Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987. Spumingin Telurðu að sektir séu rétta leiðin til að knýja fólk til að nota bílbeltin? Guðjón Jónsson ellilífeyrisþegi: Nei, ég er á móti slíku því það geta verið einstök tilvik þegar það kemur sér afar illa að hafa bílbelti. Ég er t.d. mjög slæmur i öxlinni og þoli því illa bílbelti. Mér fmnst því réttara að það sé skylda en sektum sé ekki beitt. Birgir Harðarson bakari: Nei, ég get ekki séð að það skipti neinu máli hvort það eru sektir við því eða ekki. Fólk notar ekkert bílbeltin frekar þótt það sé sektað. Ég er sáttur við fyrirkomulagið í dag. Örn Grundíjörð, starfar hjá JP-inn- réttingum: Nei, ég held að sektir við að spenna ekki bílbeltin beri engan árangur og séu því algjör óþarfi. Jytte Helgason húsmóðir: Já, alla- vega að reyna það því eins og við vitum öll þá slasast fólk ekki eins mikið noti það bílbelti og ég held að fólk noti beltin fremur ef það veit að það verður sektað trassi það að spenna þau. Sigríður Sigurðardóttir húsmóðir: Já, maður skyldi ætla að fólk myndi frekar nota bílbeltin ef það vissi að það yrði sektað annars. Bílbeltin eru það mikið öryggisatriði að mér finnst þetta alveg rétt. Hildur Hjaltadóttir nemi: Já, það finnst mér. Það er orðið tímabært að gera það. Lesendur Hrem toig - fögur boig Borgari skrifar: Einhver Sigurður skrifar um óhrein- indi í borginni og kennir um grasinu við akbrautir. í tíð Davíðs Oddssonar borgarstjóra hefur verið gert átak í að fegra borgina. Margt hefur vel tek- ist en því miður hefir sumt farið úrskeiðis, ekki vegna þess að þar hafi ekki verið vel staðið að verki heldur vegna þess að umgengni þegnanna um hin grónu svæði hafa nánast verið til skammar. Víða eru hjólför á graseyj- unum, Sigurður. . Maður þarf ekki annað en að skoða bæinn 18. júní til að sjá hve borgarbú- um er annt um bæinn sinn. Eftir að fólkið hefur skemmt sér (á fylliríi) þann 17. júm' ár hvert er borgin líkust því að hún hafi orðið fyrir loftárás. Ég tel grasið hans Davíðs vera til yndisauka og ætti miklu frekar að auka það en að tjarga meira en komið er. Nóg er af svörtum lit í bænum, allar eru götumar svartar. Mold sem rennur í rigningu á akbrautir er vegna þess að grasið hefir ekki fengið næði til að festa rætur og binda jarðveginn. Gefum því tíma og látum það í friði þá verður borgin mun fegurri en hún er í dag. Mér finnst borgarstjórinn eiga mikl- ar þakkir skildar fyrir gróðurinn sem hann hefir látið hljmna að í borginni, hann ætti að auka til muna en leggja jafnframt áherslu á að fólk hagi sér eins og sæmir í umgengni en róti ekki öllu upp eins og svínin gera. Malbik, tjara, salt og allt sem því tilheyrir er ógn við gróðurinn og til stórskaða fyrir bifreiðaeigendur. Lokaorð mín eru þvi, aukið grasrækt til muna í borgimii, aukið trjá- og blómarækt, skítt með það þó að mold- in renni niður í ræsin. Af tvennu illu er hún betri en tjaran. í tíð Davíðs Oddssonar borgarstjóra hefur verið gert átak í að fegra borg- ina og á hann mikið lof skilið fyrir það. Skemmdarverkafýsn og brnðl Sigríður J. hringdi: 1 kjölfar þess að núna virðist ein- hver skemmdarverkaalda vera að ganga yfir langar mig að leggja orð í belg. Núna nýlega varð ég fyrir því óhappi að bíllinn minn var rústaður á stæði í miðbænum. Þetta er mjög óskemmti- leg reynsla og ég fékk ekkert bætt því enginn stóð skemmdarvarginn að verki er hann var að svala skemmdar- fysn sinni. Ég tek það fram að það var engu stolið úr bílnum, eingöngu eyði- lagt allt sem hægt var að eyðileggja. Það er ekki langt síðan það kom fram í sjónvarpinu að 15 ára drengur væri búinn að vinna hin og þessi skemmdarverk í bænum en af því að hann er ekki orðinn 16 ára er ekkert gert, hann getur sem sagt haldið áfram uppteknum hætti og á alveg örugglega eftir að gera það. Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að hér er veila í réttarkerftnu. Hvers eiga borgarar að gjalda þegar svona óargadýr leika lausum hala. Það hlýtur að vera til einhver geymsla er hæfir þessum skemmdarvargi og hans líkum. RUV: Takturinn misjafn „Mér finnast þessir þættir æði misjafnir, sumir afbragð og aðrir síðri. 5561-2742 hringdi: Ég er ekki sammála því sem fram kemur í lesendabréfinu 1 takt við hvað? en þar er þátturinn í takt við tímann gagnrýndur harðlega. Mér finnast þessi þættir æði misjafh- ir, sumir afbragð og aðrir síðri. Mér finnast þessir þættir alltaf fara batn- andi og ungu stúlkumar eru hver annarri skemmtilegri og hafa vaxið í starfi. Ég á eftir að sjá eftir þeim sem hætta. Ég held að fólk á miðjum aldri hafi mjög gaman af þessum þáttum en mér fannst þátturinn með ungu stjóm- málakonunum og sá sem tekinn var í Árbæjarsafni bestir og reyndar alveg framúrskarandi. HRINGIÐ í SÍIVIA 27022 MILLIKL. 13 OG 15 EÐA SKRIFIÐ RÚV: Góðar bíómyndir Sigriður hringdi: Eg vil þakka sjónvarpinu fyrir þrjár frábærar bíómyndir um helg- ina og fyrir góða mynd á mánudag- inn. Eg get því miður ekki sagt það sama um þættina Sjúkrahúsið í Svartaskógi sem mér finnst fyrir mitt leyti ósköp óspennandi og lít- ið í varið. En sem betur fer bætir Miss Marple það upp enda þætt- imir um hana virkilega skemmti- legir. Verri þjónusta og matur Kristján hringdi: Pizzahúsið má fara að bæta sig vegna þess að þvi hefúr farið alveg stórlega aftur, bæði hvað mat og þjónustu varðar. Það er alveg synd að jafngóður staður og Pizzahúsið var skuli vera að drabbast niður. Óþarfa sælgætisát ungmenna Ellilifeyrisþegi hringdi: Mér finnst að heilbrigðisyfirvöld eigi að taka sig til og banna sjopp- ur í grennd við bamaskóla. Ef sjoppur em í nánd við bamaskóla þá hanga krakkamir þar og em síétandi sælgæti. Til að reyna að koma í veg fyrir að ungmennin eyðileggi allar sínar tennur með sælgætisáti væri nær fyrir heil- brigðisyftrvöld að taka til hendinni áður en það verður um seinan. Þjóðfélag hinna sterku Ingibjörg J. hringdi: Maður skyldi ætla að í þessu góðæri, sem alltaf er verið að tala um, væri loksins hægt að veita þeim veikari í þjóðfélaginu smáað- stoð. En hvílík bjartsýni. Ef svo illa vill til að fólk veikist alvar- lega, svo mikið að það getur ekki stundað vinnu til að framfleyta sér og sínum, þá getur það átt sig, svo mikil er umbun ráðamanna. Kerfið ætlast þá til að hægt sé að skrimta á 9.252 kr. á mánuði. Ég held að það væri nær að ráða- menn hættu þessum ferðalögum sínum og kaupum á nógu fínum bílum undir sig, sbr. borgarstjó- rann, og reyndu þess í stað að hjálpa þeim er rainna mega sín. Geir Sigurðsson hringdi: í öllum þessum áróðri um böl áfengisins og fylgifiska þess finnst mér allt of h'til áhersla hafa verið lögð á „kokkteilboð" hinna háu herra. Hvemig væri að opinberir aðilar líti sjálfum sér nær og hætti að fara í vasa almennings eftir „sjússi og fineríi" og haldi síðan áfrara prédikvmum sínum! Stefán Stefánsson skrifar: Ég held að það sé langheppileg- ast fyrir aha landsmenn að leggja Þjóðhagsstofnunina niður eins og þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa bent réttilega á. Það er ekk- ert vit í því að vera „spandera" fjármagni í verkefni fyrir þessa stofnun þegar Hagstofan getur fylhlega sinnt því verkefiá. Nqtum tækifærið og endurskipu- leggjum til betri vegar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.