Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar. blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTM1. SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 500 kr. Verð I lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Úrslit könnunar Vel gerðar skoðanakannanir eru gott lesefni, einkum skömmu fyrir kosningar. Nú gera margir aðilar skoð- anakannanir. DV hefur náð þeim árangri, að skoðana- kannanir blaðsins hafa alltaf komizt næst kosningaúr- slitunum. En kannanir ber að taka með fyllstu gát. Ekki skyldi lagt mikið upp úr lítilsháttar fylgisbreyting- um flokka frá einni skoðanakönnun til annarrar. Þar koma til skekkjumörk í slíkum könnunum. Þá skyldu menn fara varlega í að draga ályktanir um kosningaúr- slit vegna kannana vikum eða mánuðum fyrir kosning- ar. Kannanir DV segja okkur í aðalatriðum, hvernig landið liggur. En eftir er aðalþáttur kosningabaráttunn- ar. Fylgi flokkanna getur enn breytzt verulega, einkum þegar hinir fjölmörgu óákveðnu gera upp hug sinn. Lítum á, hvernig staðan er núna. Alþýðuflokkurinn hefur það, sem af er árinu, legið rétt undir 20 prósentum. Þetta er svipað og flokkurinn hafði fyrir tveimur árum. Þá minnkaði fylgið áberandi haustið 1985. En veigamesta breytingin frá því fyrir áramót er sú, að Alþýðuflokkurinn hefur misst aftur til Sjálfstæðisflokksins fylgi, sem hann tók af Sjálfstæðis- flokknum í byrjun vetrar. Staðan er nú sú, að fylgi Alþýðuflokksins er álíka mikið og fylgi þess flokks og Bandalags jafnaðarmanna var samanlagt í síðustu kosningum. Þetta er ekki skrýtið, miðað við að helztu foringjar Bandalags jafnaðarmanna hafa gengið til liðs við Alþýðuflokkinn. Fylgi Framsóknarflokksins er nú um 16 prósent í könnun DV. Fylgið hefur nokkuð rokkað till nálægt og ofan við þá tölu. Framsókn fékk 19 prósent í síðustu kosningum. Nú má flokkurinn illa við fylgistapi, einkum þar sem ný kosningalög valda meira jafnræði en áður, svo að þingmönnum Framsóknar fækkar þeirra vegna. En menn skyldu ekki flýta sér að vænta fylgistaps Fram- sóknar í kosningunum í lok apríl. Munurinn er ekki meiri en svo, að Framsóknarflokkurinn gæti unnið hann upp með sterkri kosningabaráttu. Framsóknarforin- gjarnir eru öflugir á landsbyggðinni. Þeir gætu náð til sín fylgi að nýju, þegar þeir sýna sig á fundum í sínum kjördæmum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú svipað fylgi og í síð- ustu kosningum, eftir að hann nældi að nýju í fylgið frá Alþýðuflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn gæti sem hægast haldið þessu og grætt svo þingsæti á nýju kosn- ingalögunum. En þó verða sjálfstæðismenn að hafa hugfast, að flokkurinn hefur oftast fengið meira fylgi í skoðanakönnunum nokkru fyrir kosningar en fylgið hefur reynzt á kjördag. Hlutfall sjálfstæðismanna hefur tilhneigingu til að lækka, þegar hinir óákveðnu taka loks afstöðu. Ætti Sjálfstæðisflokkurinn að vinna á, þyrfti hann að komast hærra í könnunum en nú er. Mest áberandi í síðustu könnun DV er, að Alþýðu- bandalagið tekur fjörkipp. Fylgi flokksins er þó undir því, sem var í síðustu kosningum. En alþýðubandalags- menn hafa farið af stað með elju, til dæmis í Reykjavík. Þeir eiga möguleika á að ná því fylgi, sem þeir fengu í síðustu kosningum. Þeir unnu, ásamt Alþýðuflokki, á í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra. Til