Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987. Andlát TErla Þórdís Jónsdóttir lést 28. fe- brúar sl. Hún fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1929, dóttir hjónanna Jóns Alexanderssonar og Þórunnar Jóns- dóttur. Erla varð stúdent 1948. Það samd ár giftist hún Valdimar Ólafs- syni og fæddust þeim sjö börn. Þau Erla og Valdimar slitu samvistum 1965. Erla tók kennarapróf 1966 og stundaði kennslu meðan heilsa leyfði. Hún giftist aftur 1967. Seinni maður hennar varð Helgi Kolbeins- son. Útför Erlu verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Jakob Gíslason fv. orkumálastjóri lést í Borgarspítalanum 9. mars. .Bjarni Pétursson Walen, fyrrv. bústjóri á Kópavogsbúinu, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 12. mars kl. 13.30. Ólafur Þórarinsson bakari, Bakka- koti, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju föstudaginn 13. mars kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufunes- kirkjugarði. Bergný Ólafsdóttir, áður til heimil- is á Hringbraut 74, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. mars kl. 15. Hörður Markan pipulagninga- meistari, Sörlaskjóli 66, verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtu- daginn 12. mars kl. 15. Anna Arnadóttir, Vesturbraut 10, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 12. mars kl. 13.30. Salome Jóhannsdóttir, Ási, Sel- tjarnarnesi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. mars. Messur Neskirkja Föstuguðþjónusta kl. 20 annað kvöld, fimmtudagskvöld Hallgrímskirkja Föstumessa í kvöld kl. 20.30. Dómkórinn syngur, sr. Þórir Stephensen. Kvöldbænir með lestri Passíusálma alla virka daga kl. 18 nema laugardaga. Fundir Kvennadeild Flugbjörgunar- sveitarinnar verður með fund í félagsheimilinu í kvöld, miðvikudagskvöldið 11. mars, kl. 20.30. Torfi Geirmundsson hársnyrtir kemur á fundinn. Félagið ísland-ísrael heldur félagsfund fimmtudaginn 12. mars i Hallgrímskirkju (sal í norðurvæng) og hefst hann kl. 20.30. Fundarefni: Erindi um samyrkjubú í ísrael. Sýnd kvikmyndin Helgistaðir í ísrael. Kaffiveitingar og rabb. Nýjustu blöð og tímarit frá ísrael liggja frammi. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Fundur máifundadeildar Barðstrendingafélagsins 208. fundur málfundadeildar Barðstrend- ingafélagsins verður haldinn í Domus Medica fímmtudaginn 12. mars kl. 20.30. Framsögumaður verður Reinharð Reynis- son og íjallar hann um lýðræði og sveitar- stjórnir. Á eftir svarar hann fyrirspurnum og almennar umræður verða. Þá mun Sveinn Ólafsson sýna litskyggnur, teknar í Barðastrandarsýslu. Allir velkomnir. Kvenfélag Kópavogs heldur aðalfund sinn í félagsheimili bæjar- ins 12. mars nk. kl. 20.30. Kvennadeild Skagfirðingafé- lagsins í Reykjavík er með tískusýningu og góukaffi fyrir fé- lagsmenn og gesti í Drangey, Síðumúla 35, miðvikudaginn 11. mars kl. 20.30. Leikhús Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir söngleikinn „Halló litla þjóð“ í Bæj- arbíói á fimmtudags- og sunnudagskvöld kl. 20.30. Leikstjóri er Andrés Sigurvins- son. ÞAKKARÁVARP Innilegt