Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Side 16
16 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987. Spumingin Hver telurðu að sé farsælasta lausnin í fræðslustjóramál- inu? Björk Guðjónsdóttir húsmóðir: Þetta var mjög harkaleg aðgerð hjá menntamálaráðherra og þetta mál þarf að að rannsaka til hlítar. Ég held að besta lausnin sé sú að skipa hlutlausa rannsóknarnefnd. Anna Pétursdóttir deildarstjóri: Þetta á eðlilega ekki að vera svona stórpólitískt mál eins og þetta er núna og því langæskilegast að skipa hlutlausa rannsóknarnefnd svo öll kurl komi til grafar. Guðný Einarsdóttir húsmóðir: Úr þessari flækju verður ekki leyst nema að skipa hlutlausa nefnd til þess að sanngjöm og rétt málalok fáist. Snæbjörn Jörgenssen afgreiðslu- maður: Ég hef ekkert fylgst með þessu og er því alveg nákvæmlega sama. Friðrik Andrésson múrarameist- ari: Nú, það er búið að reka manninn og við það á að sitja, ekki satt? Fræðslustjórinn fór ekki að fyrir- mælum yfirboðara og því þykir mér sjálfsagt að reka manninn. Stefán Garðarsson afgreiðslu-. maður: Farsælasta lausnin er vitanlega að rannsaka málið í kjöl- inn og heppilegast er að fá hlutlausa nefnd til þess. Lesó Morgunveðurlýsingar: Vantarfyrir Mið-Norðurland Helgi sjómaður skrifar: Ég hringdi í Veðurstofu Islands 7. febrúar kl. 8, fékk samband við veð- urfræðing og bað hann að segja mér hvemig veðurhorfumar væm fyrir Mið-Norðurland þennan dag. Góða lýsingu fékk ég á væntanlegu veðri dagsins. Hringt var í veðurstofú vegna þess að veðurlýsingar kl. 6.45 em ekki fyrir Mið-Norðurland, það er frá Bergsstöðum í Skagarfirði til Mán- árbakka við Skjálfanda. - Það er ansi slæmt að hafa ekki morgun- veðurlýsingar fyrir Mið-Norðurland, það er miðin út af Tröllaskaga, er sagt við veðurfræðing og það ekki einu sinni frá Grímsey sem er mikil- vægasti veðurathugunarstaður fyrir Norðurland. Veðurfræðingurinn svarar: Það er ekki hægt að ganga að afarkostum veðurathugunar- manns í Grímsey en ef J)ið borgið þá væri það athugandi. Ég þakkaði bara fyrir mig. Ekki er hægt að tala um öryggis- mál við veðurstofuna, hugsaði ég undrandi, nema „ef þið borgið“. Hvað meina veðurfræðingar? Hafa þeir sem sækja fisk í sjó ekki vænst þess að öryggismál sjófarenda séu eins fullkomin og hægt er eða em það krónumar sem eiga að ráða þessum öryggismálum? Markús Á. Einarsson, deild- arstjóri veðurspádeildar, svarar: Ef rétt er hermt í lesendabréfinu, hefur svar veðurfræðings sjálfsagt dottið út úr honum óvart enda engan veginn rétt. Það hefur verið og er vandamál að fá gerðar veðurathug- anir að næturlagi og kemur þá fleira til en launamál athugunarmanna. Ég tel líklegt að óskalistar-veður- fræðinga og sjómanna fæm vemlega saman í því efrii. Rétt er að fram komi að í veðurfregnum kl. 6.45 að morgni em lesin veðurskeyti frá kl. 6 frá: Bergsstöðum, Akureyri, Mán- árbakka og Raufarhöfn. Einnig veðurskeyti frá Hrauni á Skaga frá því kl. 3. Loks má ekki gleyma að þá er vitaskuld lesin veðurspá sem ég leyfi mér að vona að komi að gagni. Að öllu samanlögðu eru gosdrykkir i dósum æskilegri söluvara en i glerflöskum og ætti að stuðla að því að tá sem tlesta til að nota dósir undir gosdrykki. Dósimar hentugri umbúðir Birgir Gunnarsson skrifar: Allir þekkja þau vandræði sem skap- ast vegna glerbrota sem oft má sjá og finna fyrir á götum úti og víðar. Aðal- lega má rekja þessa vanvirðu til brotinna gosdrykkjaflaskna. Nú upp á síðkastið hefur komið á markaðinn annað fyrirbæri sem leysir'glerflöskur af hólmi að ákveðnu marki, nefnilega plastflöskur. Þær em skömminni skárri. Gallinn er hins vegar sá að þær em fyrirferðarmiklar og að sögn er erfitt að eyða þeim eða koma fyrir kattamef og ekki hægt að endurvinna efnið í þeim. Nú hefur enn ein nýjung skotið upp kollinum sem umbúðir fyrir gos- drykki, dósir úr áli. Þetta er til mikilla bóta og í alla staði mjög hentugar umbúðir. Það hlýtur að bæta um- gengni vemlega að losna við glerbrot- in. Einnig er hægt að endurvinna dósaefnið ef því er safhað saman. Að öllu