Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Page 35
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987.
51
Sviðsljós
Stjörnupassarinn mikli
Maðurinn sem allir vilja fara út með í Hollívúdd heitir Doug Collins. Hann er einkalífvörður
að atvinnu og hefur gætt lífs og lima flestra þeirra sem teljast frægir og ríkir í hinum vest-
ræna heimi. Eftirlætisverkefnin eru Barbra Streisand og Elizabeth Taylor. Liz fær reyndar
þá einkunn hjá vöðvabúntinu að hún sé skapbesta og elskulegasta súperstjarnan sem fyrirf-
innst í Hollívúdd og hann tekur það mjög nærri sér að vera bókaður einhvers staðar annars
staðar þegar Liz þarf á vörslu að halda.
Til þess að hægt verði að gæta manna sem allra best þurfa þeir að læra nokkrar leikregl-
ur. Ekki að taka til fótanna eins og Timothy Hutton gerði einu sinni því það er ekki nokkur
leið að verja þann sem er á harðahlaupum i allar áttir. Þó getur flótti verið sú einasta leið í
stöku tilviki og á O’Hare flugvellinum í Síkagó slengdi Collins Shaun Cassidy á bakið og
hljóp allt hvað af tók undan hundrað og fimmtíu skrækjandi stelpum.
„Ég var svarthærður þegar ég byrjaði í bransanum," segir Dough Collins. „En núna er ég
löngu orðinn gráhærður. Það er ótrúlega slítandi að standa í þessu brasi árum saman.“
Úti að kvöldlagi i Hollivúdd meö Shirley
McLaine sér við hlið.
Collins var lífvörður önnu prinsessu á
ólympiuleikunum árið nítján hundruð áttatíu
og fjögur.
Rokkstjörnurnar eru erfiðastar að mati
kappans. Enginn undrast þá staðhœfingu
þegar Sean Penn og Madonna eru annars
vegar.
Barbra Streisand er eftirlætisverkefnið.
Stacey Smith og Paul Young voru saman i tvö ár og þarna lék allt í lyndi.
Ástar-
flækja
Tvær súperstjörnur Breta berjast
nú um sömu konuna og heitir sú
útvalda beggja Stacey Smith. Fyrir
tíð Edda var Stacey með Paul Young
og er nú ljóst að hún á von á barni
með þeim síðamefnda. Það kemur
samt ekki í veg fyrir að Eddie Kid
haldi sínu striki - Stacey ætlar hann
að halda.
„Jú, jú, hún er komin þrjá mánuði
á leið og hefur alltaf verið ákveðin
í því að eiga barnið,“ segir Eddie.“
Því mun ég styðja hana í ákvörðun-
inni og ætla bara sjálfur að reynast
til fyrirmyndar sem stjúpfaðir.“
Hann veit hvað hann vill - Eddie
Kid!
Eddie Kid lætur það ekki á sig fá þótt kærastan eigi von á barni með öðrum.
Gestadansari kvöldsins var Ástrós Gunnarsdóttir sem er nýkomin að
utan úr dansnámi.
Danshópurinn Dansgallerý i einu atriðinu.
Danstilþrif
Síðastliðinn laugardag efndi danshópur á vegum Dansstudíós Sóleyjar til jass-
danssýningar í nýju húsnæði dansskólans að Engjateigi við Sigtún.
Danshópurinn kallar sig Dansgallerý og eru í honum þrettán valdir dansarar
sem æfa reglulega og koma fram á sýningum. Markmið þeirra er að fara til
útlanda með sýningu og til að gera það kleift safna þau ágóðanum af sýningun-
um í sjóð.Cornelíus Carter æfir hópinn og semur dansana.Færri komust að
en vildu svo sýningin verður endurtekin innan tíðar.
t *