Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 26
38 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987. Menning Síbelíus og sitthvað fleira - nýjar finnskar hljómplótur Jean Síbelíus. Martti Talvela bassasöngvari. Jean Sibelius - Works for small orchestra. Rnlandia Sinfonletta, Pekka Helasvuo slj. Rnlandia FAD 354. Joonas Kokkonen - Requiem. The Academic Choral Society, Satu VI- havainen, sópran, Jorma Hynninen, barýton. Helsinkl Philharmonic Orchestra, Ulf Söd- erblom stj. Rnlandia FAD 353. Martti Talvela - Rnnish Folk Songs. Rnlandia FAD 917. Jukka Linkola - Crossings, Music for Te- nor Saxophone and Symphony Orchestra. Juhani Altonen, tenór saxófón, Helslnki Philharmonic Orchestra, Jukka Linkola, stj. Rnlandia FAD916. Finnska tónskáldið Síbelíus er að sjálfsögðu þekktastur fyrir tónaljóð sín og mikilfenglegar sinfóníur, en hann samdi einnig kynstrin öll af annarri tónlist sem sjaldan er spiluð, að undanskildum strengjakvartettn- um Voces Intimae og nokkrum sönglögum. Þessar „smærri" tónsmíðar Síbel- íusar eiga ekki allar skilið þetta aískiptaleysi. Píanótónlist hans þyk- ir að vísu klén. Gagnrýnandi hjá sjálfu New York Times, Tim Page, kallaði hana nýlega „shockingly bad“, hrikalega slæma. Samt hélt píanósnillingurinn Glenn Gould mjög upp á þrjár sónat- ínur eftir Síbeh'us, sem Finlandia hljómplötuútgáfon gaf einu sinni út með pólska píanóleikaranum Cyril Szalkiewicz og heíúr nú endurútgef- ið (FA 802, 804). Þótt þessar upptökur með Szalki- ewicz fari illa út úr tæknilegum samanburði við nýjar upptökur frá sænsku BIS útgáfunni hafa þær til síns ágætis að tónskáldið sjálft lagði blessun sína yfir túlkun píanóleikar- ans. Síbelíus samdi einnig talsvert fyrir fiðlu og píanó og er sú tónlist í heild- ina stórum áheyrilegri en píanótón- listin, í senn bæði ljúf og fóbrotin. Sýnishom af þessum tónsmíðum Síbelíusar er að finna á plötu með fiðluleikaranum Yuval Yaron og píanóleikaranum Rena Stipelman (Finlandia FA 301). Knöpp og dramatísk Sönglög Síbelíusar eru að sjálf- sögðu allt annar handleggur. Meðal þeirra em mörg sígild lög, knöpp í formi en knúin áfram af miklum dramatískum krafti. Ég hef áður getið um túlkun hins frábæra barýtonsöngvara, Jorma Hynninens, á sönglögum samlanda síns (Finlandia FA 202), en þess ber að geta að öll sönglög Síbelíusar eru nú líka til á Argo (Argo 411-739-1, fimm hljómplötur) með barýton- söngvaranum Tom Krause, Elísa- betu Söderström, píanóleikurunum Vladimir Ashkenazy og Irwin Gage og gítarleikaranum Carlos Bonell. Loks ber að geta um nýja upptöku á eldri kammerverkum Síbelíusar, Works for small orchestra, sem Fin- landia Sinfoniettan leikur. Aðalverkið á plötunni er tónlist sem Síbelíus skrifaði fyrir leikritið Dauðinn eftir svila hans, Arvid Jár- nefelt, árið 1903. Seinna, bæði árið 1906 og 1910 ‘, samdi hann fleiri til- brigði um sömu tónlist, og varð Stravinsky seinna svo hriftnn af ör- stuttri Canzonettu úr þessari svítu að hann útsetti hana fyrir málm- blástur. Hinum megin á þessari plötu eru stuttar svítur frá þriðja áratug aldar- innar, sem Síbelíus samdi fyrir breskan tónlistarútgefanda. í þeim eru snotrar laglínur og danshrynjandi, sem minna öðru hvoru á verk Dvoráks, án þess að líkja eftir honum. Leikur Finlandia Sinfoniettunnar er alls staðar til fyr- irmyndar. Tónlist Aðalsteinn Ingólfsson Sálumessa En þótt útgáfan gefi út tónsmíðar Síbelíusar með reglulegu millibili þá eru margir aðrir um þá hitu. Því leggur Finlandia alveg eins mikið upp úr að fylgjast með tónsmíðum lifandi tónskálda í Finnlandi. Hér er ég til dæmis með Requiem eftir þekktan tónjöfur, Joonas Kok- konen (Finlandia FAD 353), í áhrif- amiklum flutningi Akademíska kórsins í Helsinki og einsöngvar- anna Satu Vihavainen og Jorma Hynninen. Þessi sálumessa, sem samin var árið 1981, er tileinkuð eiginkonu tónskáldsins sem lést árið 1979. Þótt messan sé að mestu leyti hefð- bundin að uppbyggingu, með Kyrie, Sanctus og Agnus Dei á sínum stað, ítrekar tónskáldið hið jákvæða við dauðann. I stað kaflans um Dies irae, dag reiði, sem venjulega setur sterk- an svip á sálumessur, notar Kokkon- en Tractus, kaflann sem íjallar um lausn sálnanna úr jarðneskri prí- sund, og endar á kafla um ljósið eilífa, Lux Aetema. Jafiiframt er þetta Requiem eins konar framhald á tónlistinni í óper- unni Síðustu freistingamar, sem