Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987. Atviimumál Loðnufiystingin: Japanskir eftirlits- í Eyjum Óraar Garðaisson, DV, Vestnteyjum; I Vestmannaeyjum eru nú staddir nokkrir japanskir eftir- litsmenn, fulltrúar loðnukau- penda. Fylgjast þeir með löndun og fara á milli frystihúsanna og leggja blessun sína yfir vinnsl- una. Þetta þýðir að sjómenn þurfa að vanda meðferð loðnunn- ar sérstaklega. Þeir þurfa að hreinsa lestar vel eftir löndun. Loðnan er ísuð og er hámarksafl- inn, sem bátarnir þrír, sem landa í Eyjum, koma með að landi, 300 tonn í hvert sinn. Japanirnir fylgjast mjög grannt með þessu. Þeir ákveða einnig stærðarflokkunina. Enda þótt mönnum finnist stundum nóg um vandvirkni þeirra og nákvæmni fylgir því sá kostur að eftir að þeir eru búnir að samþykkja þá íoðnu sem fer til vinnslu og taka hana út eftir frystingu er loðnan þeirra. Þurfa þá seljendur ekki að hafa meiri áhyggjur af vörunni þannig að ekki er hætta á neinum bakreikningum eins og stundum hefur viljað brenna við í útflutn- ingi á sjávarafurðum. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverötryggð Sparisjóðsbækur óbund. 8.5-10 Allir nema Ib Sparireikningar 3ja món. uppsögn 10-15 Sb 6mán.uppsögn 11-19 Vb 12 mán. uppsögn 12-20 Sp.vél. 18 món. uppsögn 18-19,75 Bb.Sp Avisanareikningar 3-10 Ab Hlaupareikningar 3-7 Sp Innlán verðtryggð Sparircí kningar 3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, Lb.Úb.Vb 6 mán. uppsögn 2,5-4 Ab.Úb Innlán með sérkjörum 10-20 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-6 Ab Stcrlingspund 10-10,5 Ab Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab.lb Danskar krónur 8,5-9,5 Ab.Lb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 16.5-20 Lb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21-22 Almenn skuldabréf(2) 17,5-21 Lb Viðskiptaskuldabréf(l) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 17.5-21 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf Að 2.5 árum 5,75-6,75 Lb Til lengritíma 6,25-6,75 Bb.Lb Útlán til frarnleiðslu Isl. krónur 15-20 Sp SDR 7,75-8,25 Lb.Úb Bandaríkjadalir 7,5-7,75 Sb.Sp Sterlingspund 12,5-13 Lb.Úb.Vb Vestur-þýsk mörk 6-6,5 Lb.Úb Húsnæðislán 3.5 Lifeyríssjóðslán 5-6,5 Dráttarvextir 27 VlSITÖLUR Lánskjaravisitala feb. 1594 stig Byggingavisitala 293 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði7,5%1.jan. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 113 kr. Eimskip 300 kr. Flugleiðir 310 kr. Hampiðjan 140 kr. Iðnaðarbankinn 135 kr. Versfunarbankinn 125 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp=Sparisjóðimir. Ullariðnaðurinn: Niðurgreiðslur þurfa að vera 100 krónur á kíló ef selja á ullina út, segir Kristinn Amþórsson hjá iðnaðardeild Sambandsins „Það liggur alveg ljóst fyrir að við kaupum ekki meira af íslenskri ull fyrr en fyrir liggur hvort frekari nið- urgreiðslur fást frá ríkinu. Þegar svo er komið að við fáum ekki nema 100 krónur fyrir kílóið erlendis af hvítri úrvalsull og svona 15 krónur fyrir mislita, eftir að hafa safiiað ullinni saman frá bændum og þvegið hana, þá sjá allir að verð eins og 90 til 130 krónur fyrir kílóið til bænda nær engri átt,“ sagði Kristinn Amþórs- son, forstjóri iðnaðardeildár Sam- bandsins á Akureyri, í samtali við DV. Niðurgreiðslur ríkisins hafa verið 75 krónur á kílóið og sagði Kristinn að það væri alveg lágmark að niður- greiðslumar fæm uppí 100 krónur á kílóið nú þegar nýtt verðlagstímabil hefst 1. mars, ef ullarverksmiðjumar ættu að halda áfram að kaupa ull af bændum. Kristinn sagði að verð á ull á heimsmarkaði væri mjög lágt og nefndi sem dæmi að Sovétmenn væm að bjóða mislita ull fyrir nokkrar krónur kílóið. Við þetta væri engin leið að keppa. Þá nefndi hann líka að tískulitir í ullarfatnaði væm nú mjög ljósir en íslenska ullin væri svo gul að hún væri ónothæf. Ullarfatnaður væri orðinn mun fínlegri og fólk gengi í honum nær sér og í slíkar flíkur væri íslenska ullin of gróf vegna togsins. Þótt við látum okkur hafa það að ullarföt, sem við erum í næst okkur, stingi dálítið gera útlending- ar sér það ekki að góðu og allra síst ef fá má fatnað úr fínni ull. Loks sagði Kristinn að bændur væm kæmlausir varðandi rúning. Fé sem rúið væri einu sinni á ári, að vori til, væri með skítuga gula og vonda ull fulla af heymori. Aftur á móti væri besta ullin af því fé sem rúið væri á haustin og svo aftur að vori. Allt of fáir bændur gerðu þetta. Einnig væri ágæt ull af vetrarrúnu fé en vetrarrúning væri ekki algeng. -S.dór Formaður Útvegsmannafélags Norðuriands: Splundrum leyni- samkomulaginu Jón G. Haukssan, DV, Akureyii „Við loðnuseljendur eigum að rjúfa múrinn og splundra leynisamkomu- laginu um loðnuverðið. Við eigum að vera harðir og einfaldlega hætta að veiða loðnu til frystingar. Þá hækka þeir verðið og við fáum frjálst loðnu- verð aftur,“ sagði Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norð- urlands, viðDV. Sverrir sagði að þegar kæmi fram í þennan mánuð virtist ætíð sem ein- hver Vestmannaeyjalög tækju gildi í loðnufrystingunni. „Þótt húsin í Vestmannaeyjum myndi blokk um verðið og vilji alltaf ráða því er bara að brjóta þá á bak aftur.