Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1987, Blaðsíða 18
60
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1987.
Kvikmyndir
Nýlega mátti lesa í dagblöðunum
að ítalskir dómstólar hefðu sýknað
ítalska leikstjórann Bernardo Ber-
tolucci í máli sem var höfðað gegn
honum 1972 vegna myndar hans,
LAST TANGO IN PARIS. Máls-
höfðendur töldu myndina klám-
fengna og ókristilega en 15 árum
síðar komst dómarinn að hinu
gagnstæða. Myndin var mjög um-
deild vegna djarfra atriða þótt
sjálfur Marlon Brando væri í aðal-
hlutverki. Deilan stóð eins og svo
oft áður um hvað væri list og hvað
væri klám. Um líkt leyti kom upp
ekki ólíkt mál hérlendis varðandi
sýningu myndarinnar VELDI TIL-
FINNINGANNA á fyrstu kvik-
myndahátíð Listahátíðar. Málið
fór að vísu ekki fyrir dómstólana
en hins vegar varð niðurstaðan sú
að myndin var ekki sýnd sem ínerk-
ir einfaldlega að þeim sem úiokurð-
uðu þetta þótti efni hennar vera
klámfengið en ekki list.
En síðan þessar umræður urðu
hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Það sem þótti ósiðlegt 1972 eða
1978 telst varla merkilegt í dag á
hvíta tjaldinu.
Ástæðan fyrir því að þessar tvær
myndir eru nefndar eru vinsældir
nokkurra mynda, bæði í Evrópu
og þó sérstaklega í Bandaríkjun-
um, sem áður fyrr hefðu verið
taldar „klámmvndir" en eru nú
markaðsettar sem myndir um ást,
tilfinningar og kynlíf. Meira að
segja eru sumar þessara mynda
sérstaklega markaðsettar með það
í huga að draga kvenfólk inn í
kvikmyndahúsin og þá auglýstar
sem myndir sem lýsa vel hve langt
má ganga í ástarsambandi karls og
konu sem byggist á „óeðlilegum“
kynhvötum.
Straumhvörf
Sú mynd, sem skapaði mesta
umtalið, var án efa myndin 9 /í
WEEKS sem Adrian Lyne leik-
stýrði. Hér var um að ræða þekktan
leikstjóra (gerði meðal annars
FLASHDANCE) ásamt þekktum
leikurum, eða þeim Kim Basinger
og Mickey Rourke. Myndin var
auglýst hressilega af bandaríska
dreifingarfyrirtækinu og hlaut
nokkuð góða aðsókn þrátt fyrir
efni myndarinnar. Frændur okkar
Danir auglýstu þessa mynd sem
„konumynd" og bönnuðu karl-
mönnum aðgang að henni fyrsta
daginn.
Hér var ekki um að ræða listræna
mynd heldur var spurningin hven-
ær gengið væri út fyrir velsæmis-
mörk, miðað við þau norm sem
almenningur og yfirvöld settu. Svo
virðist sem þessi norm hafi verið
útvíkkuð, þó sérlega í Bandaríkj-
unum, þótt a.m.k. eitt atriði hafi
verið íjarlægt úr Evrópuútgáfu 9 A
WEEKS sem sýnd var í Bandaríkj-
unum.
Það er engin nýlunda að myndir
þekktra leikstjóra og með þekktum
leikurum hafi verið taldar nálgast
ytri mörk norma velsæmis, Má þar
nefna mynd Bob Rafaelsson, THE
POSTMAN ALWAYS RINGS
TWICE sem árið 1981 vakti
hneykslan og undrun þótt Jessica
Lang og Jack Nicholson færu með
aðalhlutverkin. Einnig má nefna
mynd hneykslarans Ken Russels
sem bar heitið CHINA BLUE og
fjallaði um samband prests og
vændiskonu á opinskáan og kyn-
ferðislegan máta með þeim Kathle-
en Turner og Anthony Perkins.
