga er hollenski skákmaðurinn
Van der Sterren. í 4.-5. sæti á mótinu
eru þeir Kortsnoj og Nougeiras með 3
vinninga.
Aðalheiður Bergþóra Líkafróns-
dóttir frá Hrafnfjarðareyri, Hátúni
lOa, er lést þann 12. janúar sl., verð-
ur jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 23. janúar kl. 15.
Útför Arna G. Magnússonar vél-
stjóra, Tungu, sem lést 18. þessa
mánaðar fer fram frá Grindavíkur-
kirkju laugardaginn 24. janúar kl. 14.
Útför Hallfríðar Pálsdóttur frá
Hveragerði, fer fram föstudaginn 23.
janúar kl. 10.30 frá Fossvogskirkju.
Guðbjörg Halldórsdóttir, Vitateig
1, Akranesi, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju föstudaginn 23. jan-
úar kl. 14.15.
Ingibjörg Jakobína Bjarnadóttir,
Skúlagötu 1, Stykkishólmi, verður
jarðsungin frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 24. janúar kl. 15. Sæta-
ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni
kl. 9.
við deiluaðila í farmannadeilunni í
gær og sér heföi sýnst staðan óbreytt
frá því sem var þegar upp úr samn-
ingaviðræðum slitnaði í fyrrakvöld.
Nú er liðin ein nótt í viðbót og stund-
um breytast mál á skemmri tíma en
það. -S.dór
Önnur úrslit í gær urðu þau að
Kortsnoj vann Hulak og Miles vann
Gutman. Jafntefli varð í skákum Van
der Wiel og Van der Sterren, Nouger-
ias og Anderson og Sosonko og
Lubojevich en skák þeirra Short og
Zapata fór í bið.
Ekki er teflt á skákmótinu í dag en
meðal skáka sem tefldar verða á morg-
un, föstudag, er skák þeirra Helga og
Short og stýrir Short hvítu mönnunum
í þeirri viðureign.
-ój
Tilkynrdngar
Sameiginlegar samkomur
í tilefni Bænaviku
um einingu kristinna manna verða haldn-
ar sem hér segir: í kvöld kl. 20.30 í
Herkastalanum þar sem Erling E. Snorra-
son forstöðumaður aðventista predikar og
tvöfaldur kvartett frá Fíladelfíu syngur.
Föstudag kl. 20.30 í Aðventukirkju og
laugardag kl. 20.30 í Fíladelfíu. Allir eru
velkomnir á þessar samkomur.
Kirkjufélag
Digranesprestakalls
heldur fund í dag 22. janúar kl. 20.30 í
safnaðarheimilinu Bjarnhólastíg 26. Spil-
uð verður félagsvist. Félagar eru hvattir
til að fjölmenna og taka með sér gesti.
AEmæli
50 ára afmæli á í dag, 22. janúar,
Haraldur Stefánsson, slökkviliðs-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, Hofs-
lundi 13 í Garðabæ. Hann og kona
hans, Erla Ingimarsdóttir, taka á
móti gestum í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli þar í bænum, við
Kirkjulund, nk. föstudag milli kl. 17
og 19.
Hallvarður og Hafskip:
Rðdssaksóknari
vfld úr sæti
Farmannadeilan:
Útiloka ekki boðun sáttafundar í dag
Skákmótið í Wijk aan Zee:
Helgi skipar 2.-3. sætið
Athugasemd fiá
Gunnari G. Schram
I blaðinu 20. janúar birtist grein
eftir Guðmund Jónsson bónda þar
sem hann heldur því fram að ég
hafi rangtúlkað kosningalögin nýju
í kjallaragrein í DV fyrir tæpum
tveim mánuðum. Óhjákvæmilegt er
að leiðrétta þessi ummæli Guðmund-
ar. Ég hefi enga kjallaragrein skrifað
um skýringar á kosningalögum hér
í DV. Hins vegar átti einn af blaða-
mönnum DV símaviðtal við mig í
byijun desember og spurði um það
hvaða áhrif útstrikanir á listum
heföu samkvæmt nýju lögunum.
Greindi ég honum frá því, sem hann
birti í stuttri frétt, að nýju lögin
fengju kjósandanum aukið vald í
þeim efhum þar sem tillit væri nú
tekið að fullu til útstrikana en hefði
aðeins verið að einum þriðja sam-
kvæmt eldri lögum.
í fréttinni var einnig greint frá því
að 10-15% kjósenda gætu í samein-
ingu breytt röð manna á framboðs-
listum í kosningum. Þar var rætt
um þau lög sem í gildi voru til 1984
en ekki ákvæði nýju kosingalag-
anna. Samkvæmt þeim þurfa meira
en 50% kjósenda að gera breytingar
á listum til þess að þær hafi áhrif.
Kemur það skýrt fram í 115. gr. kosn-
ingalaganna og á ekki að þurfa að
valda neinum misskilningi eða verða
tilefhi til rangtúlkunar.
„Ég fékk bréfið í gær en vil ekki tjá
mig neitt um innihald þess að svo
komnu máli,“ sagði Hallvarður Ein-
varðsson ríkissaksóknari í morgun.
Bréfið sem um ræðir er frá Jóni
Magnússyni, lögmanni Ragnars
Kjartanssonar, fyrrum forstjóra Haf-
skips, og þar er sett fram krafa um að
ríkissaksóknari víki úr sæti í Haf-
skipsmálinu:
„Þér, herra ríkissaksóknari, gegnd-
uð embætti rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins við upphaf rannsóknarmeð-
ferðar málsins hjá RLR. Þér tókuð
ákvarðanir um málsmeðferð, kröfu um
gæsluvarðhald og mótuðuð að öllu
leyti vinnubrögð við rannsóknina, auk
þess sem þér gáfuð ítrekað mjög af-
dráttarlausar lýsingar í fjölmiðlum á
hvemig rannsókn miðaði og fleira
varðandi málið á fyrstu stigum þess
hjá RLR,“ segir meðal annars í þréfi
Jóns Magnússonar. „Á síðari stigum
verður farið í mál við íslenska ríkið
vegna mistaka RLR og fleiri við rann-
sókn málsins." -EIR