þess að vinna á núna, þurfa alþýðubandalagsmenn að herða sig tals- vert. Samtök um kvennalista hjakka nokkuð í sama farinu í könnunum. Þau munu líklega fá meira fylgi en síðast í kosningunum. Haukur Helgason. „A landsfundi Sjálfstæðisflokksins blessaði Þorsteinn Pálsson þá „þjóöarsátt" sem hann taldi að ríkti um kjaramálin í landinu. Þessi þjóðarsátt er þó ekki til í hugum fólksins. Hún er bara skrifborðsplagg hjá þeim sem klappa hver fyrir öðrum á fundum í Stjórnarráðinu og Garöastrætinu.“ Fjólskyldan, launin og velferðin Við búum í fbgru landi. Auðugustu fiskimið heims eru í hafinu í kring. Fossar og ár, hverir og jarðhiti eru dýrmætar orkulindir. Verkkunn- átta, þekking og menntun eru hér útbreiddari en meðal annarra þjóða. Það er sjaldgæft að skilyrði til fram- fara og góðra lífskjara séu eins hagstæð og hér. íslendingar hafa engu að síður á undanfömum árum verið að dragast aftur úr. í nágrannalöndum okkar em kjörin betri, launin hærri, vinnu- tíminn styttri, húsnæðiskerfið hagstæðara, tryggingar öflugri, skólar, sjúkrahús og heilsugæsla í örari vexti. Raunverulegt jafiirétti kvenna og karla er þar einnig lengra á veg komið. Við g„tum ekki lengur verið stolt af samanburðinum við þær þjóðir sem við helst viljum líkjast. Það er veruleg hætta á að þróunin verði áfram okkur í óhag. Þessu þarf að snúa við. Hér em allar aðstæður til að gera ísland að fyrirmynd hvað lífskjör, fjölskyldumál og almenna velferð snertir. Það er réttara nú en nokkru sinni fyrr að okkar land á ærinn auð ef við kunnum að nota hann. Lífið þar 09 hér Þúsundir Islendinga hafa á und- anfömum árum kosið að setjast að erlendis. Fjölskyldur flytja úr landi. Námsmenn með dýrmæta þekkingu koma ekki heim. Slík blóðtaka er hættumerki fyrir litla þjóð. Svör hinna brottfluttu em oftast á einn veg. Kaupið heima er of lítið, vinnutíminn of langur, húsnæðis- málin em að sliga fólk, aðbúnaður að bömunum lakari. Heima höfðum við engan tíma fyrir fjölskyldulíf og tómstundir. Lífið var bara eilíft strit. Héma - og þá em Noregur, Dan- mörk og Svíþjóð oft nefnd - erum við búin að vinna klukkan fjögur, frí um allar helgar, engar áhyggjur af húsnæði eða dagvistarmálum og tekjumar samt meiri. Heima sást fjölskyldan aldrei. Hér höfum við tíma til að vera saman. Betri lífskjör - hærra kaup Það er brýnasta verkefhi næstu ára að snúa þessari öfugþróun við. Landflótti getur ekki haldið áfram. Við þolum ekki að lífskjörin á ís- landi verið sífellt verri og verri í samanburði við Norðurlönd og vel- ferðarþjóðfélögin á meginlandi Evrópu. Þegar við erum hvað laun, vinnutíma og heimilisaðbúnað snertir orðin verr á vegi stödd en jafhvel ítalir, sem löngum hafa verið taldir aftarlega á merinni, þá er kominn tími til að hefja öfluga bar- áttu fyrir hærri launum og betri lífskjörum. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins blessaði Þorsteinn Pálsson þá „þjóð- arsátt“ sem hann taldi að ríkti um kjaramálin í landinu. Þessi þjóðar- sátt er þó ekki til í hugum fólksins. Hún er bara skrifborðsplagg hjá KjaUariim Ólafur Ragnar Grímsson prófessor sleppa við skattana. En ekki fyrir íslenskt launafólk. Á næstu mánuðum þurfa því að verða þáttaskil í launabaráttunni í landinu. Það verður að gera kröfuna um 35.0fXM5.000 króna lágmarks- laun að veruleika. Það verður að veita þeim sem vinna