Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 500 kr. Verð i lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Rústir Alexanders Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra stendur á rústum nýja húsnæðislánakerflsins, sem reist var við lúðrablástur í fyrra. Augljóst er nú, að kerfið uppfyllir ekki vonirnar, sem við það voru bundnar í byrjun. Nýja kerfið tók gildi fyrsta september síðastliðinn. Þar var um mikla hækkun húsnæðislána að ræða. Þús- undir sendu umsóknir um lán. Alexander segir sjálfur, að fjóra síðustu mánuðina fyrir áramót hefðu Húsnæðis- stofnun borizt yfir fjögur þúsund umsóknir. Þetta er margfalt það, sem ráðherrann segir, að nýja húsnæðis- löggjöfm hafi gert ráð fyrir. Lögin byggðust á, að umsóknir yrðu innan við fjögur þúsund á heilu ári. Ráðherra býst við, að fimmtán prósent umsókna verði hafnað, til dæmis vegna þess að umsækjendur séu ekki taldir borgunarmenn fyrir láni. En eftir stendur, að nú skortir nær hálfan annan milljarð króna til að mæta þeim umsóknum, sem borizt hafa. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður er meðal þeirra, sem benda á hrun kerfisins. Hún upplýsir, að biðtími umsækjenda hafi nú í desember verið orðinn fimmtán mánuðir að meðaltali. Umsækjendur fá sem sé að vita, að þeir eigi rétt á láni en þurfi að bíða hátt á annað ár eftir að fá það. Jóhanna segir, að eigi bið- tíminn ekki enn að lengjast mikið vanti sautján hundruð milljónir króna í kerfið á þessu ári, peninga sem ekki eru til. Jóhanna segir, að verði ekki að gert muni biðtíminn verða orðinn hátt á þriðja ár um næstu áramót. Þessu hefur ekki verið í móti mælt. Þvert á móti stað- festa yfirlýsingar félagsmálaráðherra þessar upplýsing- ar í aðalatriðum. Greinilega er það ekki reisulegt kerfi, sem bregzt fólki svo eftir öll fyrirheitin, sem gefin voru í fyrra. Eitt hefur kerfið nýja gert. Það hefur keyrt upp íbúð- arverð. Með því er efnalitlum auðvitað gert erfiðara að eignast íbúð. Upplýsingar liggja fyrir um, að fast- eignaverð hafi hækkað um fjörutíu prósent síðan í fyrravor. Þetta er gífurleg hækkun og tengist nýja lána- kerfinu og vonunum, sem við það bindast. Hluti af hækkun fasteignaverðs kemur til af því, að verð á hús- næði hafði hækkað tiltölulega lítið þar á undan. Ennfremur virðist útborgun hafa hækkað í þessum viðskiptum. Margt hefur því snúizt gegn kaupendum húsnæðis. Eftirstöðvar bera einnig raunvexti. Við þessu mátti búast, en á móti átti að koma mikil hækkun lána með nýja kerfinu. Það kerfi gæti verið til bóta í aðalatriðum en þarf endurskoðunar við. Lækka verður útborgunarhlutfallið. Það gæti gerzt með frum- kvæði Húsnæðisstofnunar. Markaðurinn verður auð- vitað að ráða, en lenging lána og lækkun útborgunar eru nú orðið rökrétt framhald raunvaxtanna af eftir- stöðvum. Orsakir flóðs umsókna til Húsnæðisstofnunar má rekja til þess, hversu illa var farið með fólk undir stjórn núverandi félagsmálaráðherra allt frá 1983 til 1986. Því komust þúsundirnar, sem þurftu lán fyrir eðlilega mikl- um hluta íbúðarverðs ekki að, heldur var þeim haldið í svelti. Þessi ráðherra átti að fara frá og viðurkenna svik sín og mistök. Nú reynir hann að verjast með skír- skotun til nýja kerfisins. En það er