Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Síða 37
Sviðsljós Minikjóll og frakki frá þeim fræga Valentino. Trefill i ýkjustærð er á dag- skrá hjá honum líka. Tískan: Haust og vetur í Mílanó Sú svipþunga iðnaðarborg - Mílanó - iðar af lífi í þessari viku því tískusýningarnar standa nú sem hæst og á döfinni er haust- og vetr- artískan árið áttatíu og sjö til átta. Þar kemur mest á óvart óþekktur japanskur hönnuður - Toshi Moon - sem hannar yngri línuna hjá Va- lentino. Hann sigtar á stuttu pilsin og leðrið sem svo margir aðrir þessa dagana. Gianfranco Ferre gerði ljósmynd- urum það til þægðar að bjóða Karólínu prinsessu af Mónakó á sýn- inguna. Hún mætti í hermannabláu átfitti gerðu af meistaranum og sat undir flasshríðinni án þess að depla auga - vanir menn á báðar hendur. Hefðin, sem býður að slíku húllum- hæi skuli ljúka með brúðinni í lokin, var brotin hjá tískuhúsi Byblos en þar kvnntu hinir bresku hönnuðir - Keith Vartv og Alan Cleaver - den- imklædda brúði í upphafi sýningar- innar. Nú er beðið eftir æðstapresti ítal- anna - Giorgio Armani - en hann er yfirleitt síðastur með sína sýningu og fer þar að dæmi hins ókrýnda franska meistara - Yves Saint Laur- ent. Hgildarlínan næsta árið ræðst að miklu leyti af hugmyndum þeirra tveggja. (t.v) Gianni Versace sýndi snilldartakta i Milan j. Sérstaka athygli vakti þessi svarta og hvita dragt-stutt pilsið er með streng að ofan og neðan. (t.h.) Kvöldklæðnaður frá Gianfranco Ferre. Jakkinn ur röndóttu silki og röndóttur kasmírtrefillinn er í sömu litunum. Halló, Mikki! Söngvarinn Billy Joel fór með fjölskyldunni í Disneyland í síðustu viku. Þar var þessi mynd tekin er dóttir hans og sýningarstúlkunnar Christie Brinkley klappar á nefið á Mikka mús og er nokkuð greinilegt að vel fer á með þeim tveimur í undralandi harna á öllum aldri. Ólyginn sagði... Liz Taylor fékk dótturina Mariu til þess að endurskoða skilnaðaráformin við eiginmanninn, Steve Carson. Hún kom á viðræðufundi þar sem hjónakornunum var gert skiljan- legt að slíkt brambolt hefði skaðleg áhrif á hina fjögurra ára dóttur þeirra - Elizabeth. Sambúð er því hafin á ný og Liz fékk hæstu einkunn í sáttasemjarahlutverk- inu. Liza Marie Presley er flogin úr hreiðrinu. Nú býr þetta einkabarn rokkkóngsins fræga í eigin íbúðskammt frá móðursinni í Los Angeles og segir sagan að allt hafi þetta gerst með samþykki móðurinnar - Priscillu Presley. Hún vildi að dóttirin yrði sjálfstæð sem allra fyrst og hræddist að Lisa lenti í sömu ógæfu og Presley kóngur sjálfur í lifanda lífi - að verða tilfinningalega háð foreldr- unum það sem eftir væri ævinnar. Dolly Parton féll fyrir einmanalegum besta vini mannsins fyrir utan Lincoln Cent- er í Nújork. Sú þrælsvelta bomba gaf klárnum gulrót og launaði sá grái fyrir sig með því að reyna að gleypa hendina á stjörnunni með i sama bitanum. Dolly æpti há- stöfum og nærstöddum tókst að koma henni til hjálpar áður en blóðið tók að renna úr fingrunum. Sjálf nærist Dolly sama og ekkert þessa dagana og hefur skafið af sér ófá kilóin þannig að barm- stærðin margrómaða erekki nema svipur hjá sjón - sönnum aðdá- endum hinnar brjóstgóðu kvensu til ómældrar sorgar og armæðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.