Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987. Atviimumál Tækniskóli íslands: Námskeið fiskverkunarfólks: Nýjar náms- brautir Ný námsbraut, rekstrardoild, hefur verið stoíhuð við Tækni- skóla íslands. Þar verður um iðnrekstrardeild og útgerðardeild að ræða. Tilgangur þessa nýja náms er að efla og auka nauðsvn- leg tengsl milli stjómunar, markaðar og framleiðslu í starfi fyrirtækjanna og ætti að leiða til aukinnar framleiðni. Það var árið 1981 sem sett var á laggimar nefhd til að skoða hlut- verk Tækniskóla Islands með þarfir framleiðslu- og þjónustuiðn- aðarins á rekstrarmenntuðu fólki í huga. Nefndin skilaði áliti 1983. Kftir að hún skilaði áliti var sett á laggimar rekstrardeild með iðn- rekstrarbraut og útgerðarbraut og vann deildin kennsluáætlun og kynnti hana fyrir ýmsum aðilum, þar á meðal Félagi íslenskra iðn- rekenda og Landssamhandi ís- lenskra iðnrekenda. Skólinn ætlar að auka enn verk- efnastarfsemi nenænda og ná betri tengslum við fyrirtækin. í því skyni er verið að koma á starfi við skólann um miðlun verkefria inn- an hans og auka bein tengsl við fyrirtækin og tryggja þannig virk- ara starf. -S.dór Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóösbækur óbund. 9,5-11 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsógn 10-15 Sb 6 mán. uppsogn 11-19 Vb 12 mán. uppsögn 13-20 Sp.vél. 18mán. uppsögn 19-20,5 Bb Ávísanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-7 Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb, Vb 6 mán. uppsögn Innlán meó sérkjörum 2,5-4 10-22 Ab.Úb Innlán gengistryggó Bandaríkjadalur 5-6 Ab Sterlingspund 9,5-10,5 Ab Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab Danskar krónur 9-10 Ab ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennir víxlar(íorv.) 18,75-20 lb Viöskiptavixlar(forv.)(1) 21.75-22 eða kge Almenn skuldabréf(2) 20-21,25 Ab.lb, Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) Utlán verðtryggð 20-21 Ib.Lb Skuldabréf Að 2.5árum 6-6,75 Lb Til lengri tíma 6,5-6,75 Ab.Bb, Lb,Sb, Ub.Vb Útlántilframleiðslu isl. krónur 15-20 Sp SDR 7,75-8,25 Lb.Úb Bandarikjadalir 7,5-8 Sb.Sp Sterlingspund 12,25-13 Bb.Vb Vestur-þýsk mörk 5,76-6,5 Bb.Lb. Úb.Vb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 3,5 5-6,5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR LAnskjaravisitala feb. 1614stig Byggingavísitala 293 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 7.5% 1 jan. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 113 kr. Eimskip 300 kr. Flugleiðir 450 kr. Hampiðjan 140kr. Iðnaðarbankinn 135kr. Verslunarbankinn 125kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miöað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil- alána er 2% bæði á verötryggð og óverð- tryggð lán, nema I Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýslngar um peningamarkaðlnn blrtast i OV ð flmmtudögum. Kennarar fengu ekki launin sín - málinu verður bjargað við í dag, sagði Gissur Pétursson, umsjónarmaður námskeiðanna Fjölmörg námskeið fyrir fiskverk- unarfólk hafa verið í gangi víða um land frá því fyrir áramót. Kennarar á námskeiðunum hafa ekki fengið launin sín greidd síðan 15. janúar og var svo komið að sumir höfðu við orð að hætta kennslu þess vegna. Það er sjávarútvegsráðuneytið sem stendur straum af kostnaði við nám- skeiðin. Gissur Pétursson, starfsmaður Ríkismats sjávarafurða, er yfirum- sjónarmaður námskeiðanna fyrir sjávarútvegsráðuneytið. Hann sagði í samtali við DV að vegna þess að þeirri upphæð, sem ætluð væri til að standa straum af kostnaðinum, væri deilt niður á allt árið hefði nú skort fé þar sem langmest er um námskeið á þessum árstíma. Sagði Gissur að tekist