Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Page 36
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
; .
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987.
Húsnæðisstofnun:
Lánsloforð
boðin á
100 þúsund
„Ég veit um tvö tilfelli þar sem láns-
loforð Húsnæðisstofnunar ríkisins
hafa verið seld í gegnum fasteignasölu
og ég hef heyrt af fleirum. Verðið er
að því er ég best veit 100 þúsund krón-
ur fyrir loforðið. Við erum staðráðin
í að stoppa þetta og munu bæði sá sem
fær lánsloforð og selur og sá er kaup-
ir verða sviptir möguleikum á að fá
húsnæðislán hjá stofhuninni," sagði
Sigurður E. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofhunar
ríkisins, í samtali við DV.
Lögfræðingar Húsnæðisstofhunar
^►eru nú að leita leiða til að koma í veg
fyrir sölu á lánsloforðunum. Sigurður
sagðist ekki vita með vissu hvemig
málið væri möndlað en lánsloforð em
alltaf gefin út á nafn.
„En það er eins og menn geti alltaf
fundið leiðir til að selja hvað sem er
ef hagnaðarvonin er nógu mikil,“
sagði Sigurður E. Guðmundsson.
-S.dór
Ýmir í Kópavogi:
Skemmdarverk
á fimm bátum
Skemmdarverk hafa verið unnin á
fimm bátum Siglingaklúbbsins Ýmis í
Kópavogi. Var farið um borð í bátana
og brotist inn í lúkarinn og sprautað
úr handslökkvitækjum, sem vom um
borð.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
uppgötvaðist þetta mál í gærdag. Ekki
er vitað með vissu hvenær þessi
skemmdarverk vom unnin þar sem
bátunum er ekki sinnt daglega heldur
em þeir í geymslu yfir vetrarmánuðina
í aðstöðu sem klúbburinn hefur í Foss-
voginum, skammt frá áhaldahúsi
Kópavogsbæjar.
Lögreglan telur sennilegt að þama
hafi verið um krakka að ræða en engu
var stolið úr bátunum. Mál þetta er
nú til rannsóknar hjá Rannsóknarlög-
reglunni.
-FRI
Blóm
við öll tækifæri
Opið frá kl. 10-19
alla daga vikunnar.
GARÐSHORNÍÍ
Suðurhlið 35
sími 40500
við Fossvogskirkjugarðinn.
LOKI
Ætli merin hafi
skellt á hann?
hestum á mánudag
- fékk hestana á Þverá lánaða til búfeiiaflutninga
Jón G. Haukæan, DV, Akureyxi;
„Skyggn maður, sem er framar-
lega í Sálarrannsóknarfélaginu,
segir að huldufólk hafi tekið hestana
til að flytja sig í burtu. Hann segir
að þeir komi aftur til baka núna eft-
ir helgina, á mánudaginn, og tekur
sérstaklega fram að allt sé í stakasta að tölu, hurfu sporlaust. Þeirra hefur
lagi með hrossin og að þeim líði vel.“ verið leitað úr flugvél, á vélsleðum,
Þetta segir Kristján Benediktsson, bílum og hestum. En allt hefur kom-
bóndi á Þverá í Öxarfirði, meðal ið fyrir ekki.
annars í helgarviðtali DV, sem birt- í viðtalinu segist Kristján ákveð-
ist í blaðinu á morgun. Kristján inn í að halda leitinni áfram þar til
hefur komið mjög við sögu að und- eitthvað skýrist um afdrif hestanna.
anfömu, eftir að hrossin hans, sjö Sjálfur kveðst hann þó á þeirri skoð-
un að þeir hafi „lent í sjálfheldu eða
farið ofan í vatn og drukknað.“
Um þessi nýjustu tíðindi, að huldu-
fólk hafi tekið hestana til búferla-
flutninga á þessum óvenjulega
árstíma, segir Kristján: „Við eigum
víst að hafa ónáðað huldufólkið en
ég veit ekki hvernig.“
Hressir með myndina Pirates (Sjóræningjar) fyrir utan nýtt og bætt Borgarbíó á Akureyri. F.v.: Birgir Kennedy-
bróðir Ágústsson, verkfræðingur og hönnuður bíósins, Arnfinnur Arnfinnsson, framkvæmdastjóri fyrirtækja
IOGT, og bíóstjórinn sjálfur, Sigurður Arnfinnsson. „Ég segi að þetta sé fallegasta bíó á landinu og stend
við það,“ sagði Birgir Ágústsson í gær og brosti.
DV-mynd JGH
Veðrið á morgun:
Kólnandi
veður
Á laugardaginn verður hæg
austan- og norðaustanátt á
landinu. É1 vestan-, norðan- og
austanlands en að mestu úrkomu-
laust sunnanlands. Hiti verður á
bilinu 0 til - 5 stig.
Hestur stórslasast:
Hurðarhúnn
upp í auga og
út um ennið
Ján G. Hauksscn, DV, Akureyii
Fjögurra vetra hestur á bænum
Rangá í Köldukinn í Suður-Þingeyjar-
sýslu fékk fyrir viku hurðarhún upp í
augað og fór hann út um ennið á hest-
inum. Fældist hesturinn svo að hann
reif hurðina af hjörum þannig að þeg-
ar komið var að honum var hann með
hurðina á hausnum og handfangið á
kafi í auganu.
„Þetta var ótrúlegt enda sagðist
dýralæknirinn ekki hafa trúað syni
mínum þegar hann hringdi," sagði
Baldvin Baldursson, bóndi á Rangá,
við DV í morgun.
„Það merkilega er að hesturinn virð-
ist brattur og ég vona að hann missi
ekki augað. Það er með ólíkindum,
því handfangið þræddist meðfram
auganu, inn í augnbotninn og út um
ennið.“
Baldvin sagði að sonur sinn og
frændi hefðu verið að ríða út. Þeir
hefðu verið að taka hestana inn. „Þeg-
ar hesturinn var kominn inn sneri
hann snöggt við í dyrunum á hesthús-
inu og sló höfðinu í handfangið."
„Hann fældist og fór hurðin af hjör-
um. Síðan dansaði hann með hurðina
inn í hús. Þegar dýralæknirinn kom
var farið að brotna út úr enninu á
hestinum," sagði Baldvin Baldursson.
ísinn á
vötnum
varasamur
Ástæða er til að vara fólk við ísnum
á ám og vötnum í og við Reykjavík
því sökum mikilla hlýinda og leysinga
er ísinn orðinn mjög þunnur, nánast
eins og eggskum.
Svæði þau sem hér er átt við eru
einkum Elliðaámar en þar varð
hörmulegt slys er 8 ára drengur, Sigur-
jón Hallgrímsson, féll niður um ísinn
og lést. Einnig á þetta við um Tjömina
í Reykjavík og Rauðavatn sem ætíð
verður hættulegt fyrir böm í svona
tíðarfari.
-FRI