þakklæti til barna minna, tengdabarna, barna- barna, barnabarnabarna, frændfólks og vina nær og fjær sem heiðruðu mig með nærveru sinni, blómum, gjöfum eða skeytum á 90 ára afmæli mínu þann 22. febrúar síðastliðinn og gerðu mér daginn ógleyman- legan. Guð blessi ykkur. MARGRÉT J. HANSEN, Viðihvammi 3, Kópavogi. FISKVERKENDUR Fésavél (hausaskurðarvél) og nokkur ný plast- og járnkör til sölu. Hafið samband við auglýsingaþjón- ustu DV í síma 27022, „H-5000“. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Vöku hf„ skiptaréttar Reykjavíkur og ýmissa lögmanna fer fram opinbert uppboð á ýmsum bifreiðum o.fl. að Smiðshöfða 1 (Vöku hf.) fimmtudaginn 12. mars 1987 og hefst það kl. 18.00. Seldar verða eftirtaldar bifreiðar. R-312 R-11418 R-28407 R-37149 R-53249 R-65680 R-68114 L-1902 Y-9136 Ö-2559 R-6465 R-12626 R-28910 R-41018 R-59835 R-63860 G-11912 M-124 Y-9822 Ö-6161 R-7077 R-12799 R-28946 R-43842 R-60562 R-64398 G-12496 Y-3680 Y-11645 R-9459 R-22022 R-30627 R-46723 R-61042 R-64898 G-12963 Y-4630 Y-15082 R-10896 R-23098 R-52569 R-48275 R-62078 R-65237 G-19700 Y-4634 Z-1461 R-11096 R-23535 R-36357 R-48348 R-62578 R-67180 G-18490 Y-6232 Þ-1281 Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppþoðs- haldara eða gjaldkera. Uppþoðshaldarinn í Reykjavík í gærkvöldi Svava S. Guðmundsdótiir, húsmóðir á Snæfellsnesi: „Kastljós án viðvarana“ Ég hlustaði á neytendaþáttinn á sjöunda tímanum í gærkvöldi og varð hrifinn af skynsamlegum tillög- um Ástu R. Til dæmis um að hækka verð á sykri og þess háttar vamingi en hafa hollan og heilsubætandi mat ódýrari, þvert á það sem nú er. Þetta ætti að laga með tollabreytingu sem er sannarlega tímabært. Á meðan horfðu bömin mín á hverja ofbeldis- teiknimyndina af annarri í sjón- varpinu. Að því búnu las ég með þeim Fjölskylduna á Fiðrildaey sem er góð krakkamynd og laus við allan viðbjóð. Ég fylgdist svo með fréttum bæði í útvarpi og sjónvarpi. Það verður spennandi þegar sjónvarps- fréttamennirnir finna góðærið margumrædda, hvar það hefur lent. í útvarpi hlustaði ég á erindi Jóns Bjömssonar á Akureyri um framtíð- ina og félagslega þjónustu sem var mjög gott og vel verðugt umhugsun- arefiii. Ég hef ekki fylgst reglulega með Svarta tuminun enda höfðaði Miss Marple, Aghötu Christie, mun meira til mín. En svo kom nokkuð alveg dæmigert fyrir sjónvarpið, Kastljós án nokkurra viðvarana með Svava S. Guðmundsdóttir. ógeðslegum myndum af því hvemig dauðarefsingar em framkvæmdar. Síðast á dagskrá var ágæt fræðslu- mynd, Vestræn veröld. Sá átta ára var alveg dáleiddur fyrir framan sjónvarpið, það er að segja á meðan hann gat haldið sér vakandi, enda Óskar sérlega áheyrilegur þulur. Já, Kastljós hefði gjaman mátt reka lestina í þetta skiptið og vonandi verður framhald heimildarmyndar- innar fært framar. Því miður em þess dæmi að gott efni lendir aftast á dagskránni. Við sjáum ekki stöð 2, því höfum við ekki samanburð en mér finnst sjón- varpið hafa lagast að mörgu leyti og fréttamennirnir fylgjast vel með, til dæmis á Alþingi, í bankakerfinu og víðar. Þetta kunnum við að