Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987.
5
Fréttir
Vika eftir af þinghaldi við Austurvöll:
Um 40 stjómarmál
ennþá óafjgreidd
Mál sem ríkisstjómin leitast við
að fá afgreidd á Alþingi fyrir þing-
lausnir eftir viku em um 40 talsins.
Flest em komin á kreik fyrir nokkm
og hafa þegar fengið meiri eða minni
meðferð á þinginu, í nefndum og
deildum. Önnur em skemmra komin
og enn önnur hafa ekki ennþá verið
flutt sem þingmál.
Forsætisráðherra leggur áherslu á
lög um umboðsmann Alþingis. Fjár-
málaráðherra er með þriggja mála
lagaorm um staðgreiðslu skatta,
einnig tollalög. Á döfinni er breyting
á tollskrá varðandi myndavélar og
hljómplötur og loks að útreikningar
byggingarvísitölu verði mánaðar-
lega í stað ársfjórðungslega.
Dómsmálaráðherra er með ný
umferðarlög á prjómmum, lög um
ríkisborgararétt allmargra einstakl-
inga, nokkur frumvörp um meðferð
mála í kerfinu og fleira smálegt.
Landbúnaðarráðherra er með jarð-
ræktarlög ein á óskalistanum.
Viðskiptaraðherra ýtir á lög um
hlutafélög, Útvegsbanka, vaxtaregl-
ur, útflutningslán og skipan gjald-
eyris- og viðskiptamála. Samgöngu-
ráðherra ýtir svo á flugmálaáætlun,
lög um vitamál, lögskráningu sjó-
manna, póst- og símamál og viður-
kenningu á alþjóðasamþykkt um
þjálfun og vaktstöður sjómanna.
Sjávarútvegsráðherra hefúr áhuga
á lögum um uppboðsmarkað fyrir
sjávarafla, um sjómannadaginn og
lög um skiptaverðmæti og greiðslu-
miðlun innan sjávarútvegsins.
Heilbrigðisráðherra óskar eftir af-
„Sagði ég þetta, getur það veriö?“ Forsætisráðherra rýnir i Þingtíðindi eða
einhver önnur tiðindi með fjármálaráðherra og formanni þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins. DV-mynd GVA
greiðslu á lögum um málefhi aldr-
aðra og um fæðingarorlof.
Félagsmálaráðherra vill fá af-
greiðslu á lögum um tekjustofiia
sveitarfélaga, byggingarsjóð aldraðs
fólks og landakaupasjóð kaupstaða
og kauptúna.
Þá hefúr menntamálaráðherra
vilja til þess að ná fram lögum um
þjóðarátak til byggingar bókhlöðu,
Kennaraháskólann og Leiklistar-
skóla ríkisins, svo og um Vísindaráð
og Rannsóknaráð ríkisins. Loks eru
á óskalistanum þingsályktanir
ýmissa ráðherra um vegaáætlun,
Egilsstaðaflugvöll, landgræðslu- og
landvemdaráætlun til 1991 og
tvenna milliríkjasamninga.
-HERB
Fimm fjörugar úr Frostaskjóli.
Reiptog yfir þvera laug; vatnið eða bakkinn, um annað er ekki að ræða.
Lenti á hvolfi
í miðlunarlóninu
Arma Ingólfadóttir, DV, Egilsstöðum;
Laust eftir kl. 17 á mánudagsmorgun
valt bíll við Lagarfossvirkjun sunn-
an við lokubúnaðinn.
Virðist bifreiðin hafa verið á mik-
illi ferð og náði ökumaður ekki
beygju en missti stjóm á bifreiðinni.
Valt hún niður þriggja metra háan
vegfláa og staðnæmdist á hvolfi úti
á ísilögðu miðlunarlóninu. Grunur
leikur á að ökumaðurinn hafi verið
ölvaður. Femt var í bifreiðinni og
voru tveir fluttir á sjúkrahús á Ak-
ureyri en ekki er vitað hversu mikið
slasaðir. Kvaðst lögreglan á Egils-
sföðum ekki vilja tjá sig frekar um
málið á þessu stigi.
Bifreiðin endaði á hvolfi úti á ísilögðu miðlunarlóninu.
DV-mynd Anna
Æska vestur-
bæjar í
blautpartfi
Krakkamir í félagsmiðstöðinni
Frostaskjóli héldu „blautpartí" í Vest-
urbæjarsundlauginni á fostudags-
kvöldið. Var mikil gleði, jafnt í
lauginni sem og pottunum sem aldrei
fyrr höfðu verið jafhtroðnir ungu fólki.
Að sögn starfsmanna sundlaugar-
innar var blautpartíið haldið með
vitund og vilja yfirvalda og fór hið
besta fram. Er þetta í annað sinn sem
Frostaskjólsliðið heldur slíka skemmt-
un en þær verða ekki fleiri á þessu
skólaári.
-EIR
Þar sem
PLUS° og MINUS
mætast í frystihúsinu, vöruskemmunni
eöa iönaöarhúsnæöinu er lausnin að nota
MAVÍLiönaðarplasthengi
til varnar hita- og kuldatapi.
Hljóðeinangrandi og gegnsæ.
Leitið
upplýsinga
ASTRA
Austurströnd 8
- sími 61-22-44