“ Sverrir telur að reynslan af fijálsu loðnuverði hafi verið mjög góð. „Ég er ákveðið þeirrar skoðunar að verðið verði því að vera fijálst á loðnufryst- ingunni eins og í bræðslunni," sagði Sverrir Leósson. Loðnuveiðaman Lóndunarbið á öllum AustQarðahöfnum - skipin sigla frá Hjörieifshöfða til Norðuriandshafna Þróarrými er þrotið í öllum lönd- unarhöfnum nálægt loðnumiðunum út af Hjörleifshöfða eftir mokveiði undangenginna daga. Skipin eru far- in að sigla til Raufarhafhar, Krossa- ness og Siglufyuðar og því engin smásigling hjá þeim með aflann að landi. I gær voru fa skip á miðunum. Nokkur bíða löndunar á Austfjarða- höfhum, önnur eru annaðhvort á leið til hafna á Norðurlandi eða það- an á miðin afitur. Eitt skip, Eldborg HF, er á leið með afla til Danmerkur. Nú eru 17 skip svo til búin með aflakvóta sinn. Þau eiga þó smáveg- is eftir sem verður geymt þar til hrognatakan hefst um næstu mán- aðamót og þeim fjölgar dag frá degi skipunum sem ljúka við að veiða upp í kvótann sinn. Heildaraflinn var í gær orðinn 855 þúsund lestir og eru þá 160 þúsund lestir eftir af heildarkvótanum. Enn eru menn í vafa um að hægt verði að veiða upp í þann kvóta. Bæði eru mörg stór skip að ljúka við að fylla sinn kvóta, mörg eru að veiða loðnu til frystingar og taka þá smáslatta og svo tefjast þau skip sem enn stunda veiðamar vegna löndunar- biðar eða þá að þau þurfa að sigla umhverfis hálft landið með aflann. Síðan má ekki gleyma aðalatriðinu, það styttist óðum í hrygningu hjá loðnunni en um leið og hún er af- staðin drepst fiskurinn. -S.dór Verkalýðsfélagið Árvakur á Eskrfirði: Frekar að efla fjorðungs- samböndin en leggja þau niður „Við hér í Verkalýðsfélaginu Ár- vakri á Eskifirði ætlum svo sem ekki að skipta okkur af því sem er að ger- ast á Vesturlandi og Suðurlandi þar sem uppi eru raddir um að leggja fjórð- ungssambönd verkalýðsfélaganna niður. Við erum bara á öndverðum meiði og þess vegna var samþykkt gerð á stjómarfúndi hjá okkur þess efnis,“ sagði Hrafnkell A. Jónsson, formaður félagsins, í samtali við DV. Ályktunin, sem stjóm Árvakurs samþykkti samhljóða, er svohljóð- andi:„Stjóm Verkalýðsfélagsins Árvakurs vill, vegna þeirrar umræðu sem verið hefur um að leggja niður fjórðungssambönd innan verkalýðs- hreyfingarinnar, leggja áherslu á að samtök launþega í íjórðungunum verði efld og telur að hagsmunum verkafólks á landsbyggðinni verði best borgið innan öflugra fjórðungssam- banda.“ Hrafhkell benti á að minni félögin úti á landi gætu náð ýmsu fram með því að standa saman innan fjórðungs- sambandanna. Ef þau yrðu lögð niður ættu þessi sömu félög allt sitt undir Alþýðusambandi íslands og Verka- mEmnasambandinu. -S.dór Um 24 þúsund tonn af loðnu voru i hráefnisþróm verksmiðjunnar þegar þessi mynd var tekin. DV-myndir Emil Loðnuvertíðin á Eskifirði: Yfir hundrað þús- und tonn á land Emil Thoiaiensen, DV, Eskifiiði: Nú hefur yfir hundrað þúsund tonn- um af loðnu verið landað á Eskifirði á yfirstandandi loðnuvertíð. Fram að áramótum var landað 62 þúsund tonn- um en ffam til dagsins í dag hefur verið landað um 39 þúsund tonnum. Bræðsla hefur gengið vel en fyrsta loðnan barst á land 28. júlí í upphafi þessarar loðnuvertíðar og má segja að stanslaust hafi verið brætt síðan ef talið er frá tímabilið frá jólum þar til verkfalli sjómanna lauk, 17. janúar sl. Að sögn Ástráðs Ingvarssonar hjá loðnunefnd hefur loðnu aðeins verið landað í meiri mæli á Siglufirði en Eskifjörður er næsthæsti löndunar- staðurinn. Heildarloðnuaflinn er um 840 þús- und tonn en leyfilegt er að veiða um 1.015 þúsund tonn. Samkvæmt þessu hefur um 12% af veiddri loðnu verið landað á Eskifirði. Ástráður sagði að til viðbótar við leyfilegt loðnumagn hefði ráðuneytið heimilað loðnubátum að veiða til viðbótar sem svaraði til 2ja fullfermistúra til fiystingar enda myndi það magn dragast frá næsta árs kvóta. Stanslaus bræðsla hefur verið í gangi á Eskifirði frá því í sumar ef undan er skilið verkfall sjómanna og nú rýkur glatt úr strompum loðnubræðslu Hrað- frystihúss Eskifjarðar eins og sjá má á myndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.