Einnig hafa nýjar myndir komið
fram á sjónarsviðið sem byggja vin-
sældir sínar að hluta til á 9'A
WEEKS eins og SOMETHING
WILD og svo nýjasta mynd Jean-
Jacques Beineix (gerði m.a. áður
DIVA) sem ber heitið BETTY
BLUE. Sú mynd hefði aldrei náð
þeim vinsældum sem hún náði í
Bandaríkjunum ef ekki hefðu kom-
ið til vinsældir 9 'A WEEKS.
Sló í gegn
En hver er þá raunverulega mun-
urinn á þessum eldri myndum og
svo 9 'A WEEKS og myndunum sem
fylgdu í kjölfar hennar. Jú, þetta
er eitt af fáum skiptum sem stór
dreifingarfyrirtæki hafa tekið
myndir um jafnviðkvæmt efni og
Það sem forvitnilegast er þó er hve
ólíkar þessar myndir eru sem sýnir
fjölbreytni leikstjórans.
Sumir hafa talið BLUE VELVET
„sjúklegustu mynd sem gerð hefur
verið“ um eiturlyf, kynlíf og of-
beldi. En hvað segir Lynch? „Fyrir
mér er þetta einstaklega mórölsk
mynd. Það sakar ekki að vita um
þessa hluti og jafnvel upplifa þá.
Það mundi auðvitað skaða þig að
upplifa það að fá byssukúlu gegn-
um höfuðið en það þarf ekki að
gilda um alla hluti. Svo gæti einnig
verið að þessir hlutir væru svo
tælandi að þér væri sama. MacLac-
hlan upplifir þetta, hættuna við að
vita of mikið og ástríðuna við að
vita meira þótt hann verði að borga
fyrir það.“
Hneykslun
Það sem hefur farið fyrir brjóstið
á mörgum er eitt atriði þegar Ross-
ellini birtist allsnakin og blóðug
eftir Booth á hvíta tjaldinu í einu
atriði myndarinnar. Finnst sumum
að einum of langt sé gengið því hér
sé um að ræða dóttur hinnar
þekktu leikkonu Ingrid Bergman.
Rossellini, sem er dóttir Ingrid
Bergman og ítalska leikstjórans
Roberto Rossellini, fæddist 1952.
Hún hefur getið sér gott orð sem
fyrirsæta og síðan 1982 hefur hún
verið ein hæst launaða fyrirsæta í
heimi. Hún hefur fjórar myndir að
baki en í þeim öllum hafði hún lít-
ið hlutverk sem gáfu henni ekki
tækifæri til að sýna hæfileika sína.
Það var ekki fyrr en með BLUE
VELVET að hún fékk tækifæri til
að sýna hvað í henni bjó.
Það virðist hafa farið vel á með
henni og leikstjóranum. Rossellini
virðist hafa verið með á nótunum
frá upphafi. „Það hefur aldrei hent
mig fyrr né síðar að vera, eftir að
hafa lesið handrit, sannfærð um að
hlutverkið væri fyrir mig. Þetta
gerðist þegar ég las um Dorothy
Vellens. Ég sá fyrir mér konu sem
var fómarlamb annarra, sem hafði
týnt allri sinni skynsemi og lifði
eingöngu samkvæmt tilfinningum
sínum. Eina efasemd mín var sú
að leikstjórinn Lynch sæi söguper-
sónuna í öðru ljósi en ég. Ég vissi
einnig að ég gæti ekki leikið Val-
lens öðruvísi en ég skynjaði hana.“
BLUE VELVET hefur opnað Isa-
bellu Rossellini dyr að Hollywood.
Hún hefur fengið tilboð um að leika
annað aðalhlutverkið í nýjustu
mynd Norman Mailer, TOUGH
GUYS DON’T DANCE.
B.H.
Myndin 9A WEEKS braut ísinn.
Söguþráður
Myndin gerist í bandarísku þorpi
sem heitir Lumbertown. Eins og
nafnið gefur til kynna er hér um
að ræða dæmigert bandarískt þorp
þar sem lítið er um að vera fyrir
utan daglegt amstur. Dag einn
finnur Kyle MacLachlan afskorið
eyra á gönguferð sinni rétt fyrir
utan bæinn. Hann fer sem lög-
hlýðinn bæjarbúi til lögreglunnar
og afhendir eyrað. Honum er síðar
tjáð af þeim lögreglumanni, sem
var falið málið, að hafa hljótt um
sig og nefna þetta ekki við nokkurn
mann. Hins vegar tekur málið
breytta stefnu þegar MacLachlan
kynnist dóttur þessa lögreglu-
manns, Láru að nafni. Saman taka
þau upp á því að rannsaka málið.
