Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Page 6
6 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987. Atviimumál Steypuskemmdir hafa ekki aukist hin síðari árin segir Haraldur Ásgeirsson hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðaríns: Haraldur Ásgeirsson, fyrrum for- stjóri Rannsóknastofaunar bygginga- riðnaðarins, fallyrðir í bréfi til DV að það sé rangt, sem fram kom í viðtali við Bjama Jónsson tæknifræðing, að steypuskemmdir hafi aukist hin síðari ár og að hundruð nýlegra húsa væru stórskemmd eða ónýt. Kallar Harald- ur það sem í viðtalinu kom fram sleggjudóma og vanþekkingu á stej'puskemmdum. Tíðindamaður DV fór á fund Haraldar til að ræða þetta mál nánar og spurði fyrst hvort hann kannaðist ekki við að steypuskemmdir hefðu aukist eftir 1980 ef gengið væri út frá því að þá hefði tekist að kom- ast fyrir alkalískemmdimar frægu? „Við könnumst ekki við að steypu- skemmdir hafi aukist eftir þennan tíma sem þú nefair, könnumst alls ekki við það.“ Því er haldið fram að steypustöðvar hafi minnkað sementsmagn í steyp- unni eftir að farið var að nota kísilryk í sementið, kannist þið við að þetta sé rétt? „Ég vil ekkert segja um það hvort steypustöðvamar hafa dregið undan sement, og minnkandi sementssala síðan 1980 segir ekkert um það held- ur. Það geta legið aðrar orsakir til þess.“ Hvað segir þú um þá staðreynd að við manni blasa ryðtaumar á nýlegum húsum, og þvi er haldið fram að vatn komist inn í steypuna og bindijámið lyðgi og af verði frostskemmdir? „Ryðskemmdir í jámabindingum era ekki það sama og frostskemmdir. Það em önnur atriði sem valda þeim. Þeg- ar vatn kemst inn í jámin og þau ryðga, þá bólgna þau út og valda skemmdum á steypunni og hún spring- ur. Rétt gerð steypa á að þola að fijósa með vatni í. Hitt er annað að ef bindi- jám em sett of utarlega í mótin, þá er hætta á að steypan skemmdist þeg- ar jámið ryðgar." Því er haldið fram að eftir að hin svokallaða sjónsteypa kom til og hætt var að pússa hús að utan hafi veðr- unarskemmdir steypunnar aukist? „Það er heldur ekki rétt. Hitt er annað, að segja má að sjónsteypu sé hættara við ryðskemmdum en þegar pússað var, en ég kannast ekki við að frostskemmdir hafi aukist síðan sjón- steypan kom til sögunnar." Kanntu skýringar á því að hús, sem steypt vom á árunum eftir stríð hafa algerlega sloppið við steypuskemmdir, því hefur verið haldið fram að menn hafi þá ekki þekkt efnið og því notað meira af því, til dæmis sementi, og því séu þau svona sterk? „Það er rétt að sprungur mynduðust ekki í gömlu steypunni. Menn notuðu þá minna sement en nú, eri ekki meira. Vinnuafl var ódýrt og mest var þetta unnið á höndum. Vegna þess að menn notuðu minna sement varð samdráttur í steypunni minni og þar af leiðandi minna um sprungur." Er þá ráðið að minnka sementsmag- nið? „Nei, ekki ef menn ætla að nota nútima tækni við að steypa upp hús, þá dugir það ekki. Það var allt annað þegar verkið var unnið með höndum." Því er haldið fram að ofaotkun ví- bratora eigi stóran þátt í að loft fer úr steypunni og hún þoli verr veðrun. „Loftblendiinnihald steypu minnkar ekki við notkun víbratora. Menn verða að gera greinarmun á loftinni- haldi og loftblendi. Loftblendi eru míkróbólur í pastanum og notkun ví- bratora hefur lítil áhrif á loftblendið. Og það er einmitt loftblendið sem ræð- ur veðrunarþoli steyp- unnar. Það er ekki rétt að veðrunar- þol steypunnar verði minna þótt loft í stórum bólum minnki.“ Það er ljóst að þú viðurkennir fæst af því sem fram kom í viðtalinu við Bjama Jónsson. Það er þó staðreynd að steypuskemmdir eiga sér stað og þótt menn séu ekki sammála um í hve miklum mæli þær séu. Hveijar eru þá orsakir þessara steypuskemmda? „Það er ekkert einfalt að svara því og orsakimar margar. Það er ekki auðvelt að ganga að steypuskemmdu húsi og segja að orsökin sé þessi eða hin. Eitt af því sem veldur skemmdum er ef jámabindingin er sett of utarlega í mótin. Það má glöggt sjá ryðblettina og þá veit maður orsökina." En ef ekki er um ryðskemmdir að ræða en maður sér sprungumar eða að molnað hefur úr steypunni, hveijar em orsakimar? „Ég get ekki svarað því hér á staðn- um.