Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 9. MAI 1987.
Stjómmál
Samstarfsvilji milli Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks
afstaða Alþýðubandalagsins til nýsköpunarstjómar og samruna við Alþýðuflokk hitamál miðstjórnarfundar
Hugur forystumanna Alþýðubanda-
Jagsins til hugmyndar um nýsköpun-
arstjóm og sameiningu við Alþýðu-
flokk með stofhun nýs jafnaðar-
mannaflokks virðist hafa snúist í lok
síðustu viku.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, ræddi fyrstu
dagana eftir kosningar við alþýðu-
bandalagsmenn, þeirra á meðal
Svavar Gestsson formann, ekki aðeins
um samvinnu flokkanna í ríkisstjóm
með Sjálfstæðisflokki heldur einnig
um sammna þeirra.
Fálega var tekið í hugmyndir for-
manns Alþýðuflokksins og þeim
nánast haifnað. Alþýðubandalagið
virtist ekki tilbúið að taka þetta mál
til umræðu.
Boltinn fer að rúlla
Nokkrum dögum síðar, í kringum
1. maí, hátíðisdag verkalýðsins, var
komið allt annað hljóð í strokkinn.
Hugmyndin hafði náð hljómgrunni
hjá verkalýðsforingjum í Alþýðu-
bandalaginu. Snjóboltinn var farinn
að velta.
Kunningjar við samningaborð
vinnumarkaðarins, verkalýðsleiðtog-
ar í Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi
og Sjálfstæðisflokki og forystumenn
Vinnuveitendasambandsins, hafa
markvisst unnið að því alla þessa viku
að afla hugmyndinni um nýsköpunar-
stjóm fylgis.
Umræðan er einnig komin á fullt í
forystusveitum flokkanna. Alþýðu-
flokksmenn leiddu hana í fyrstu.
Forystumenn í Alþýðuflokki virðast
hafa hringt skipulega í þingmenn og
aðra áhrifamenn í Alþýðubandalagi.
Formenn flokkanna þriggja, Þor-
steinn Pálsson, Jón Baldvin Hanni-
balsson og Svavar Gestsson, em taldir
hafa verið í nær daglegu símasam-
bandi um nýsköpunarstjóm allt frá
síðustu helgi.
Forystumenn VSÍ talsmenn
nýsköpunar
Þorsteinn Pálsson er fyrrverandi
formaður Vinnuveitendasambandsins.
Tveir eftirmenn hans, Magnús Gunn-
arsson og Þórarinn V. Þórarinsson,
em sagðir með dyggustu talsmönnum
nýsköpunar þessa dagana, einnig Víg-
lundur Þorsteinsson, formaður Félags
íslenskra iðnrekenda.
Vilhjálmur Egilsson, nýorðinn fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðsins, áður
hagfræðingur Vinnuveitendasam-
bandsins, varaþingmaður og formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna,
hefur lýst sig andvígan samstarfi við
Framsóknarflokkinn. Segir hann
flokkinn hafa rekið kosningabaráttu
sína af ótrúlegri skammsýni.
Skrif Páls Péturssonar
Vilhjálmur slóst í Norðurlandskjör-
dæmi vestra við Pál Pétursson,
formann þingflokks Framsóknar-
flokksins. Páll Pétursson réðst í
kosningabaráttunni harkalega að
Sjálfstæðisflokknum og sérstaklega
Þorsteini Pálssyni, meðal annars í
blaðagreinum í Tímanum.
Þessi skrif þingflokksformanns
Framsóknar kunna að verða afdrifa-
rík. Fullyrt er að einmitt þau eigi
stóran þátt í þvi að Þorsteinn Pálsson
kýs að halla sér að Alþýðuflokknum.
Þorsteinn hefur þegar hafhað hug-
mynd Steingríms Hermannssonar um
að endurreisa núverandi ríkisstjóm
með þriðja flokki. Hann hefur einnig
lýst því yfir, eins og Jón Baldvin hefur
gert, að rétt sé að fá fram hvað
Kvennalistinn hafi til málanna að
leggja.
Samstarfsvilji milli Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks
Það virðist ekki annað að sjá en
kominn sé samstarfsvilji á milli Al-
þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Það
virðist því vera órökrétt að fela for-
manni Framsóknarflokksins fyrsta
umboð til stjórnarmyndunar þótt al-
mennt hafi það verið talið líklegast.
Talsmenn nýsköpunarstjómar sjá að
ekki þýðir að ræða þann möguleika í
stjómarmyndunarviðræðum við Al-
þýðubandalagið fyrr en eftir uppgjör
á miðstjómarfundi þess um aðra helgi,
16. og 17. maí. Þeirra áætlun gerir ráð
fyrir að næsta vika fari annaðhvort í
það að láta Steingrím Hermannsson
reka sig á vegg eða í það að afskrifa
Kvennalista sem þriðja kost með Al-
þýðuflokki og Sjálfstæðisflokki.
