Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987. 11 Utlönd Skipaverkfræöingurinn Jiirgen Biissenschiitt sýnir fréttamönnum stafnlúgur i nýrri ferju sem er í smiðum í Bremer- haven eftir sömu teikningum og Herald of Free Enterprise sem valt við Zeebrugge. Allt bendir til þess að bilun i lokunarbúnaði lúganna hafi valdið miklu um hve illa fór. Simamynd Reuter V ", | Björgunarmenn á gúmbát við ferjuna Herald of Free Enterprise sýnast eins og íbúar Putalands i samanburði við skipsskrokkinn. Stöðugt er leitað i ferjunni þeirra sem enn er saknað og jafnframt er hafinn undirbúningur þess að ná ferjunni af sandrifinu og koma henni á réttan kjöl til björgunar í höfn. Símamynd Reuter Einn björgunarmanna sést hér utan á skipshliðinni kalla til iélaga sinna einhverjar leiðbeiningar við björgunar- starfið j gær. Simamynd Reuter Ekki viðvör- unarijós uppi í brú Breska bílferjan The Herald of Free Enterprise hafði engin viðvörunarljós uppi í stjómbrúnni til þess að sýna skipstjómarmönnum þegar stafiilúg- umar vom opnar, eftir þvi sem yfir- smiður ferjunnar, Júrgen Bussenschutt skipaverkfræðingur, sagði fréttamönnum í Bremerhaven í gær. Hjá öðrum forsvarsmanni skipa- smíðastöðvarinnar hafði komið fram að fjórar svipaðar bílferjur frá Towns- end Thorensen-ferjufélaginu hefðu verið umbyggðar í fyrra og þá hefði verið komið fynr slíku viðvömnar- kerfi uppi í stjómpallinum. Þetta var svo borið til baka í gær. Skipasmíða- stöðin í Bremerhaven, sem byggði þessa ferju og fleiri svipaðar, er með enn eina slíka ferju í smíðum en teikn- ingar hennar hafa nú verið teknar til endurskoðunar eftir slysið við Zee- bmgge. Engin af Enterprise-ferjunum, Pride of Free Enterprise, Spirit of Free Ent- erprise eða Herald of Free Enterprise, hafði slíkan viðvömnarbúnað. Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Guðmundur Pétursson Oryggisreglum slælega fylgt á Eyrarsundi Gunrúaugur A Jónssan, DV, Lundi; Ferjuslys svipað og varð fyrir utan Zeebmgge í Belgíu gæti orðið á Evrar- sundi. Því halda sænskir sérfræðingar nú fram og krefjast þess að öryggis- reglum ferjanna á milh Danmerkur og Svíþjóðar verði fylgt harðar eftir. Vissulega þyrftu að koma til margar samverkandi ástæður til þess að slys yrði en athuganir sérfræðinganna sýna að öryggisreglum er fylgt það slælega að slys er ekki útilokað. Sam- kvæmt alþjóðareglum eiga stóm stafndymar á ferjunum að vera lokað- ar áður en feijumar leggja úr höfh. En þeim reglum hefur verið fylgt fijálslega á bílaferjunum milli Dan- merkur og Svíþjóðar. Til að halda stífri ferðaáætlun kemur það oft fyrir að látið er úr höfn áður en lúgunum hefur verið lokað. „Ferjuslysið í Belgíu verður vonandi til að vekja okkur af værum blundi þannig að öryggisreglum verði fylgt betur en hingað til og að ekki verði lagt úr höfh fyrr en lúgunum hefur verið lokað," segja sænskir eftirlits- menn. Vekur umræður um Ermar- sundsgöngin Umræður hafa vaknað að nýju um göngin fyrirhuguðu undir Ermarsund milli Frakklands og Englands í kjölfar ferjuslyssins í Zeebmgge. Andstæð- ingar og fylgjendur vitna báðir jafht til ferjuslyssins. Einstöku raddir hafa kvatt sér hljóðs i tilefhi ferjuslyssins og telja að það ætti að hvetja stjórnir Frakklands og Bretlands til þess að hraða gerð gang- anna vegna hættunnar á sjóleiðinni eins og slysið í Zeebmgge sanni best. Aðrir vilja hins vegar meina að hálfu erfiðara væri að bjarga fólki úr göngunum ef slys yrði niðri í þeim eins og sprenging eða eldsvoði. Formaður bresku stjómamefhdar- innar, sem umsjón hefúr með gangaá- ætluninni, lýsti þvi yfir í gær að nefhdin mundi ekki hlýða á málflutn- ing þar sem þetta hörmulega slys yrði notað með eða á móti gangagerðinni. Neðri málstofan breska samþykkti í febrúar áætlun um gerð Ermarsunds- ganga sem eiga að verða 50 km löng og er ætlunin að þau verði fullgerð árið 1993.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.