Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Page 3
■j- MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987.
3
+
Fréttir
Bílvelta í
Hveradölum
Það óphapp varð í Hveradölum um
miðjan dag í gær að bíll fór út af vegin-
um og valt.
Mun bíllinn hafa lent á hálkubletti
með þeim afleiðingum að bílstjórinn
missti vald á honum. Betur fór þó en
á horfðist því lögreglan á Selfossi
hjálpaði manninum að koma bílnum
aftur upp á veginn. Ók hann síðan á
brott og slapp þannig með skrekkinn.
MSS
Hörkuárekstur
á Akranesi
Hörkuárekstur varð á Akranesi um
miðjan dag á föstudag. Var rútu ekið
aftan á fólksbifreið sem hentist aftan
á þriðja bílinn. Óhappið gerðist á
Skagabrautinni.
Bílamir skemmdust mjög mikið og
er einn þeirra talinn ónýtur. Fólkið
sem í þeim var slapp með smávægileg
meiðsli.
-JSS
Ekki eru allar ferðir til fjár, til dæmis ekki þessi sem farin var á laugardags-
morguninn sl. Jeppinn var að nálgast umferðarljósin á Sóleyjargötunni
þegar bílstjórinn hemlaði. Skipti engum togum að billinn snerist og valt.
Hann skemmdist þó litið sem ekkert og gat bilstjórinn haldið áfram ferð
sinni þegar bilnum hafði verið komið á hjólin aftur. DV-mynd S
Eldur í
innréttingu
Rétt fyrir hádegið í gærmorgun var gleymst á eldavél meðan húsráðendur
slökkviliðið kvatt að Stigahlíð 63, sem brugðu sér ffá og því fór sem fór.
er í eigu kaþólsku kirkjunnar í Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins
Reykjavík. Þar reyndist vera eldur í og urðu skemmdir ekki miklar.
eldhúsinnréttingu. Hafði straumur -JSS
Kviknaði í
rúmfötum
f hádeginu í gær var slökkviliðið
kvatt að húsi sem stendur á mótum
Sunnuvegar og Holtavegar. Þar hafði
kviknað í rúmi í herbergi inn af eld-
húsi.
Húsið er í eigu KFUK og býr þar
einn maður sem er húsvörður. Hann
var ekki heima þegar eldurinn kom
upp.
Er talið að kviknað hafi í út ffá raf-
magnsofni á veggnum fyrir ofan
rúmið. Skemmdir urðu ekki miklar.
-JSS
Sinubrunar
byrjaðir
Slökkviliðið í Reykjavík var kallað
sex sinnum út um helgina vegna sinu-
bruna. Jörð er orðin mjög þurr og því
auðvelt að kveikja í sinunni. Þetta eru
böm og unglingar farin að notfæra sér
og vom eldspýtur víða á lofti um helg-
ina.
Slökkviliðið var meðal annars kall-
að út á Seltjamames, upp í Breiðholt
og í Fossvogsdalinn. Á fyrstnefnda
staðnum hafði verið kveikt í sinu við
Nesveg. Var eldurinn orðinn nokkuð
magnaður þegar slökkviliðið kom á
staðinn. Lá nærri að hann læsti sig í
sendibíl, sem stóð við Nesveginn.
Tókst þó að ráða niðurlögum eldsins
áður en óhöpp hlutust af.
-JSS
TROMPREIKNINGUR
SPARISJÓÐANNA
«ÖRUGGUR
með raunvöxtum
og verðtryggður reikningur
** v n/v í trompreiknings og verðtrygging er
borin saman við sérstaka trompvexti á 3ja mánaða
fresti og þú færð þau kjör sem hærri eru
H EKKERT úttektargjald
*il! ÞUgrípur til peninganna hvenær
sem þú þarft á þeim að halda því
Trompreikningurinn er alltaf laus