meta sem fáum dagblöðin fjögurra daga gömul. Tónleikar í Rokktónleikar Fimmtudaginn 12. mars munu hljómsveit- irnar Centaur, Hyskið og E-X halda tónleika á Hótel Borg. Þetta mun vera einstíeður atburður, þvi þessar hljóm- sveitir hafa aldrei allar komið fram samtímis, undir sama þaki. Tónleikar þessir hefjast kl. 22 og miðinn kostar 400 kr. Leiðrétting í 60 ára afmælistilkynningu Árna Gunn- laugssonar hrl., Hafnarflrði, í blaðinu í gær misritaðist hvenær Árni tæki á móti gestum. Stóð þar að hann tæki á móti gestum í gærkvöldi en það rétta er að hann tekur á móti gestum í kvöld, á af- mælisdaginn, eftir kl. 20.30. Biðst blaðið velvirðingar á þessum mistökum. Bann við veiðum um páska og rækjuveiðum árið 1987 Ráðuneytið hefur ákveðið eftirfar- andi reglur um stöðvun veiða um páska: 1. Bátum minni en 10 brl. eru óheim- ilar allar fiskveiðar aðrar en grásleppuveiðar frá kl. 20.00 11. apríl til kl. 10.00 árdegis 21. apríl 1987. 2. Allar þorsknetaveiðar eru bannað- ar frá kl. 20.00 14. apríl til kl. 10.00 árdegis 21. apríl 1987. Jafnframt hefur ráðuneytið ákveð- ið stöðvun rækjuveiða utan viðmið- unarlínu (úthafsrækjuveiðar) eftirgreind tímabil, að báðum dögum meðtöldum: 1. 12.-21. apríl 1987. 2. 26. júlí-4. ágúst 1987. 3. 22.-31. desember 1987. Schönbergkvöld Fimmtudaginn 12. mars nk. mun kammer- sveit Reykjavíkur efna til Shönbergkvölds í Áskirkju og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Á þessum tónleikum munu tvö kammer- verka Schönbergs verða flutt í fyrsta sinn á íslandi. Serenaða op. 24 var samin á árunum 1921-1923 og er samin fyrir mand- ólín, gítar, klarínett, bassaklarínett, fiðlu, lágfiðlu, selló og bassarödd. Einsöngvari i Serenöðunni verður John Speight og stjómandi verður Paul Zukofsky. Blásar- akvintett op. 26 var saminn 1923 24 og verður hann fluttur af blásarakvintett Reykjavíkur. Kammersveit Reykjavíkur hefur á undanförnum árum kynnt mörg af kammerverkum Arnold Schönbergs fyr- ir íslenskum tónleikagestum. Kammer- verk Scönbergs eru mjög kröfuhörð í flutningi og er það ástæða fyrir hve sjald- an þau eru fiutt, en Kammersveitin hefur nú sem oft áður notið leiðsagnar Paul Zukofsky við undirbúning þessara tón- leika. Spilalcvöld Klúbburinn Þú og ég verður með spilakvöld fimmtudaginn 12. mars kl. 20 að Mjölnisholti 14 fyrir félaga og gesti. Ýmislegt Málastofa heimspekideildar Næsta erindi verður fimmtudag 12. mars kl. 16.15 í stofu 301 í Árnagarði. Þá flytur Sigurður Hróarsson cand. mag. erindi sem nefnist „Stalín bjargar bókmenntunum". Að loknu erindi verða umræður. öllum heimill aðgangur. Stéttarfélag íslenskra félags- ráðgjafa boðar verkfall Dagana 5. og 6. mars fór fram atkvæða- greiðsla um verkfallsboðun meðal ríkis- starfsmanna í Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa. Hjá ríkinu eru nú starfandi 32 félagsmenn. 24 greiddu atkvæði, þar af voru 19 fylgjandi verkfallsboðun, en 5 á móti. Verkfall mun heíjast þann 26. mars nk. hafa samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Fyrirlestur hjá Geðhjálp Geðhjálp heldur fyrirlestur fimmtdaginn 12. mars 1987. Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur flytur erindi um sál- gæslu á sjúkrahúsum. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 á geðdeild Landspítalans, í kennslustofu á 3. hæð. Fyrirspurnir, um- ræður og kaffi verða eftir fyrirlesturinn. Allir eru velkomnir. Aðgangur er ókeypis. Hallgrímskirkja - starf aldr- aðra Opið hús verður í safnaðarsal kirkjunnar á morgun, fimmtudag, kl. 14.30. Guðrún Halldórsdóttir skólastjóri flytur erindi um Ingibjörgu Ólafsdóttur, framkvæmda- stjóra í Kaupmannahöfn, og Ólafur Magnússon frá Mosfelli syngur vinsæl lög. Kaffiveitingar. Símatími hjá Krabbameins- félaginu I framhaldi af „þjóðarátaki" 1986 mun Krabbameinsfélagið nú auka þjónustu við almenning. Frá og með 16. mars nk. verð- ur símatími alla virka daga frá kl. 9-11 í síma 91-21122. Þar með gefst landsmönn- um tækifæri til að hringja og fá upplýsing- ar og ráðgjöf um það er viðkemur krabbameini. Munu hjúkrunarfræðing- arnir Hjördís Jóhannsdóttir og Bryndís Konráðsdóttir vera við símann, svara fyr- irspurnum og veita ráðgjöf, m.a. leiðbeina fólki við að ná fundi annarra sérfræðinga þegar ástæða er til. Samtök Svarfdælinga í Reykjavík halda kökubasar sunnudaginn 15. mars kl. 15 í safnaðarheimili Langholtskirkju. Afnám togveiðibanns á Mánáreyjahrygg Síðan 5. september 1986 hafa togveiðar verið bannaðar á svæði á Ménáreyja- hrygg. 1 sl. viku var svæði þetta kannað undir eftirliti veiðieftirlitsmanna sjávar- útvegsráðuneytisins og voru niðurstöður þær að smáfiskur er genginn af svæðinu en afli tregur. Með hliðsjón af þessu hefur ráðuneytið fellt togveiðibannið úr gildi 10. mars sl. Bækur Islensk fyrirtæki 1987 Frjálst framtak hf. hefur nú sent frá sér bókina „íslensk fyrirtæki 1987“. Er þetta í sautjánda sinn sem Frjálst framtak gefur út slíka fyrirtækjaskrá. Bókin Islensk fyr- irtæki skiptist í fimm meginkafla. Fyrsti kaflinn fjallar um íslensk útflutningsfyrir- tæki, annar kaflinn er vöru- og þjónustu- skrá, þriðji kaflinn er umboðsskrá, fjórði kaflinn er fyrirtækiaskrá og fimmti kaflinn er skipaskrá. I kaflanum vöru- og þjónustuskrá er greint frá því hvaða fyrir- tæki versla með ákveðna vöru eða þjón- ustu og í umboðaskránni eru upplýsingar um hvaða fyrirtæki eru með umboð fyrir ákveðnar vörur eða vörumerki. Fyrir- tækjaskráin er fyrirferðarmesti kafli bókarinnar. Þar er greint frá um 9.500 starfandi fyrirtækjum á Islandi og veittar um þau ýmsar upplýsingar, m.a. hvert er heimilisfang þeirra og nafnnúmer. Um flest fyrirtæki eru nánari upplýsingar, m.a. fjallað um starfssvið þeirra og stjóm- un. 1 skipaskránni eru veittar upplýsingar um öll íslensk skip, m.a. greint frá ein- kennisstöfum þeirra, stærð, skráningu, vélartegund, eiganda o.fl. Ritstjóri bókar- innar Islensk fyrirtæki er Erla Einars- dóttir og er þetta fjórða árið sem hún ritstýrir bókinni. Bókin er 1.124 blaðsíður. Hún er prentunnin hjá Prentstofu G. Ben- ediktssonar í Kópavogi og bundin hjá Bókfelli hf. Kápuhönnun annaðist Aug- lýsingastofa Emst Bachmanns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.