Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987. íþróttir •Steve Archibald. Archibald fær ekkiWembley Kristján Bemburg, DV, Bdgiu; Enska knattspymusambandið hefur gefið skoska landsliðsmann- inum Steve Archibald neikvætt svar við þeirri ósk að halda ágóða- leikinn fyrir flóttafólk í Afríku í apríl á Wembley. Eins og fram hefur komið áformaði Archibald að halda leikinn á Wembley en aðeins vantaði græna ljósið frá enska knattspymusambandinu. Formaður enska knattspymu- sambandsins sagði að ekkert myndi breyta þeirra ákvörðun. Astæðan væri sú að mikið álag væri á Wembley-leikvanginum á þessum tíma og völlurinn þyldi ekki þennan leik í ofanálag. Archibald sagði í viðtali við Bob Wilson, fréttamann BBC, að hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigð- um með ákvörðun enska knatt- spymusambandsins að leyfa ekki þennan umrædda leik. „Við vorum búnir að leggja mikla vinnu í und- irbúning fyrir leikinn. Til að mynda var Diego Maradona ákveðinn í að taka þátt í honum og allir aðrir fremstu knattspymu- menn í heiminum í dag. Hvort við munum leika á öðrum velli veit ég ekki á þessari stundu en eitt er víst að ég er virkilega sár yfir þessari ákvörðun enska knattspyrnusambandsins," sagði Steve Axchibald við fréttamann BBC. -JKS „Morð“ með bros á vör - sagt frá nýju óþveirabragði í handknatUeiknum Norsku dómaramir Öjvind Bolstad og Teije Antonsen eru vel þekktir hér á landi en þeir hafa dæmt marga hand- knattleiksleiki hér - bæði milli lands- liða og félagsliða. Þeir em mjög hátt skrifaðir á alþjóðavettvangi og dæma núna í B-keppninni á Ítalíu. Þeir Bolstad og Antonsen þekkja vel inn á flestar skuggahliðar handknatt- leiksins og vita vel hvers kyns brögð- um leikmenn eiga til að beita og þau eru oft ekki fögur. Sumir leikmenn hafa sýnt að þeir em til alls vísir þeg- ar verðlaun og frami em í boði - og nokkrir hafa jafiivel gripið til hinna verstu óþokkabragða. Allt er þetta talinn hluti af nútímahandknattleik og vilja menn jafnvel halda því fram að þetta sé aðeins þáttur í leiknum. Júgóslavneskt óþokkabragð Á hverju ári finna leikmenn upp á einhverju nýju - sem eingöngu miðar að því að hindra andstæðinginn í að skora. Nýjasta bragðið er uppmnnið í Júgóslavíu og Terje Antonsen lýsir því sem óþokkabragði af verstu teg- und. Það felur í sér að þegar leikmanni hefur tekist að brjótast framhjá vam- armanni (oftast er um homamann að ræða) og er í þann veginn að láta skot- ið ríða af grípur vamarmaðurinn inn í. Með örlítilli handarhreyfingu grípur vamarmaðurinn í annan fót sóknar- mannsins sem missir fullkomlega jafnvægið. Þetta er mögulegt vegna þess að allir í salnum, leikmenn, áhorf- endur, blaðamenn og dómarar, fylgjast þá með skothendi leikmannsins og skilja svo ekkert í því eftir á hvemig honum tókst að klúðra upplögðu marktækifæri. „Þetta er mjög hættulegt og full- komlega óíþróttamannsleg framkoma. Fyrir þetta á ekki að reka leikmenn út af í tvær eða fjórar mínútur heldur á að útiloka viðkomandi leikmann úr leiknum," sagði Antonsen. Það vom einmitt Antonsen og Bolstad sem tóku fyrstir eftir þessu bragði. Þeir tóku mjög hart á júgóslavnesku leikmönn- unum sem beittu því á handknattleiks- móti á Spáni í janúar og er vonandi að þeir hafi lært sína lexíu þar. „Leikmaðurinn missir algerlega jafhvægið við brotið og á það á hættu að lenda á höfðinu og bíða varanlegan skaða af. Það er algerlega óviðunandi að þjálfarar ýti undir eða hvetji til svona brota. Alþjóðahandknattleiks- sambandið (IHF) verður að beita sér í svona málum og stöðva þetta í fæð- ingu,“ sagði Antonsen. Þó að nafn Júgóslava hafi borið sér- staklega á góma í þessu sambandi er ljóst að fleiri þjóðir hafa ekki fullkom- lega hreint mjöl í pokahorninu. Allar handknattleiksþjóðir verða að vera vel á verði gagnvart svona hlutum til að stuðla að eflingu og viðgangi hand- knattleiksíþróttarinnar. -SMJ I Sigur hjá Dönum I Öll úrslit í B-keppninni á Italíu í * gærkvöldi voru samkvæmt bókinni. I Tékkar gjörsigruðu Bandaríkja- Imenn, 25-16, og eru Tékkar komnir með mjög gott markahlutfall — það Ibesta í keppninni. Danir unnu Tún- ismenn örugglega, 23-15. Þá unnu I Svisslendingar nauman en mikil- * vægan sigur á Búigaríu. I C-riðill: _ Danmörk-Túnis................23-15 I Sviss-Búlgaría...............17-16 ■ D-riðill: Tékkóslóvakía-USA...... V-Þýskaland-Brasilía... Staðan í C-riðli: Danmörk......2 2 0 0 Sviss........2 2 0 0 Búlgaría.....2 0 0 2 