Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1987, Síða 24
24
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987.
Tippað á tólf
Gary Bannister og féiagar hjá QPR eiga erfiöan leik fyrir höndum gegn Chelsealiðinu.
TIPPAÐ _,
ATOLl
Umsjón: Eiríkur Jónsson
Getraunaspá
fjölmiðlanna
LEIKVIKA NR.: 35
Aston Villa . Everton 2 2 2 2 2 2 X
Leicester West Ham 1 X 1 1 2 1 2
Liverpool .Nottingham F 1 1 1 1 1 1 1
Luton .Coventry 1 1 1 1 1 1 1
Manchester City... .Watford X X X 1 2 X 1
Newcastle .Manchester Utd X X X 1 2 2 X
Norwich .Sheffield Wed 1 1 1 1 1 1 1
Queens Park R .Chelsea 1 2 1 X 1 1 1
Wimbledon Arsenal X 2 1 2 2 2 X
Leeds .Ipswich 1 1 1 1 X 1 1
Reading .Portsmouth 2 2 1 2 1 2 2
Sheffield Utd .Oldham 1 X X 2 X 1 1
Hve margir réttir eftir 34 leikvikur: 166 162 164 155 161 174 158
Enska 1. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L II J T Mörk _______________________U J T Mörk S
35 13 3 1 42 -10 Everton.............. 8 4 6 24 -17 70
36 12 3 3 36 -15 Liverpool............ 8 4 6 26 -21 67
33 11 3 4 32 -13 Tottenham............ 7 3 5 24 -20 60
36 13 4 1 25 -10 Luton................ 3 7 8 16 -27 59
35 10 5 2 24 -7 Arsenal.............. 6 5 7 21 -18 58
36 8 9 1 25 -18 Norwich.............. 6 6 6 22 -29 57
35 10 7 1 31 -12 Nottingham F......... 5 3 9 24 -29 55
35 9 4 4 25 -16 Wimbledon............ 6 4 8 21 -25 53
34 12 2 3 28 -14 Coventry............. 2 6 9 10 -22 50
36 9 5 4 28 -21 Queens Park R........ 4 4 10 14 -24 48
34 11 3 4 34 -16 Manchester Utd....... 1 8 7 12 -20 47
34 9 4 3 29 -15 Watford.............. 4 4 10 25 -31 47
35 7 4 7 24 -26 Chelsea.............. 5 6 6 20 -27 46
35 8 2 7 28 -26 West Ham............. 4 6 8 19 -32 44
35 9 3 5 37 -21 Southampton.......... 3 2 13 22 -41 41
34 7 7 3 28 -17 SheffieldWed......... 3 4 10 16 -32 41
36 7 7 4 27 -23 Oxford..........:.... 2 5 11 10 -36 39
35 8 4 6 30 -25 Newcastle............ 1 6 10 11 -30 37
36 8 6 4 35 - 21 Leicester........... 2 1 15 13 - 45 37
36 5 7 6 21 -20 Charlton............ 3 3 12 14 -30 34
36 6 7 5 20 -22 AstonVilla.......... 1 5 12 18 -46 33
35 6 5 6 22 -21 ManchesterCity........ 0 8 10 7 -29 31
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk_______________________________U J T Mörk S
36 11 6 1 35 -15 Derby............. 10 3 5 20 -15 72
35 16 2 0 34 -8 Portsmouth........... 5 6 6 12 -13 71
35 11 5 2 30 -14 Oldham............... 8 3 6 26 -22 65
36 11 4 3 25 -8 Ipswich.............. 5 6 7 27 -28 58
36 12 4 2 38 -19 Plymouth............. 3 7 8 18 -28 56
36 10 3 5 31 -18 Crystal Palace....... 7 1 10 16 -27 55
34 12 4 2 33 -12 Leeds................ 2 6 8 9 -23 52
36 9 7 2 29 -18 Sheffield Utd........ 4 4 10 17 -27 50
35 10 5 2 32 -13 Stoke............... 3 5 10 18 -27 49
35 9 4 5 23 -13 Millwall............. 4 3 10 11 -22 46
36 7 8 3 25 -18 Birmingham.......:..... 3 7 8 20 -33 - 45
35 9 2 6 25 -20 Blackburn............ 3 6 9 12 -26 44
35 7 5 5 25 -17 W.B.A................ 4 5 9 18 -23 43
34 9 3 5 27 -19 Reading.............. 3 4 10 17 -32 43
36 7 6 5 23 -20 Barnsley............. 3 6 9 17 -26 42
36 5 7 6 16 -16 Grimsby.............. 5 5 8 19 -31 42
35 7 5 5 19 -16 Sunderland........... 3 5 10 20 -32 40
35 7 5 6 29 -25 Bradford............. 3 4 10 18 -28 39
35 9 3 5 18 -40 Shrewsbury........... 2 3 13 13 -35 39
36 7 6 5 32 -28 Huddersfield......... 2 5 11 13 -30 38
34 6 5 5 16 -21 Hull................. 3 6 9 13 -28 38
35 5 6 7 18 -19 Brighton............. 2 5 10 13 -27 32
Jafhteflin
banabiti
tippara
Fimm jafntefli um síðustu helgi,
þar af fjögur í röð, gerðu að engu
vonir um tólf rétta. Alls voru 7
raðir með ellefu réttum leikjum og
fyrir það eru afhentar 71.745 krón-
ur en 103 raðir fundust með 10
réttum og fær hver tippari 2089
krónur. Alls var potturinn 717.382
krónur.
Um páskana eru leiknar tvær
umferðir. Leikið verður á laugar-
daginn og mánudaginn annan í
páskum. Páskaleikimir hafa oft
mikil áhrif á lokastöðu liðanna en
leikmenn þeirra liða sem ekki eru
í baráttu slaka oft á og fá sér stóra
steik í matinn og páskaegg og búð-
ing í ábæti. Slíkt kann ekki góðri
lukku að stýra enda eru úrslit
stundum óvænt.