Sameining A-flokkanna
A milli alþýðuflokksmanna og al-
þýðubandalagsmanna er í tengslum
við nýsköpunarstjóm rætt um aukið
samstarf A-flokkanna með sameiningu
fyrir augum. Fyrsta skrefið verði að
standa saman að endurskipulagningu
verkalýðshreyfingarinnar. Siðan komi
sameiginlegir þingflokksfundir og loks
sameining í sósaldemókratískum
flokki, Jafriaðarmannaflokki íslands.
Grundvallarskilvrði þess að þetta
geti gerst segja formælendur að flokk-
arnir starfi saman í ríkisstjóm.
Það er almennt viðurkennt að
verkalýðshreyfingin á við verulegan
vanda að stríða. Hún er stöðnuð, bæði
í skipulagi og vinnubrögðum. Hug-
myndin er sú að skera upp skipulag
hennar og gera vinnustaðinn að
grunneiningu þannig að samstarfsfólk
á sama vinnustað verði ekki í mörgum
verkalýðsfélögum heldur einu.
Alþýðubandalag linast
í utanríkismálum
Skoðanamunur á milli Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags hefur stöðugt
verið að minnka undanfarinn áratug.
Áherslur Alþýðubandalagsins í efna-
hagsmálum hafa breyst. Eftir að
flokkurinn fór að viðurkenna blandað
hagkerfi eru utanríkismálin nánast
það eina sem skilur flokkana að.
í utanríkismálum hefur stefna AI-
þýðubandalagsins verið að linast.
Dregið hefur úr baráttunni gegn hem-
um og NATO. Þess í stað er áhersla
lögð á friðar- og afvopnunarmál. Menn
eins og Ólafur Ragnar Grímsson hafa
gefið í skyn að tími sé kominn til að
endurskoða gömlu slagorðin.
Klofningur óhjákvæmilegur
Það er hins vegar talið óumflýjan-
legt að með sameiningu við Alþýðu-
flokk muni kvamast úr Alþýðubanda-
laginu. Hópur lengst til vinstri myndi
að öllum líkindum kljúfa sig frá og
stofna nýjan flokk vinstra megin.
Verkalýðsforkólfarnir Þröstur Ól-
afsson, Karl Steinar Guðnason,
Ásmundur Stefánsson, Guðmundur J.
Guðmundsson og Bjöm Bjömsson em
í lykilhlutverki við að sameina verka-
lýðsflokkana tvo. Hvernig fer mun
skýrast á miðstjómarfundi Alþýðu-
bandalagsins eftir viku. -KMU
Stjórnmálaforingjarnir á fundum með forseta Islands í gær. Jón Baldvin mætti fyrstur, þá Albert Guðmundsson, kvennalistakonurnar Kristin Karlsdóttir og Guðrun Agnarsdóttir og
loks Stefán Valgeirsson. DV-myndir GMA
Umboðið ekki veitt fyrr en eftir helgi
- Steingrímur og Jón Baldvin líklegastir
Fulltrúar fjögurra flokka og sam-
taka gengu á fiind forseta íslands í
gær og ræddu stöðuna í stjómmálum
og aðstæður til stjórnarmyndunar.
Daginn áður höfðu formenn Fram-
sóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags gengið á fund for-
seta í sömu erindagjörðum.
Jón Baldvin til þjónustu reiðu-
búinn
Fyrstur á fund forseta var Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins. Að loknum fundin-
um ítrekaði Jón við fréttamenn þá
skoðun sína að hann teldi æskilegt
að Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur stæðu að næstu ríkisstjóm
ásamt þriðja aðila.
Sem þriðja aðila sagðist hann enn
vilja fyrst kanna hug Kvennalistans
þrátt fyrir að honum hefði ekki
gengið greiðlega að fá svör um mál-
efhi hjá konunum. Næsti kostur við
Kvennalistann sagði Jón Baldvin að
væri Alþýðubandalagið og hann
væri nokkuð hrifinn af samstarfi við
það.
Aðspurður um samstarf við Fram-
sóknarflokkinn sagðist Jón Baldvin
ekki útiloka slíkt samstarf en hins
vegar væri ljóst að mikið bæri á
milli flokkanna. Á það bæri þó að
líta að stjómarmyndunarviðræðum-
ar gætu orðið langdregnar og því
fárra kosta völ á endanum.
Jón Baldvin sagðist enga tillögu
hafa lagt fyrir forsetann en hins veg-
ar lýst sig til þjónustu reiðubúinn
eins og honum bæri skylda til.