Gegnum föður sinn kemst Lára að
því að lögregluna grunar að söng-
kona að nafni Dorothy Vallens sé
viðriðin málið. Þau fara að njósna
um ferðir hennar og áður en
McLachlan veit af er hann kominn
í návígi við Vallens og náunga að
nafni Frank Booth sem reynist
vera bamaræninginn. Hann fær
einnig að fylgjast með sérstæðu
sambandi þeirra sem byggist á ást,
kynlífi, sársauka og þrá sem reyn-
ist MacLachlan erfitt að með-
höndla eftir að hann verður
ástfanginn af söngkonunni.
Dag einn grípur mannræninginn
þau MacLachlan og Vallens glóð-
volg og býður þeim í æði ævintýr-
lega ökuferð. Smátt og smátt æsist
leikurinn og í lok myndarinnar
Það er Isabella Rossellini sem fer með aðalhlutverkið í BLUE VELVET.
Hér endurspeglast samband ástar og haturs milli Dennis Hopper og Isabellu Rossellini í BLUE VELVET.
Blátt flauel
Isabella Rossellím, sem er dottir Ingnd
Bergman, vekur athygli í nýjustu mynd David Lynch
kynlíf og kynlífshegðun upp á sína
arma og markaðsett sem um stór-
mynd væri að ræða. Einnig virðist
sem almenningur sé móttækilegur
fyrir þessum myndum sé miðað við
móttökur. Þótt mikið sé um nekt
og í sumum tilvikum „djarfar“ sen-
ur virðist sem þessar myndir höfði
jafnt til kynjanna. Spumingunni
hvort þjóðfélagið sé eitthvað mót-
tækilegra fyrir þessum myndum
núna en áður skal látið ósvarað.
Það má einnig velta því fyrir sér
hvort hinn svokallaði Panhópur
hefði orðið eins umdeildur og vin-
sæll og hann varð meðal beggja
kynjanna ef hann hefði komið fram
fyrir nokkrum árum, svo framar-
lega sem sýningar hans hefðu verið
leyfðar.
Ein nýjasta myndin i þessum
flokki er BLUE VELVET. Þar er
leikstjóri David Lynch en aðal-
hlutverkin eru í höndum dóttur
Ingrid Bergman, Isabellu Rossell-
ini, og svo Dennis Hopper. Myndin
fjallar um samband söngkonu og
mannræningja sem hefur rænt
barni hennar og notfærir sér það
til að niðurlægja hana bæði and-
lega og lfkamlega. Myndinni hefur
vegnað mun betur en spáð var,
miðað við efnið, þótt hún hafi ekki
komist í hóp vinsælustu mynda
vestanhafs. Hins vegar er hún búin
að vera í hópi 30 vinsælustu mynd-
anna í heilar tuttugu vikur.
gera þeir Booth og MacLachlan
upp reikninga sína.
Sérstæður leikstjóri
Þessi mynd hefur verið hugar-
fóstur leikstjórans í langan tíma.
Fyrir þá sem ekki þekkja myndir
David Lynch virkar hún mjög sér-
stæð. Þeim sem hafa séð fyrstu
mynd hans, ERASERHEAD, kem-
ur þessi mynd hins vegar ekki á
óvart. Handrit og leikstjórn gefa
myndinni sérstakan blæ sem stund-
um virðist út úr fasa við raun-
veruleikann.
Þótt þessi mynd líkist fyrstu
mynd Lynch þá hefur hann gert
aðrar myndir sem voru gagnstæðar
þessum að flestu leyti. Má þar
nefna hina stórkostlegu mynd,
THE ELEPHANT MAN, ásamt
framtíðarsýnarmyndinni DUNE.