Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987. 23 Dægradvöl um að nemandinn veit með meiri vissu hvað við tekur að námi loknu. Fínn fiskur - ágætis tekjur Flestir strákanna höfðu ungir kynnst sjómennskunni, fengið í fyrstu að fara með pabba eða afa á skak eða í stuttan veiðitúr. Þó var þarna einn sem verið hafði húsa- smiður í tíu ár áður en hann fékk áhuga á sjómennskunni og annar, Sigurður Þormar að nafni, sagði að hann væri sveitavargur að austan sem réði sig eitt sinn á eina vertið í hreinasta fikti en hefur haldið sig við sjómennskuna síðan. Strákamir voru sammála um að þeir sæju fram á ágætis tekjur í fram- tíðinni að námi loknu. Þeir töluðu einhig um að fiskurinn væri að sækja á sem tískufyrirbæri ailstaðar í heim- inum og að fiskurinn í hafinu umhverfis ísland væri nú einu sinni einn sá besti sem fengist. Skemmtileg og lærdómsrík námskeið I tengslum við námið Fyrir utan námið innan veggja skólans er skylda að taka þátt í ýms- um námskeiðum eins og skyndihjálp, eldvörnum og slysavörnum. í vikunni fóru fram slík námskeið á Ytri höfninni í Reykjavík en þar liggur skólaskipið Sæbjörg sem áður var varðskipið Þór. Jón Pétursson er einn af fimm starfsmönnum um borð í skólaskip- inu og sagði hann skólaskipið vera mesta þarfaþing. Fyrir utan dagleg störf vinna starfsmennimir líka að því að gera skipið í stand. í vikunni sem leið voru nemendur í björgunaræfingum og prófuðu um leið nokkrar tegundir af flotgöllum. Þeim var einnig kennd notkun Markúsarnetsins svonefnda ásamt öðrum björgunaraðferðum og enginn lét sig muna um að henda sér í sjóinn til að gera allar aðstæður sem eðli- legastar. Nemendurnir í Stýrimannaskólan- um voru nýkomnir úr þriggja daga sjóferð með varðskipinu Óðni og voru þeir alveg sérstaklega ánægðir með þá ferð. Notaðu endurskins merki -og komdu heil/l heim. yUMFERÐAR Fararheaf\ Rto ÓDÝRT RSKE4NG PANTANASlMI 64 12 00 „Áhugasamir piltar“ Umsjónarkennari strákanna í Stýrimannaskólanum er Hrafnkell Guðjónsson. Hann hafði það um þá að segja að þetta væru áhugasamir piltar og að þeim gengi vel í náminu. Hann sagði aðsóknina að skólan- um sveiflast ár frá ári og að hún speglaði í raun og veru ástandið í sjávarútveginum á hverjum tíma. I ár sagði hann aðsóknina vera heldur meiri en í fyrra. Umsjónarkennarinn minntist sér- staklega á það að mætingarskyldan væri stíf, menn væru vandir við það strax að mæta á tilsettum tíma og líkti því við það að sá sjómaður sem ekki mætti á réttum tíma til skips væri skilinn eftir á bryggjunni. Strákamir svöruðu að bragði að þeir þyrftu nú ekki að hafa áhyggjur af þessu þegar þeir væm orðnir skip- stjórar... Kynningardagur Nemendur í Sjómannaskólanum hafa vissa sérstöðu að því leyti að þeir ílengjast yfirleitt ekki í Reykja- vík eins og svo oft vill verða um fólk utan af landi sem fer í nám í höfuð- borginni, heldur snúa flestir þeirra aftur út á land í útgerðarbæina því þar em bestu skipsplássin að sögn. Aðspurðir um félagslífið í skólan- um sögðu þeir það ekki vera með líflegasta móti en þó væm alltaf haldin skemmtikvöld öðm hvom. Þann Qórða apríl er svo kynning- ardagur Stýrimannaskólans haldinn en hann er sambærilegur við skrúfu- daginn hjá Vélskólanum og verður þá væntanlega margt fróðlegt að sjá. Texti: Dröfn Hreiðarsdóttir DV-myndir Gunnar V. Andrésson miwaw” dhilCO eruhannaöir sem aðVerlT' ' .„mGEBÐARWÓ^STA. - - I Ai .; ’ ^ sÆTÚN 8 - SÍMÞ(91>275°0 _____________________________________________________

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.