Túnis........2 0 0 2 D-riðill: Tékkar.......2 2 0 0 V-Þýskaland.2 2 0 0 USA..........2 0 0 2 Brasilía.....2 0 0 2 ....25-16 ....35-23 53-30 41-35 31-42 34-52 64-26 59-36 29-49 33-74 4 1 I ° I 0 I -SMJj • Framaramir þrír sem fara til Manchester City og Arsenal ásamt Einari Friöþjófssyni þjálfara. DV-mynd S Þeirfara til Man. CHy og Arsenal Þrír ungir og efnilegir knattspymu- menn úr þriðja flokki hjá Fram eru á leið til tveggja þekktra enskra knatt- spymufélaga síðar í þessum mánuði. Þetta em þeir Anton Markússon (sonur Markúsar Amar Antonssonar útvarpsstjóra), Haukur Pálmason og Steinar Guðgeirsson (sonur Guðgeirs Leifesonar). Piltamir halda utan síðasta dag þessa mánaðar og munu fyrst dvelja í tvær vikur hjá Manchester City. Þeg- ar dvölinni þar lýkur færa þeir sig um set og dvelja hjá Arsenal í vikutíma. Ekki er að efa að þremenningamir munu hafa mikið gagn af ferð þessari. I för með þeim verða þeir Gylfi Orra- son, formaður unglingaráðs knatt- spymudeildar Fram, og Einar Friðþjófeson þjálfari. -SK. „ <4_ I OM •Á þessari teikningu sést í hverju bragðið er fólgið. Ef varnarmaðurinn er nógu fljótur og nákvæmur eru litlar likur á því að upp um hann komist. íslenskt sýningar- lið til Bandaríkjanna - Islendingum boðið í sýningarferð til USA Nú em framundan tveir landsleik- ir gegn heims- og ólympíumeisturum Júgóslava á mánudags- og þriðju- dagskvöld. Verða báðir leikir án efa tvísýnir og spennandi því íslending- um hefur jafiian tekist einstaklega vel upp í viðureignum sínum gegn „Júkkum". Koma Júgóslavanna er afar ánægjuleg í þetta sinn, sérstaklega með hliðsjón af þeirri yfirlýsingu forkólfanna að liðið leiki aðeins gegn sterkum þjóðum fram að ólympíuleikunum í Seoul. ísland er því stórt ríki á landabréfi hand- knattleiksins. Þess má geta í framhjáhlaupi að Norðmönnum hef- ur ekki tekist að fá leik gegn Júgóslövum allar götur síðan 1972. Það eitt segir sína stóm sögu. Landsleikimir nú vom ákveðnir og fastsettir á gamlársdag - með einu sjö mínútna símtali. Jón Hjaltalín símaði til Ivan Snoj, ráðamanns í handknattleikssambandi þeirra Júgóslava, og gerði honum tilboð sem engin leið var að hafha. Júgóslövum er nú enda ljóst, með líkum hætti og flestum öði um þjóð- um, að ísland er verðugur andstæð- ingur og hér verða ekki sigrar unnir mótspymulaust. Islenskt sýningarlið í hand- bolta Merki íslenska landsliðsins er óvenjuhátt á lofti um þessar mundir og hafa Bandaríkjamenn meðal ann- ars séð sér þann kost vænstan að bjóða íslenska landsliðinu til heima- lands síns. Þar á liðið að sýna með hvaða móti handknattleikur er best leikinn í veröldinni. Er ætlunin að sýningarleikir íslenska liðsins fari fram um mitt næsta sumar. Með þessum hætti hyggjast forkólfar handboltans þar í landi fá unga af- reksmenn til að snúast á sveif með íþróttinni. -JÖG. Ætlum okkur sigur - segir Guðmundur Guðmundsson Tveir leikir fara fram í Laugardals- höll í kvöld í fyrstu deild karla í handknattleik. Viðureign Víkings og UBK hefet kl. 19.00 en leikur Vals og KA fer fram strax á eftir eða um klukkan 20.15. Beðið er eftir fyrri leik kvöldsins, viðureign Víkings og Breiðabliks, með mikilli eftirvæntingu. Víkingar em nú í efsta sæti deildarinnar en Blikar em skammt undan og eygja einnig mögu- leika á íslandsmeistaratitli. „Sigur er það eina sem kemur til álita,“ sagði Geir Hallsteinsson, þjálf- ari Breiðabliks, í samtali við DV. „Við mætum sterkir til leiks því landsliðið hefúr ekki truflað æfingar okkar. Við höfum því umtalsvert forskot á lið Víkings að því leytinu. Spennan er jafhframt meiri meðal Víkinganna vegna stöðu liðsins í deildinni. Alagið er þó einnig talsvert á okkur. Blikar hafa ekki áður leikið í toppbaráttu en það hafa Víkingar hins vegar margoft gert nú á síðustu árum. Reynslan er því þeirra megin og hún getur vitan- lega ráðið úrslitum. En ef við bognum ekki undan álaginu sigrum við án efa í leiknum," sagði Geir að lokum. Guðmundur Guðmundsson, fyrirliði Víkinga, sagði í samtali við DV að viðureign Víkings og Breiðabliks yrði hörkuleikur. „Þetta verður án efa hraður og skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur. Blikamir eru með efnilegt lið og taka vitanlega á öllu sem þeir eiga. Það gerum við raunar einnig og því verður leikurinn tvísýnn. Við ætlum okkur þó sigur enda höfum við æft af kappi upp á síðkastið og stefhum því á titil- -JÖG. •Guðmundur Guðmundsson. L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.