“ Hvað segir þú um þá fallyrðingu að steypuprufur hafi lítið eða ekki verið teknar úr húsum sem byggð hafa ve- rið í Grafarvogi? „Ég dreg það í efa, enda er það ekki víst að fólkið, sem á húsin, viti um það hvort sýni hafa verið tekin. Ef bygg- ingaraðili óskar eftir sýnatöku, þá fær hann niðurstöður rannsóknarinnar, aðrir ekki. “ Ertu með þessu að segja, að ef ég væri að byggja hús og steypusalinn léti taka sýni og steypan reyndist ekki í lagi, að ég sem verkkaupandi yrði ekki látinn vita af Rannsóknastofaun byggingariðnaðarins? „Nei, þú yrðir ekkert látinn vita af því ef þú hefðir ekki beðið um sýnatök- una. Enda htlar líkur fyrir því að Rannsóknastöfaun byggingariðnað- arins vissi að þú værir væntanlegur eigandi að henni. Aðeins sá sem óskar eftir henni fær að vita niðurstöðuna. Þykir þér þetta óeðlilegt?" Já, datt út úr blaðamanni. -S.dór Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%» hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbund. 8.5-10 Allir nema Ib Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 10-15 Sb 6 mán. uppsögn 11-19 Vb 12 mán. uppsögn 12-20 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 18-19.75 Bb.Sp Avisanareikningar *-10 Ab Hlaupareikningar J-7 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, Lb.Úb.Vb 6mán.uppsögn 2,5-4 Ab.Úb Innlán með sérkjörum 10-20 Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 5-6 Ab Sterlingspund 10-10.5 Ab Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab.lb Danskar krónur 8.5-9,5 Ab.Lb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtrYggð Almennir víxlar(forv.) 16.5-20 Lb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21-22 Almenn skuldabréf(2) 17.5-21 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 17.5-21 Lfa Utlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 5.75-6.75 Lb Til lengri tima 6.25-6.75 Bb.Lb (Jtlán til framleiðslu isl. krónur 15-20 Sp SDR 7.75-8.25 Lb.Úb Bandaríkjadalir 7.5-7.75 Sb.Sp Sterlingspund 12.5-13 Lb.Úb.Vb Vestur-þýsk mörk 5-6.5 Lb.Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-8.5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala feb. 1594 stig Byggingavisitala 293 stig Húsaleiguvisitala Hskkaði 7.5% l.jan. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 113 kr. Eimskip 300 kr. Flugleiðir 310 kr. Hampiðjan 140 kr. Iðnaðarbankinn 135 kr. Verslunarbankinn 125 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV á fimmtudög- Hákon Olafsson afhendir Haraldi Asgeirssyni viðurkenningu sem heiðursfélaga í Steinsteypufélaginu. Sleggjudómar og fákunnátta um steypuskemmdir Það má teljast býsna alvarleg yfir- lýsmg er lýst er yfir því í DV, að „hundruð húsa séu stórskemmd eða ónýt; húsa sem byggð eru eftir 1981. Það hlýtur líka að slá óhug á eigendur nýrra steinsteypuhúsa að það er tæknifróður maður sem legg- ur blaðinu til upplýsingamar. Mönnum hrýs hugur við að byggja úr svo ótraustu efai og fara yfir í það að byggja úr innfluttum efhum, og gæti það verið að fara úr öskunni í eldinn. Sem betur fer er þessi hrikalega frásögn blaðsins byggð á sleggju- dómum manns sem þyrfti að kynna sér málin betur. Vissulega er margt aðfinnsluvert við byggingarstarf- semina í landinu, en ýkjur af þessu tagi eru ekki til góðs. Það getur hinsvegar valdið miklum skaða ef virt dagblað leitar sér svo ófall- kominnar ráðgjafar sem í greininni kemur fram. Sú ryðgun jáma, sem sýnd var með myndum stafar ekki af frostskemmdum, og annar rök- stuðningur fyrir sleggjudómunum var lítið sannfærandi fyrir þá sem til þekkja, - en hann getur ef til vill nægt til þess að blekkja marga. Leitt er vissulega til þess að vita að endurbætur á sementi okkar hafa verið misnotaðar en þversögn er það að kenna þeim um. Kísibyksíblönd- un í sementið eykur þéttleika sementspastans og bætir því lyð- vemdina. Eins er það að aukinn styrkleiki sementsins leyfir aukna loftblendinotkun, sem er ömggasta veðrunarvömin í venjulegum steypum. Það var vægast sagt mikið lán fyr- ir byggingariðnaðinn að það ráð var upp tekið að mala kísifryk saman við sementið og auka þar með gæði þess og ömgga notkun. Eins var það mikið happ að efai fundust sem gátu gert gamla steypu vatnsfæfaa - síl- anefain, sem samtímis hafa orðið grundvöllur að framleiðslu yfir- borðsefaa sem bera af áður þekktum þekjuefaum. Gjaman megum við minnast þess að við búum á þeim stað á jarðar- kringlunni, þar sem slagviðrasamara er en annarsstaðar. Þessvegna er svo mikilvægt að eiga þétt hús, og stein- steypan hefir, þrátt fyrir allt, reynst vel. Ég óttast líka frekar að ekki verði nægjanlega vandað til frá- gangs á háeinangmðum timbur- húsum en á steinsteypu. Rannsóknir undanfarandi ára hafa aukið mikið þekkingu okkar á veð- urvömum. Þetta hafa innlendir framleiðendur getað notað sér jafat steypuframleiðendur, byggjendur og þekjuefaaframleiðendur. Þetta ætti líka að vera ljóst hverjum þeim sem lítur í kring um sig og skoðar hið bætta ástand í hinu byggða um- hverfi okkar. Samt skýtur alltaf öðm hveiju upp innfluttum tillögum að patentlausnum á veðrunarvanda okkar, tillögum sem oft em byggðar á lítilli þekkingu á aðstæðum okkar, en þeim mun harðari verða sleggju- dómamir. Haraldur Ásgeirsson. um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.