Albert vill í stjórnarandstöðu
Albert Guðmundsson, þingflokks-
formaður Borgaraflokksins, gekk
næstur á fund Vigdísar Finnboga-
dóttur forseta. Höfðu þau greinilega
margt að ræða því Albert var lengst
allra flokksleiðtoganna hjá forsetan-
um, rétt um eina klukkustund.
Albert sagðist ekki hafa lagt fram
neina sérstaka tillögu fyrir forsetann
en gefið allar þær upplýsingar sem
honum var unnt.
Aðspurður um óskastjóm sagði
Albert að hann teldi að best væri
fyrir Borgaraflokkinn að vera i
stjómarandstöðu næsta kjörtímabil.
Flokkurinn hefði verið stofnaður
með miklum hraða og æskilegt væri
að geta byggt hann upp í stjómar-
andstöðu auk þess sem nauðsynlegt
væri fyrir þjóðina að hafa sterka
stjómarandstöðu.
Hins vegar sagði Albert að Borg-
araflokkurinn myndi bregðast við
því kalli ef í ljós kæmi að þjóðfélag-
ið þyrfti á því að halda að flokkurinn
færi í stjóm. Ef til þess kæmi sagð-
ist Albert að sjálfsögðu fara fram á
ráðherraembætti sér til handa.
Loks var Albert spurður hvort fyr-
irgreiðslupólitík hans myndi njóta
sín ef hann yrði ekki í ríkisstjóm.
Albert sagði þá að þeir sem væm
mest að reyna að gera hann tor-
tryggilegan fyrir aðstoð við „litla
manninn" gerðu sig sjálfir seka um
að ausa stórfé, tugum milljóna, í fáa
aðila. Ekki vildi hann nefha dæmi
þar um en benti mönnum á að h'ta
í kringum sig á aðra stjómmála-
menn.
Síðan bætti Albert því við að ekki
ætti að verða erfitt að sinna fyrir-
greiðslu fyrir „litla manninn" áfram
því mikið væri af góðum embættis-
mönnum sem myndu hjálpa til þegar
komið væri með góð mál til þeirra.
Kvennalistinn tilbúinn í
ríkisstjórn
Guðrún Agnarsdóttir, formaður
þingflokks Kvennalistans, og Krist-
ín Karlsdóttir, frambjóðandi
Kvennalistans af Austfjörðum,
gengu báðar á fund forsetans fyrir
hönd Kvennalistans. Þetta er á
skjön við allar hefðir þar sem venju-
lega gengur leiðtogi stjómmála-
flokks á fund forseta. Kvennalista-
konur vildu meina að þetta
fyrirkomulag væri viðhaft vegna
þess að enginn leiðtogi væri í þeirra
hreyfingu.
Þær kvennalistakonur sögðust til-
búnar í ríkisstjóm og nú væri bara
spumingin hver .vildi koma með
þeim. Þær sögðu ekki skipta máli
hver fjöldi flokka yrði í ríkisstjóm
heldur að þeir væm tilhúnir til að
ganga að þeirra skilyrðum. Ekki
vildu þær segja hver þau skilyrði
væm en sögðu að það myndi koma
síðar í ljós. Þó nefndu þær að bættur
hagur kvenna og þeirra sem minna
mega sín væri ófrávíkjanleg krafa
af þeirra hálfu.
Stefán lagði til hverfengi ekki
umboð
Síðastur gekk Stefán Valgeirsson,
leiðtogi J-listans á Norðurlandi
eystra, á fund forseta íslands en
hann náði einu þingsæti í kosning-
unum. Stefán sagðist ekki hafa lagt
neinar ákveðnar tillögur fyrir forset-
ann um það hveijum ætti að fela
umboð til stjómarmyndunar. Hins
vegar sagðist Stefán hafa sagt hveij-
um ætti ekki að fela umboðið en
vildi ekki upplýsa hver það væri sem
þar hefði verið nefhdur.
Stefán sagðist ekki búast við því
að verða boðið sæti í þingflokki
Framsóknarflokksins og ekki sagð-
ist hann vera tiltakanlega hiyggur
yfir því.
Þegar Stefán var spurður um
möguleikana á stuðningi hans við
ríkisstjóm, t.d. stjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks, sagði
hann að slíkt færi að öllu leyti eftir
málefnunum. Hann sagði einnig að
eyfirskir bændur hefðu sínar skoð-
anir á samstjórn þessara flokka.
Umboðið ekki veitt fyrr en
eftir helgi
Nú þegar forsetinn hefur rætt við
fulltrúa allra þeirra sem fengu menn
kjörna á þing gerist það næst að
forsetinn veitir einhveijum umboð
til stjómarmyndunar. Hver það
verður er nokkuð á huldu en þó virð-
ast líklegastir til að hljóta umboðið
Steingrímur Hermannsson eða Jón
Baldvin Hannibalsson.
Ekki er búist við því að umboðið
verði veitt fyrr en eftir helgi.
-ES