Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987. Neytendur Aukaverkanir lyfja einka- mál lækna og lyfisala Flest lyf hafa einhverjar óæskilegar hliðarverkanir þó að í mismiklum mæli sé. Ef sjúklingur tekur inn lyf finnur hann oft fyrir þessum auka- verkunum og veit þá oftast ekki hvað er á seyði. Erlendis er skylt að láta miða með ítarlegum upplýsingum fylgja meðalinu. Hér á landi tíðkast sá einkennilegi siður að fjarlægja miða með upplýsingum um aukaverkanir úr lyfjaumbúðum. Svo langt er gengið að ef einhverjar upplýsingar er að finna á umbúðunum sjálfum er ræki- lega límt yfir þær til að tryggt sé að sjúklingur viti nákvæmlega ekki neitt um þau lyf sem hann tekur inn. Þetta eru náttúrlega óhæf vinnu- brögð, það er ekki á nokkum hátt réttlætanlegt að halda svo mikilvæg- um upplýsingum sem þessum leyndum fyrir fólki. Fólk er alveg nógu þroskað til að leggja sjálft dóm á slíkar upplýs- ingar. Lyfsalar ættu að sjá sóma sinn í að prenta þessa miða á íslensku og láta þá fylgja hverju lyfi, það gæti orðið til að minnka til muna misnotk- un á lyfjunum. Myndin sýnir nokkur lyf sem öll eiga það sameiginlegt að vera mikið gefin og hafa miklar aukaverkanir. Það heyrir til undantekninga að læknir láti sjúkling -PLP vita fyrirfram um aukaverkanir og lyfsalar fjarlægja upplýsingaseðla úr umbúðunum. Verslunin Sjávarkistan, Páll Höskuldsson ásamt samstarfsfólki. Sjávarréttaverslun og skyndibrtastaður Á fimmtudaginn var opnuð á Skóla- vörðustíg sérverslun með fisk og sjávarrétti og á mánudaginn opnaði sjávarréttabar í tengslum við verlun- ina þar sem hægt verður að kaupa heita sjávárrétti. Verða þar á boðstól- um fimm réttir auk þess sem boðið verður upp á rétt dagsins. Þar sem allt er í tengslum við verslunina er allur fiskur unninn af henni og því hægt að halda verði í lágmarki. Réttur dagsins kemur því til með að kosta um 250 krónur. Verslunin sérhæfir sig algerlega í fiski. Þar er boðið upp á allar hefð- bundnar fiskvörur og reynt eftir fremsta megni að bjóða upp á eitthvað óvenjulegt á hverjum degi. Þegar við litum inn fengust koníakslegnar gellur og marineraður steinbítur, svo dæmi séu tekin. Sjávarkistan, en svo nefnist verslun- in, býður einnig upp á sjávarréttars- amlokur og stefiit verður að því að bjóða upp á fiskisnittur í framtíðinni. Verslunin býður upp á sjávarrétti á öllum vinnslustigum. Þar fæst m.a. ópilluð rækja og hægt er að kaupa allt frá heilli ýsu upp í mjög unna vöru, s.s. koníakslegnar gellur. -PLP Hjálpar- kokkar húsmóður- innar eða eilíf sæla í töfluformi Nútímamaðurinn á við eitt vandamál að stríða, öðrum fremur, en það er stressið. Við því tekur hann alls kyns lyf og heldur sér þannig gangandi langt út fyrir þau mörk sem eðlileg gætu talist. Um mikla ofhotkun er að ræða á mörg- um þessara lyfja og oft eru þau því beinlínis vímugjafar. Samkvæmt tölum frá landlækn- isembættinu hefur notkun róandi lyfla þó minnkað töluvert undan- farin ár. Árið 1970 neytti tíundi hver íslendingur slíkra lyfja dag- lega en 1984 var neyslan heldur minni en þá neyttu um 65 af hveij- um þúsund Islendingum slíkra lyfla daglega. Neysla benzódíazep- in lyfja er þó jafhmikil nú og 1970. Samkvæmt íslensku lyfjabókinni eru þessi lyf sefandi fyrir suma starfsemi miðtaugakerfisins. Þau eru notuð við krömpum eins og flogaveiki- og hitakrömpum. Þau eru einnig notuð við bráðum hug- sýkistilvikum eins og kvíða, óróleika og spennu. Einnig kemur fram í bókinni að sum þessara lyfja eru mest seld allra lyfseðilsskyldra lyfia á íslandi og er það óhugnan- leg staðreynd. Áukaverkanir þessara lyfja eru drungi, þreyta, höfuðverkur, svimi, óöruggar hreyfingar, vöðvaslen, og áhugaleysi fyrir umhverfinu. Einnig eru þessi lyf andlega og lík- amlega vanabindandi. Ekki eru tök á að birta nöfii allra lyfja af þessum flokki hér en þessi eru þekktust: díazepam, dumolid, halcion, librium, mogadon, stesolid ogvalíum. -PLP | Upplýsingaseðill í til samanburðar á heimiliskostnaði i Hvað kostar heimilishaldið? i i | Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- | I andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar | I fjölskvldu af sömu stærð og yðar. | I | ! Nafn áskrifanda I Heimili___________________________________________ j i ! Sími______________________________________________ [ i i ! Fjöldi heimilisfólks_______ i i Kostnaður í febrúar 1987: i_______________________________ i j Matur og hreinlætisvörur kr. ___________________ 1 Annað kr. ___________________ l I Alls kr. __________________ ! I Neytandi á Fáskrúðsfirði hafði og breytaat í hálfgerða druUu sem samband við okkur. Vildi hún lýsa ekkert er varið í.“ furðu sinni á því að í allri þeirri Það kom einnig fram í máli hennar umræðu, sem átt hefur sér stað að að eitthvað hlyti aö hafe farið úr- undanfömu um innflutning á skeiðis í forsteikingu á kartöflunum frönskum kartöflum, væri aldrei áður hefðu þær aUtaf verið stökkar minnst einu orði á gæði kartaftn- og finar, „alveg eins og ég vil hafe anna. þær“. Að hennar mati eru íslensku kart- Neytendasíðan tekur undir það öflumar engan veginn samkeppnis- með konunni að ef framleiðendur hæfar við þær innfluttu hvorki í vilja að innflutningur sé stóðvaður veröi né gæðum. „íslensku kartófl- verða þeir a.m.k. að vera samkeppn- umar linast allar upp við steikingu isferir hvað gæði varðar. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.