hrunið. Haukur Helgason. Fólkið og fjölmiðlabyftingin Allir stjómmálaflokkamir eiga það sameiginlegt að ef þeim gengur miður í baráttunni um hylli kjósenda þá kenna þeir helst um að þeir hafi ekki nógu sterk yfirráð á fjölmiðla- vettvangi. Jafiivel Sjálfetæðisflokk- KjáUaiiim Núna er það einna helst Morgun- blaðið sem á það til að falla í þessa gömlu gryfju, og þá frekar af geð- vonzku en af þörf eða sannfæringu, og því miður virðist svo sem Þjóð- viljinn sé aftur að fara að taka upp þessar aðferðir - og þá fremur af sannfæringar sökum en af stríðu geði. Þáttur DV og Dagblaðsins Ekki er í mínum huga nokkur vafi á því að þá miklu breytingu á viðhorfi fjölmiðla til fjölmiðlahlut- verksins, sem orðið hefur, má dagsetja. Sú breyting kemur í kjölfar þess mikla umbrots sem varð í blaða- heiminum með stofiiun Dagblaðsins. Sú breyting varð ekki í þá átt að orðað sjálfir. Með fjölmiðlabylting- unni hefur fólkið verið fært nær foringjunum og myndin um leið gerð skarpari í fjölmiðlaspeglinum - bæði myndin sem fólkið sér þar af foringj- unum sem og myndin sem foringj- amir sjá þar af fólkinu. Þakka fyrir mig Því skrifaði ég þessa grein að mér kom í hug á dögunum að bera saman aðstæðumar nú og eins og þær vom þegar ég hóf störf sem blaðamaður fyrir bráðum 20 árum. Eftir að hafa setið inni á Alþingi í nærfellt heilan áratug án þess nokkum tíma að hafa þurft að hafa áhyggjur af því að geta komið á framfæri við fólk fyrir tilstilli íjölmiðla tillögum, hug- Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi * alþingismaður „Hvorki Dagblaðið á sinni tíð né DV nú verða ásökuð um litleysi eða hálfvelgju í afstöðu.“ urinn, sem nýtur stuðnings risanna í íslenzka fjölmiðlaheiminum, er þama ekki undantekning frá öðrum stjómmálaflokkum. Flestir ættu að muna umræðumar í flokknum eftir kosningaósigurinn 1978. Skýring- amar vom m.a. sagðar þær að flokkurinn hefði ekki haft nægilega sterk tök á Morgunblaðinu í þeirri kosningabaráttu. Um hina flokkana þarf ekki að fjölyrða. Fái þeir ekki góða uppskem á akri kosninganna tilheyrir það hefðbundnum viðbrögðum að kenna um slakri stöðu á fjölmiðlamarkaðn- um. Með þessa flugu á bak við eyrað hafa þessir flokkar svo verið að reisa gera blöðin litlausari eða skoðana- lausari. - Hvorki Dagblaðið á sinni tíð né DV nú verða ásökuð um lit- leysi eða hálfvelgju í afstöðu. Breytingin varð í þá vem að fjöl- miðlamir, og þá fyrst og fremst blöðin, opnuðu sig fyrir öðrum skoð- unum en þau höfðu sjálf og gerðu meira en að taka við slíku efni af skyldurækni; þau tóku því feginsam- lega að fólk kæmi á framfæri fyrir þeirra tilverknað skoðunum sem vom í andstöðu við skoðanir þeirra sem leiðurunum réðu og gerðu vel myndum og ábendingum eftir þeirri greiðu leið sem forystumönnum á Alþingi íslendinga býðst þá skyndi- lega stóð ég utan við það svið án þess þó að hafa misst áhugann á því að koma hugmyndum og hugsunum á framfæri. Fyrir fjölmiðlabylting- una hefði ég í því efhi átt þann kost einan að fá fyrir kunningsskap og velvilja pláss í einhverju því homi þar sem lítið bæri á og mátt vera þakklátur. Eftir fjölmiðlabyltinguna er spumingin miklu fremur sú hvort menn hafi eitthvað að segja fremur „Eftir fjölmiðlabyltinguna er spurningin miklu fremur