hefði að fá fé fært fram og þar með að leysa málið og myndu kennarar fá laun sín greidd í dag ásamt útlögðum kostnaði. „Hér er bara um slys að ræða sem tekist hefur að bjarga og er því í sjálfu sér ekkert mál en ég þykist vita hver hefur skýrt blöðunum frá þessu,“ sagði Gissur Pétursson. -S.dór Vestmannaeyjar: Tveir menn famir utan að skoða svifhökkva Vestmannaeyingar hafa hug á að taka slíkt farartæki á leigu næsta sumar Tveir ménn frá Vestmannaeyjum, Pálmi Lórensson hótelstjóri og Jón R. Eyjólfsson, skipstjóri á Heijólfi, fóru í gær til Bandaríkjanna að skoða svifnökkva sem Vestmannaeyingar hafa hug á og geta fengið á leigu næsta sumar. Fjölmargir aðilar í Vest- mannaeyjum hafa áhuga á því að vera með í að taka slíkt farartæki á leigu til að auka ferðamannastrauminn til Eyja. „Hér er ekki verið að stefha neinu gegn Herjólfi eða fluginu. Það er stað- reynd að þar sem svifnökkvar hafa bæst við venjulegar ferjusiglingar og flug hefur ferðamannastraumurinn stóraukist og að því einu stefnum við,“ sagði Páll Helgason, ferðamála- frömuður í Vestmannaeyjum, í samtali við DV. Hann sagði að menn hefðu verið með breskan svifnökkva í huga líka en þegar fréttist af nökkvanum í Bandaríkjunum, sem smíðaður er fyrir bandaríska herinn og er því sterkara og fullkomnara tæki, hefði verið ákveðið að skoða hann. Sem dæmi um möguleikana, ef nökkvinn þolir íslenskt sjólag og verð- ur tekinn á leigu, nefndi Páll að hægt væri að fara á honum alveg upp að Markarfljótsbrú, taka þar farþega til Vestmannaeyja og skila þeim á sama stað aftur eftir 4 til 5 tíma stopp í Vestmannaeyjum. Einnig væri hægt að bjóða útlendingum, sem væru að fara hringveginn í rútum, skottúr til Eyja með nökkvanum. Þetta farartæki myndi sem sagt gefa fjölmörgum kost á að skreppa til Eyja sem annars myndu ekki fara þangað með flugi eða Heijólfi. -S.dór Viðtalið Verkefnið að halda á lofti merki samtakanna - segir Guðjón Oddsson, nýkjörinn formaður Kaupmannasamtakanna Guðjón í verslun sinni í Siðumúlanum, DV-mynd Brynjar Gauti „Verkefni formanns Kaupmanna- samtakanna er að halda á lofti merki samtakanna, halda fram baráttu- málum þeirra og vaka yfir hagsmun- um samtakanna," sagði Guðjón Oddsson, nýkjörinn formaður Kaup- mannasamtakanna, í samtali við DV en hann var kjörinn á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í Hveragerði um helgina. Guðjón er kaupmaður í versluninni Litnum í Síðumúla. Guðjón sagði aðspurður að fyrir utan framangreind verkefhi væri það hlutverk formanns samtakanna að stjóma fundum félagsins og jafn- framt fundum framkvæmdastjómar en formaður samtakanna er jafn- framt formaður framkvæmdastjóm- arinnar. Guðjón hefur gegnt starfi vara- formanns félagsins um fjögurra ára skeið en undanfarin tíu ár hefur hann setið í stjóm sérgreinafélags síns innan Kaupmannasamtakanna en svo sem kunnugt er em samtökin byggð upp af nokkrum sérgreinafé- lögum. Nú eru um 700 félagsmenn í Kaupmannasamtökunum og eru þau fjölmennustu samtök vinnuveitenda hér á landi að sögn Guðjóns. Guðjón hefur rekið verslunina Lit- inn í tæp tíu ár en verslunin á tíu ára afmæli þann 26. mars næstkom- andi. „Þetta hefur gengið ágætlega," sagði Guðjón. „Ég get ekki verið annað en ánægður." I Litnum er verslað með bygginga- vörur ýmiss konar, svo sem máln- ingu, gólfdúka, verkfæri og skyldar vörur. Guðjón er kvæntur Gíslínu Krist- jánsdóttur og eiga þau þrjú böm. Aðspurður um áhugamál sagðist Guðjón lítinn tíma hafa til að sinna slíku. „Ég get ekki státað af neinu sporti. En ég hef þó gaman af útivist og garðrækt, ég snudda svolítið í garðinum hjá mér,“ sagði Guðjón Oddsson. -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.