Chris Waddle hjá Tottenham á góða
leiki öðru hverju en hverfur þess á
milli.
1 Aston Villa - Everton 2
Aston Villa á ekki sjö dagana sæla um þessax mundir í
næstneösta sæti deildarinnar á meðan Everton trónir á
toppnum og hefur unniö fimm síöustu leiki sína. Af síöustu
sex viðureignum liöanna á Villa Park hefúr Everton unniö
þrjá leiki en ViIIa einn. Útisigur.
2 Leicester - West Ham 1
Leicester hefur náð 20 stigum úr síðustu níu heimaleikjum
sem er mjög góöur árangur. West Ham hefur einungis
unnið einn leik af síðustu tíu leilcjum liösins. í liðinu eru
margir góðir knattspymumenn en lykilmenn liðsins, svo
sem Alvin Martin, Frank McAvennie og Alan Devonshire,
hafa verið meiddir af og til í vetur þannig að liðið er ekki
betur statt en raun ber vitni. Heimasigur.
3 Liverpool - Nottingham Forest 1
Liverpool hefur tapað síðustu fjórum leikjum liðsins og slíkt
flokkast undir náttúruhamfarir í Liverpoolborginni. Notting-
ham Forest hefur ekki verió sannfærandi á Anfield
undanfarin ár og hefur tapaö þar síðustu fimm árin. Heima-
sigur.
4 Luton - Coventry 1
Heimavallarárangur Luton er mjög góður, einungis eitt tap
það sem af er vetri. Coventry hefur staðið sig bærilega í
deildinni en betur í bikarkeppninni þar sem liðið er komið
í úrslit eftir sigurleik gegn Leeds um síðustu helgi. Nú fær
liðið bakslag í Luton. Heimasigur.
5 Manchester City - Watford X
Manchester City er fast við botninn á 1. deildinni en Wat-
ford töluvert ofar. Liðið á í vandræðum með markmenn
um þessar mundir. Aðalmarkvörðurinn Coton meiddur og
hinir ekki sérlega snjallir. Manchester City hefur ekki unn-
ið neina af síðustu ellefu viðureignum sínum og tapaði
meðal annars heima fyrir Southampton um síðustu helgi.
Jafntefli.
6 Newcastle - Manchester United X
Newcastle hefur komið sér af botninummeð nokkurri sigur-
göngu undanfarið. Liðið hefur ekki tapað leik í síðustu sjö
viðureignum sínum. Manchester United hefur ekki spilað í
hálfan mánuð en hefur ekki tapað nema tveimur af síðustu
tólf leikjum sínum. Newcastle er ávallt erfitt heim að sækja
enda vel stutt af tugum þúsunda áhorfenda. Jafritefli.
7 Norwich - Sheffield Wednesday 1
Norwich kom úr 2. deild í vor og hefur staðið sig frábær-
lega vel í vetur. Liðið er í 6. sæti og vann Liverpool um
siöustu helgi. Sheffield Wednesday er ákaflega slappt um
þessar mundir og viróast leikmenn liðsins beinlínis vera
ofþjálfaðir. Sheffieldliðið hefur einungis unnið tvo af síðustu
þrettán leikjum sínum. Heimasigur.
8 QPR - Chelsea 1
OPR hefur verið frekar slakt í síðustu fimm leikjum sínum
en enginn þessara leikja vannst af hálfu QPR. Chelsea hef-
ur átt góða spretti undanfarið, tapaði að vísu sínum síðasta
leik en vann fjóra í röð þar á undan. OPR leikur skemmti-
lega á gervigrasinu heima. í liðinu eru margir nettir spilarar
sem snúa á stórkarla Chelsea. Heimasigur.
9 Wimbledon - Arsenal X
Wimbledon er spútnildið ársins í Englandi. Hefur skellt
Lundúnaliðunum Charlton, Watford, Tottenham, Chelsea
og West Ham. Ekki slakt, en Arsenal er eftir. Nú er tækifær-
ið því þrátt fyrir sigurinn í Litflewoodsbikarkeppninni hafa
óhagstæðir vindar blásið um marmarahallir barónanna á
Highbury og liðið hefur einungis unnið einn leik í deildinni
síðan í janúar. Jafritefli í baráttuleik.
10 Leeds - Ipswich 1
Leeds er nokkuð sterkt á heimavelli og hefur unnið fjóra
síðustu heimaleiki sína en gerði fjögur jafrttefli í röð þar á
undan. Ipswich er ekki sterkt á útívöllum, hefur einungis
unnið 5 leiki af átján í vetur. Ipswich er í fjórða sæti í 2.
deild með 55 stig en Leeds litlu neðar með 51 stig, en á
tvo leiki til góða. Heimasigur.
11 Reading - Portsmouth 2
Portsmouth er í 2. sæti í 2. deildinni en hefur ekki verið
sannfærandi á útivöllum. Liðið hefur unnið fimm leiki, gert
sex jafntefli en tapað sex leikjum. Reading er um miðja
deildina og hefur staðið sig best á heimaveUi. Liðið hefur
ekki að neinu að keppa en Portsmouth berst fyrir því að
vinna deildina. Útisigur.
12 Sheffield United - Oldham 1
Sheffield United hefur verið sterkt í síðustu leikjum sínum.
Liðið er í áttunda sæti eins og er og hefur ekki tapað nema
tveimur af 18 heimaleikjum. Oldham er í þriðja sæti og
hefur tapað sex leikjum á útivelli. Liðið er ekki í nógu miklu
jafnvægi um þessar mundir og tapar.