sú hvort menn hafi eitthvað að segja fremur en hvort menn fái að segja það og hafi menn eitthvað að segja eru fjölmiðlamir þakklátir fyrir að fá það til birtingar." sér hurðarás um öxl í blaðaútgáfu og hafa þá skýringu helsta á því af hverju lesendur ekki fást nógu margir að þeim blöðum að ekki faist nógu miklir peningar til þess að kynda bálið. Væri svo sem nógu gaman að fá svar við þeirri spum- ingu hversu miklum peningum þyrfti að verja til útgáfústarfa til þess að tryggja það að þorri þjóðarinnar keypti og læsi daglega jafiimörg dag- blöð og næmi fjölda flokka á þingi hverju sinni. Breytt viðhorf Þessi viðhorf flokka og flokks- manna til fjölmiðlaheimsins em að hluta til sjálfsblekking en eiga að hluta til rætur að rekja til aðstæðna sem vom en em ekki lengur. Fyrir tuttugu árum, þegar undirritaður starfaði á fjölmiðlavettvanginum, vom blöðin enn, a.m.k. að hluta til, rekin eftir lögmálum trúarbragða- styrjalda með ströngu ritúali. I því ritúali fólst m.a. að láta pólitíska menn og málefrii aldrei njóta sann- mælis; ofllytja eigin málstað og menn en afflytja aðra. Síðan þá hef- ur mikið vatn til sjávar mnnið. við slíkt efni. Ef eitthvað má að finna þá er það einna helst það að blöðin séu ekkki nógu gagnrýnin á að það utanaðkomandi efni, sem þau birta, sé nægilega vel og vandvirknislega unnið - auk þess sem fjölmiðlafrelsið hefur leitt í ljós það þjóðareinkenni að íslendingar virðast hafa meiri áhuga á að gagnrýna, átelja og álasa en að kynna nýjar hugmyndir um umbætur og jákvæðar breytingar. Sinnar eigin gæfu smiður Á örfáum árum hefur með §öl- miðlabyltingunni orðið sú breyting á aðstæðum að stjómmálamaður eða stjómmálaflokkur, sem ekki fær til- ætlaða áheym né nær tilætluðum árangri, getur fáum öðrum um kennt en sjálfum sér. Hafi menn á annað borð eitthvað að flytja og geti komið því þannig frá sér að eftirtekt veki þá em fjölmiðlamir á íslandi reiðu- búnir að taka við slíku efrú og koma því áleiðis til fólksins. Það er hins vegar ekki fyrir hendi, sem hér á árunum áður oft var krafist, að fjöl- miðlamir búi eitthvað til úr engu fyrir menn og flokka eða orði fyrir menn hugsanir sem þeir geta ekki en hvort menn fái að segja það og hafi menn eitthvað að segja em fjöl- miðlamir þakklátir fyrir að fá það til birtingar. Þessi bylting á við- horfúm og aðstæðum skiptir auðvit- að sköpum fyrir alla þá, eins og t.d. undirritaðan, sem vilja láta frá sér heyra og halda tengslum við fólk. Menn kunna hins vegar ekki að meta þessa hluti fyrr en þeir hafa sjálfir þurft á að halda. Dagblaðið varð til þess á sínum tíma að umrædd bylting varð. DV hefúr haldið henni vakandi. Þótt ég sé iðulega mjög ósáttur við þau við- horf og þær skoðanir, sem bæði þessi blöð höfðu og hafa og fram koma í leiðurum og skoðanayfirlýsingum þeirra sjálfra, þá met ég það að verð- leikum að þau em opin fyrir and- stæðum sjónarmiðum og em reiðubúin til þess að ljá þeim rúm með áberandi og virðulegum hætti þannig að hin andstæðu sjónarmið geti fengið eins góða kynningu og |sá er þess umkominn að veita sem þeim flíkar. Fyrir þetta vil ég fá að þakka og undir þær þakkir gætu eflaust margir fleiri tekið. Sighvatur Björgvinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.