samanlögðu em gosdrykkir í dósum æskilegri söluvara en í glerfl- öskum og ætti að stuðla að því að fá sem flesta til að nota dósir undir gos- drykki. Það mætti upplýsa hvort dósimar em ekki líka ódýrari umbúð- ir en glerið eða plastið og gætu kannski lækkað framleiðsluverð og þar með útsöluverðið. Hvað sem því líður em dósimar mun léttari en glerið og auðveldara að þrífa þær af götum en glerbrotin sem em hvimleiðir blettur á götum borgarinn- ar og víðar eftir svallnætur helgarinn- ar. Skríll á Hlemmi Sigrún K. hringdi: Það er ekki lengur hægt að bjóða farþegum upp á þetta, að biðskýlið sé alltaf fullt af alls konar rumpulýð. Mér stendur ekki lengur á sama er börnin mín taka strætó þama og ég er búin að harðbanna þeim að fara inn í skýlið. Mér er spum, hverjum á ský- lið að þjóna, farþegum eða skrílnum? Þó að maður viti að húsverðimir séu allir af vilja gerðir til að hafa stjórn á þessu þá þarf meira til. Það þyrfti að fá menn eins og Jón Pál til þess að reka þetta lið út, það hlýtur að geta fengið sér æskilegri samastað en þennan. „Mér er spurn, hverjum á skýlið að þjóna, farþegum eða skrílnum?" Böðullinn og skækjan: Heilsteypt verk Gunnar Sveinbjömsson, Svanur Krist- bergsson og Finnbogi Hilmarsson skrifa: Við félagamir vorum mjög hrifnir af þessari stórgóðú mynd, Böðullinn og skækjan. Handrit leikrit og klipp- ing leggst á eitt að skapa heilsteypt verk. Én þó skyggir tónlist Hans Erik Philip vemlega á heildarsvip myndar- innar, sérstaklega er okkur hugleikið stef sem leikið var fyrir eina aftökuna og samræmdist illa annars stórgóðri sviðsetningu. Leikarar stóðu sig með prýði, sérstaklega hin unga Stephanie Sunna í hlutverki skækjunnar og ekki síður Niklas Ek í hlutverki böðulsins. í sauðalitunum minnti verkið á hand- brögð sovéska leikarans Tarkovsky og sérstaklega mynd hans, heimþrá (Nostalgia). „Við teljum að Hrafn Gunnlaugsson hafi bætt einni skrautfjöðrinni í hatt sinn með þessari mynd og við vonum að honum takist eins vel með Tristan og ísold.“ ÓalkalMrkt steypuefni Þorsteinn Halldórsson skrifar: Vegna frétta í DV um alkalískemmd- ir í Hallgrímskirkju vil ég taka eftir- farandi fram. Hallgrímskirkja er ekki steypt af Steypustöðinni h/f og Laug- ardalslaugin, sem er stórskemmd og á eftir að kosta Reykjarvíkurborg millj- ónir að gera við, er ekki steypt af Steypustöðinni heldur. Steypustöðin hefur framleitt óalkalívirkt steypuefni síðan 1956 að Esjubergi á Kjalarnesi og varaði við alkalískemmdum þegar með heilsíðuauglýsingu í Morgun- blaðinu 7. júlí 1967, en á okkur var ekki hlustað. Aftur á móti steypti Steypustöðin allt fyrir t.d. efstu hæðina á bakhúsi í Þverholti 17 fyrir 40 árum, sem DV ætti að getað skoðað, Háskólabíó og Hótel Sögu fyrir um 30 árum o.fl. Betri meðmæli getur ein steypustöð ekki fengið. Með lögum skal land þyggja Ein sem ekki er fædd hér hringdi: Við kusum Sverri og verðum því að sætta okkur við framkvæmdir hans sem ég treysti honum alveg fyllilega fyrir. Með lögum skal land byggja og því þurfum við mann eins og Sverri til að framfylgja lögunum. Sverrir, ég óska þér alls hins besta í þínu ströggli. Sultarkjör launþega Friðrik hringdi: I könnún, er kom fram í DV nú í síðustu viku, er unnin var af Þjóð- hagsstofnun, kemur fram að meðal- laun í landinu séu 63 þús. á mann. Mér finnst þetta einmitt endurspegla þann launamismun sem er milli ríkra og hinna lægra settu, því eins og al- þjóð veit þá er þorri launafólks í landinu með mun lægri laun en 63 þús. Ég persónulega sjálfur mundi hoppa hæð mína gæti ég státað mig af þessum launum en því miður finnst mér þetta sýna óréttlætið er ríkir í launamálym hér á landi. Þeir sem minnst mega sín verða að grátbiðja um hvem einasta eyri sem þeir fá í launahækkun. Og þegar á allt er litið er kannski gott að vita af því að allir þurfa ekki að lifa við sultarkjör í landinu eins og venjulegt alþýðufólk. Það er vissu- lega gott að vita til þess að allir þurfi ekki að búa við sömu kjör og maður sjálfur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.