Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987.
17
DV
Lesó
Léleg
þjónusta
Finnbogi Marinósson skrifar:
Eiginlega var það aldrei ætlunin að
setja í blað þetta sem hér fer á eftir
en eftir þá upplifun sem ég hef orðið
fyrir get ég ekki lengur á mér setið.
Það vildi svo til að ég sá mér ástæðu
til að bjóða unnustu minni út að borða
og tel ég tilefnið hafa verið það gott
að ekki átti að skera við nögl. Þar sem
við höfðum fengið piýðisgóðan mat á
kínverska matstaðnum Mandarín í
Tryggvagötunni lá leið okkar þangað.
1 förina slóst vinkona okkar svo við
vorum 3 sem reyndum þjónustuna á
Mandarín þetta kvöld. Við vorum
frekar seint á ferðinni (10.45) og var
staðurinn fúllsetinn. Okkur var tjáð
að borð væru að losna og við gætum
fengið okkur sæti á meðan við biðum.
Gott mál og vel þegið. Á meðan við
biðum eftir að borð losnaði var komið
til okkar og við vorum beðin um að
panta þar sem verið væri að loka eld-
húsinu. Þar sem við vorum seint á
ferðinni fannst okkur þetta sjálfsagt.
Við pöntuðum en í flýtinum gleymdist
að panta rauðvín sem drekka átti með
matnum. Að vörmu spori var okkur
svo tilkynnt að nú væri borð laust og
ekkert að vanbúnaði að setjast. Við
settumst og pörtuðum rauðvin, að
vísu ekki hjá þeim sama og tók matar-
pöntunina. Það reyndist ógemingur
að ná athygli hans. Þegar hér var
komið var orðið allhávært á staðnum
vegna söngs mjög drukkinna kvenna
sem virtust hafa komið í hóp saman
til að borða. Þetta setti okkur töluvert
út af laginu vegna þess að við áttum
von á stemmningunni rólegri og vina-
legri í stað þess að líða eins og
staðurinn væri hávær drykkjupöbb.
En við ákváðum að þrauka þar sem
við áttum von á góðum mat.
Eftir litla bið var komið með kjöt-
bakka á borðið. Gott, maturinn var
að koma og biðin iiafði ekki verið löng.
En um nokkurt skeið kom ekkert
nema þetta. Þá voru hrísgrjón sett á
eitt hom borðsins, af þjóni sem þaut
framhjá. Þá leið drykklöng stund og
ekkert gerðist. Við vildum ekki snerta
matinn þar sem við þóttumst ekki
hafa fengið hann allan og ekkert ból-
aði á rauðvíninu sem átti að drekka
með matnum. Þá birtist stúlka sem
setti það sem við vildum halda sósur
hússins á borðið á sama hátt og hrís-
grjónin komu. Við þetta ofbauð okkur.
Við vorum búin að sitja í rúman hálf-
tíma og þar af með kjötið í einar 25
mínútur án þess að fá nokkuð sem
gæti flokkast undir þjónustu. Við
gerðum heiðarlega tilraun til að vekja
á okkur athygli en sá þjónn sem tekið
hafði af okkur matarpöntun mátti vera
að öllu nema að veita okkur athygli.
Þegar við höfðum beðið dálítið lengur
stóðum við upp, klæddum okkur og
gengum út án þess að nokkur virtist
veita því eftirtekt.
Ekki vitum við hvort rauðvínið átti
að drekkast eftir á en það sáum við
aldrei, hefðum við gefist upp og byrjað
að borða eftir nokkra bið þá var kjö-
tið farið að kólna. A.m.k. var ekki
undir nokkrum kringumstæðum hugs-
anlegt að hafa ánægju af máltíðinni
eftir framangreinda meðferð. Og allra
síst eftir að okkur var hugsað til þess
að allt þetta átti að kosta á fjórða
þúsund.
En það var ekki þetta sem fékk mig
til að skrifa um þetta. Ég nefnilega
hringdi í Mandarín og bað um eig-
anda. Nú ég fékk samband við
Guðmund nokkum Siguijónsson og
byijaði að segja frá upplifun kvölds-
ins. Eftir að ég áttaði mig á að þetta
gæti orðið langt mál og spurði hvort
ég ætti að gera langa sögu stutta og
segja frá niðurstöðunni var svarið sem
ég fékk: „Ef þetta ætlar að verða eitt-
hvað langt mál, vinurinn, þá hef ég
ekki tíma til að hlusta á þig. Það er
svo mikið að gera.“
Stöð 2:
Óhentugur sýningartími
V.A. hringdi: Mig langaði að koma
þeim tilmælum til Stöðvar 2 að sýna
góðar bíómyndir ekki fyrr en eftir
fréttir svo öllu vinnandi fólki gefst
kostur á að horfa á þær. Núna um
daginn var nefnilega sýnd mjög góð
mynd með Ryan O’Neal kl. 5 um
daginn, það var svo mikil synd að
missa af henni.
Ég er mjög ánægður með Stöðina
sem slíka og það eina sem ég get
sett út á er þessi sýningartími á bíó-
myndunum.
NISSAN SUNNY
BÍLL ÁRSINS
1987
54ra manna dómnefnd bílagagnrýnenda
í Japan kaus einróma
NISSAN SUNNY
BÍLÁRSINS 1987
í dómnum var tekið tillit til:
Útlits - hönnunar - gæða - aksturseiginleika
og verðs.
Til úrslita kepptu að þessu sinni 45 bílar
af öllum gerðum og stærðum
SIGURVEGARINN VAR
M Nk
M1957-1987
% 30 J
NI5SAN 5UNNY
Bílasýning laugardag og
sunnudag kl. 14.00- 17.00