við sköpun útflutningsverðmæta og þeim sem vinna við uppeldi æskunnar og umönnun sjúkra og aldraðra for- gang í nýju launakerfi. Ríkisstjóm og ráðamenn, sem ekki gera slíka stefriubreytingu að kjama allra aðgerða í kjaramálum, eiga bókstaflega ekki rétt á að ráða ör- lögum íslands. Þeir munu bera ábyrgðina á því að íslendingar halda áfram að dragast aftur úr öðrum þjóðum. Ný fjölskyldustefna En það er ekki nóg að heyja kjara- baráttuna á þröngum grundvelli launakerfanna. Það verður líka að „Það þarf ekki að tala lengi við fólkið á vinnustöðunum vítt og breitt um landið til að komast að því að það ríkir mikil reiði út í hin lélegu lífskjör í landinu.“ þeim sem klappa hver fyrir öðrum á fundum í Stjómarráðinu og Garða- strætinu. Konumar í frystihúsunum kann- ast ekki við neina þjóðarsátt um kaupið sitt. Karlamir í saltfiskinum blessa ekki launaumslagið sem skil- ar ekki nema rúmum þrjátíu þúsundum fyrir langan vinnudag vikuna út og inn og flestar helgar. Sama gildir um kennarana, hjúkr- unarfólkið, fóstrumar, bygginga- mennina, iðnverkafólkið og alla hina sem þurfa að framfleyta fjöl- skyldum sínum af upphæðum sem þættu hneyksli í fyrrgreindum lönd- um. Það þarf ekki að tala lengi við fólkið á vinnustöðunum vítt og breitt um landið til að komast að því að það ríkir mikil reiði út í hin lélegu lífskjör í landinu. Þeir sem trúa á „þjóðarsátt" Þorsteins Pálssonar ættu að yfirgefa hægindastólana sína og drífa sig út á vinnustaðina. Þar kæmust þeir að vemleikanum. Vonbrigðin vegna lélegra launa nálgast oft örvæntingu. Nýtt launakerfi Fólkið í landinu, sem vinnur við sköpun verðmæta í sjávarútvegi og iðnaði, við útflutningsframleiðslu, uppeldi, heilsugæslu og umönnun, vill nýtt launakerfi og betri lífskjör. Það hafnar öllum sem vilja „þjóðar- sátt“ um óbreytt ástand. Það skilur ekki að þetta sé hin „rétta leið“, svo vitnað sé í kjörorð Sjálfstæðisflokks- ins. Kannski rétt leið fyrir heildsal- ana og atvinnurekenduma . sem taka tillit til annarra þátta sem skapa fjölskyldunum ánægjulegt líf. Þess vegna er nú vaxandi hljóm- gmnnur fyrir því að setja víðtæka fjölskyldustefhu á oddinn. í slíkri stefnu yrði kveðið á um: 1. Nauðsyn á nýju húsnæðiskerfi sem tryggði öllum gott og heilsusam- legt húsnæði án þess að greiðslu- byrðin yrði umfram hóflegt hlutfall af dagvinnulaunum. 2. Styttingu vinnudagsins í áföng- um á næstu árum, samfelldan skóladag og uppbyggingu dagvistar og þannig stuðlað að því að vinna og skólavera falli saman, foreldrar og böm geti notið meiri samvista og báðir foreldrar hafi jafna aðstöðu til að sinna starfi og heimili. 3. Lengingu fæðingarorlofs í eitt ár til að auðvelda báðum foreldrum að njóta samvista við bömin á fyrsta árinu. 4. Sama rétt kvenna og karla á öllum sviðum þjóðlífsins. Betra mannlíf Mörg fleiri atriði em kjaminn í þeirri fjölskyldustefhu sem Islend- ingar ættu á næstu árum að setja í öndvegi. Öryggi og farsæld fjölskyl- dunnar em forsendur þess að við getum fylgt öðrum siðmenntuðum þjóðum á braut til betra mannlífs og aukinnar velferðar. Við búum í auðugu og gjöfulu landi. Við ættum því í raun að geta verið öðrum framar hvað snertir lífs- kjör og almenna velferð. ísland ætti einnig í þessum efrium að geta orðið öðrum þjóðum fyrirmynd. Ólafur Ragnar Grimsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.