Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987.
13
Neytendur
Við sem heima sHjum
syndandi í sýrunum
Á súluritum hér á síðunni kemur
fram að stór hluti landsmanna neyt-
ir ýmissa róandi og svefnlyfja
daglega. Þar sem lyf þessi eru mörg
vana'bindandi gefur það auga leið
að um mikla misnotkun er að ræða.
Við snerum okkur til Þórarins Tyrf-
ingssonar, yfirlæknis á sjúkrastöð
SÁÁ, Vogi, og spurðum hann út í
þessi mál en hann er manna fróðast-
ur um hvers kyns ofneyslu lyfja. „Við
verðum mikið varir við misnotkun á
þessum lyflum enda sjáum við þenn-
an hóp. Sumir virðast geta notað
þessi lyf, rétt eins og sumir virðast
getað notað áfengi, í hófi. En svo eru
aðrir sem virðast ekki getað komið
nálægt þessum lyfjum á þess að leið-
ast út í ofnotkun."
Það kom einnig fram í máli Þórar-
ins að konur virðast misnota þessi
lyf í mun ríkari mæli en karlar.
Þannig er nærri helmingur þeirra
kvenna, sem leita meðferðar í fyrsta
skipti, ánetjaður öðrum efiium en
áfengi, meðan að karlar virðast
halda sig við stútinn.
Varðandi aukningu í notkun ró-
andi og svefnlyfja á síðari árum (sjá
meðfylgjandi súlurit) sagði Þórar-
inn: „Það eru komin ný lyf af þessum
flokki á markað sem eru skemur í
líkamanum og getur verið að lækn-
um sé lausari höndin við að ávísa á
þau. Það er þó miskilningur að halda
að þau séu hættuminni þó þau
staldri skemur við í líkamanum."
Varðandi minnkaðan hlut venju-
legra svefiilyfja kom það fram í máli
Þórarins að nýju lyfin kæmu í stað
þeirra gömlu. Þeir sem voru háðir
gömlu lyfjunum væru famir að taka
nýju lyfin í staðinn. „Við erum
komnir með hóp, sem getur ekki án
slíkra lyfja verið.
Hættan er þó mest ef neysla áfeng-
is fer saman við töku lyfjanna,
jafnvel þó ekki sé um meira að ræða
en eitt vínglas með mat,“ sagði Þór-
arinn að lokum. -PLP
100 -
V)
>3
A
HB
e
c
ö>
e
o
Lyfjaneysla á íslandi 1970 - 85
Öll róandl lyf og svefnlyf
o «- <N W m œ 0N c 3 _ (M W in
r*- 0» S s h- 0» h- * 5 0» R r- 5 0S 0 R 8 8 8 8 8
e
'3
a
w
>3
XX
<e
o
u>
e
o
100
RO 4
60 -
Lyfjaneysla á íslandi 1970
Benzódiazepínlyf
-85
/~A
O h- £ <N h- P h- P V0 h- h- 8 8 œ c $
& <^ <T» 0V <JS Ov <* 0N <^ c IN O' <T>
Ef tekin er heildarsala lyfjanna og deilt í með dagskammti þá jafngildir neyslan þvi að um 65 af hverjum þúsund neyti þeirra daglega. Linan i súluritinu táknar meðaltal.
Pokarnir eru helst til litlir en tilvalið er að skella þeim utan um skál sem
‘ notuð er við matreiðslu í örbylgjuofni. DV-mynd Brynjar Gauti
Orbylgfu-
ofnapokar
Nýlega rákumst við á poka sem
ætlaðir eru til matreiðslu í örbylgju-
ofiium, „Microwave bags“. Pokamir
eru framleiddir hjá bresku fyrirtæki,
Alcan. Þessir pokar eru ætlaðir til
þess að þíða mat í, matreiða hann
bæði í örbylgjuofnum og einnig í hefð-
bundnum bakaraofhum og loks má
frysta mat í þeim.
Við prófuðum pokana. Þeir reyndust
mjög vel í örbylgjuofni og sömuleiðis
við hrognasuðu. Hins vegar finnst
okkur að þeir séu fulllitlir, en þeir eru
30x25 cm á stærð. Pokar þessir fást í
öllum verslunum sem hafa á boðstól-
um plastpoka en þeir eru fluttir inn
af Plastprenti hf. Pakki með 15 pokum
kostar um 80 kr.
-A.BJ.
V E R SI jAN IR!
Hin sívinsœla og myndarlega
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÓK
er á leiðinni og kemur út 26. mars nk.
Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að
auglýsa í
FERMINGA RGJA FA HA NDBÖKINNI
vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild
DV, Þverholti 11, eða í síma 27022,
kl. 9-17 virka daga sem fyrst
- í síðasta lagi föstudaginn 20. mars.