Kokkonen samdi árið 1974 og kall- aði „listræna erfðarskrá" sína. Requiem er hrífandi verk og ósvik- ið, sungið og leikið af þrótti og innlifún. Martti Talvela er einn eftirsóttasti bassasöngvari í heimi, en þar sem hann er bæði stórbóndi og ötull framkvæmdastjóri óperuhátíðarinn- ( ar í Savonlinna annar hann ekki eftirspumum. Veraldleg umsvif Talvelas hafa einnig komið niður á hljómplötuiðn- aðinum í Finnlandi því til skamms tíma var ekki hægt að fá þar nýleg- ar upptökur með söng hans, nema þá erlendar óperuupptökur. Finnsk þjóðlög Nú hefúr loksins tekist að klófesta Talvela og fá hann til að syngja úr- val finnskra þjóðlaga inn á plötu (Finlandia FAJ) 917). Það var á árunum 1907-10 að finnska tónskáldið Toivio Kuula gerði sér ferðir um Austurbotn í Finnlandi til að safiia þjóðlögum. Hann hafði rúmlega 400 lög upp úr krafsinu og hafa þau orðið mörgum tónskáldum og tónlistarfræðingum ómetanleg hjálp og innblástur. Síðan hefúr þjóðlögum líka verið safnað saman í suðausturhluta Finnlands, sem nú tilheyrir Sovét- ríkjunum að hluta. Talvela syngur lög frá báðum þess- um landshlutum við undirleik píanós og strengja. Þetta er indæl músík, og þá sér- staklega lögin frá Suður-Finnlandi, túlkuð af magnaðasta bassasöngv- ara sem nú er uppi. Eins og ég hef áður getið um í pistli um finnska tónlist eiga Finnar sér ung tónskáld sem virðast jafrivíg á klassíska tónlist af öllu tagi og j ass. Frá Afríkujass til Stravinskys Einn þeirra er Jukka Linkola, fseddur 1955, útskrifaður bæði úr Síbelíusarakademíunni í Helsinki og amerískum jassbúllum. Fyrstu tónsmíðar hans voru undir áhrifum frá afrískri tónlist en síðan hóf hann að leita fanga í nútímatón- list, til dæmis Stravinsky og Lut- oslawski, og blanda þau fong með jassi frá ýmsum tímabilum. Crossings (Finlandia FAD 916) frá 1984 er einmitt bræðingur í þeim dúr. Þar hefur Linkola fengið til liðs við sig margverðlaunaðan jassleik- ara, Juhani Aaltonen, sem leikur á tenórsaxófón á móti hljómsveitinni, en tónskáldið stjómar. Linkola lýsir Crossings sem dram- atískri tónlist, þar sem misjafnlega ákafar samræður eiga sér stað milli saxófónsins og hljómsveitarinnar uns þau verða að lokum sammála og sameinast í langri melódíu, sem byggist á upphafsstefi tónverksins. -ai Úivals- tónleikar Tónlelkar Guðnýjar Guðmundsdóttur, Ninu G. Flyer og Catherine Williams i Norræna húsinu 15. febrúar. Efnisskrá: Arthur Honeggen Sónatfna fyrir fiðlu og planó; Dmttri Schostakowitsch: Són- ata op. 40 fyrir celló og pianó; Frank Bridge: Þrjú smálög fyrir fiölu, celló og pianó; Lud- wig van Beethoven: Trió op. 70 nr. 1 f D-dúr. Samvinna Guðnýjar Guðmundsdótt- ur og Ninu Flyer er löngu orðin þekkt. Hún hófct hér heima, þegar báðar léku saman í Sinfóníuhljómsveitinni, og hélt áfram þótt fjarlægðir skildu að. Skemmst er til dæmis að minnast þeg- ar þær frumfluttu Dúó Jóns Nordals næstum áður en blekið þomaði á nótnablaðinu. Nú bættist sú þriðja við í hópinn, Catherine Wilhams, en hún og Guðný hafo áður unnið saman með góðum árangri. Tónlist Eyjólfur Melsted Og í stuttu máli sagt var árangur samvinnu þessara þriggja lfctakvenna harla góður. Fyrst lék gamla dúóið, Nina og Guðný, Sónatínu eftir Arthur Honegger. Það var nú svo með hann Honegger, eins og fleiri ágæta menn sem hafa samið gegnumvandaða mús- ík, að vanti broddinn í músíkina hjá þeim vekur hún rétt í meðallagi at- hygli. En þetta dúó sem þær léku, stöllumar, er vel og nosturslega samið og hér prýðilega leikið. Þrjár mikilhæfar listakonur Sónata Schostakowitsch fyrir celló og píanó er harla rishátt verk. Það var líka hátt rfcið hjá þeim Ninu Fly- er og Catharine Williams þegar þær léku hana - sannkallaður kostaleikur. Til að bræða þrímenninginn vel saman fyrir átökin við Beethoven tóku þær þrjú lítil, lagleg tríólög eftir Frank Bridge. Prýðfcupphitun, sem dugði fyrir aukagetu líka og þá vom þær tilbúnar í slaginn við Sónötu Beethov- ens. Þar refc leikurinn á þessum tónleikum hæst. Ef nokkuð skyldi til- greint umfram annað væri það frábær samstilling í hæga kaflanum en flugið í síðasta kaflanum, presto, var líka býsna hátt. Þetta vom úrvalstónleik- ar, enda á ferðinni þrjár mikilhæfer lfctakonur sem allar lögðu sitt besta fram. -EM Nlna G. Flyer, Guðný Guðmundsdóttir og Catherlne Williams.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.