Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987.
19
Evrópusýn
Misjafn áhugi
Frá Kristjáni Bemburg, DV, Belgiu:
Áhugi þjóða á Eurovisionkeppninni er
misjafn. Pólverjar sendu fjórtán blaða- og
fréttamenn til Brussel. Finnar, Frakkar og
Irar tólf, Portúgalir og Svisslendingar sendu
níu, Jógóslavar, Tyrkir, Englendingar, Spán-
verjar, Islendingar og Kýpurbúar sendu þrjá
til fjóra, Austurríkismenn og Grikkir sendu
aðeins einn hvor þjóð. Belgarnir eru svo með
sína 243 blaðamenn sem eru á fullu allan
daginn.
Ljósmyndarar í vanda
Frá Kristjáni Bemburg, DV, Belgiu:
Frönskumælandi sjónvarpsstöðin RTBS er
búin að koma ljósmyndurunum, sem starfa
ýið Eurovisionkeppnina, í mikinn vanda. Það
verða aðeins fáir útvaldir ljósmyndarar sem
fá að taka myndir af vinningshöfunum og
hefur sjónvarpsstöðin keypt einkarétt á þeim
myndum. Stöðin fær svo myndirnar og ætlar
sér að selja þær dýrt.
Halla Margrét skoðar píramidann eftirsótta, verðlaunagrip Eurovisionkeppninnar.
KjóHinn hennar Höllu
Frá Kristjáni Bembuxg, DV, Belgíu:
Kjóllinn, sem Halla Margrét mun kom fram
í í kvöld, er fjólublár. Hann er úr léttu rú-
skinni. A hægri hendi verður hún með stórt
gullarmband, afar fallegt, og minnir það á
kórónu. Halla mun halda á hljóðnemanum í
hægri hendi. Kjóllinn er fallegur og fer henni
mjög vel, eins og reyndar flest annað.
Enginn svefnfriður
Fiá Kristjáni Bembuig, DV, Belgíu:
Hjálmar Ragnarsson, sem stjórna mun
hljómsveitinni í Brussel þegar íslenska lagið
verður leikið, hrökk upp við mikinn hávaða
á fimmtudagsmorgun. Það var verið að bora
í næsta herbergi og því úti um allan svefn-
frið. Þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir reyndist
óvinnandi vegur að stöðva borunina.
Það varð ekki fyrr en eftir mikinn hama-
gang og læti að Hjálmar fékk inni í herbergi
í annarri álmu hótelsins. En eins og áður
hefur verið skýrt frá varð eldsvoði í þessu
hóteli fyrir tveimur vikum og 34 herbergi
eyðilögðust algerlega.
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, við hljómborðið. Hún mun þó ekki leika á hljómborðið sjálf
heldur aðeins sjá um bakrödd.
Ekkert slor
Frá Kristjáni Bemburg, DV, Belgíu:
Hinn þekkti sjónvarpsmaður. Terrv Wogan
hjá BBC. lætur ekki bjóða sér hvað sem er.
Ekkert minna en svítan á Roval Windsor
dugar þessum kunna sjónvarpsmanni. Verðið
fvrir eina nótt á þessu ágæta hóteli er 14.500
krónur án morgunmatar. Ekkert slor það!
Sjónvarpsvélarnar
svífa um salinn
Frá Kristjáni Bemburg, DV, Belgíu:
Sjónvarpsáhorfendur. sem fylgjast munu
með Eurovisionkeppninni. eru taldir verða
um hálfur milljarður. Þeir munu sjá að sión-
varpsvélin svífur um salinn. Þarna verður
notaður sérstakur armur og þarf sjö menn til
að stjórna honum. Ahorfendur svífa því með
sjónvarpsvélinni vfir sviðið og eiga myndgæð-
in að vera í fyrsta flokki.
Islenska útsendingin fer í gegnum gervi-
hnött sem heitir Intelsat og fá ísraelar einnig
sendingu sína frá þessum sama hnetti.
Hugleiðingar um söngvakeppnina
Persónulegur sigur fyrir
Valgeir og Höllu Margréti
Fiá Kristjáni Bemburg, DV, Belgíu:
Óneitanlega hefur ísland komist
mikið í heimspressuna að undan-
förnu. Auðséð er að við stöndum
öðrum þjóðum langt að baki hvað
varðar stuðning við okkar lista-
menn. En það eru ekki aðeins
aðstandendur íslenska hluta
keppninnar sem þyrftu að vaxa
með keppninni og læra af henni
heldur einnig forráðamenn sjón-
varpsstöðvarinnar sem sér um
keppnina, stöð flæmskumælandi
Belga.
Það hefur gengið illa að skipu-
leggja keppnina og verið erfitt fvrir
fréttamenn að fá fréttir. Fjarlægðir
eru miklar og lítið gert til að að-
stoða fréttamenn.
Belgar hafa lagt helmingi meira
fé i söngvakeppnina en Norðmenn
í fyrra, eða 240 milljónir. Þegar til-
lit er tekið til þess að salurinn
verður rifínn niður eftir þessa
þriggja tíma sýningu þykir mörg-
um þetta grátleg sóun á fjármun-'
um. Eftir nokkrar vikur verður
leikinn tennis og stuttu seinna fer
fram hestakeppni í þeim sal sem í
kvöld hýsir skrautkeppnina Euro-
Eftir að hafa fvlgst með undir-
búningi söngvakeppninnar meira
og minna í tvær vikur finnst mér
það mikill persónulegur sigur fyrir
Valgeir Guðjónsson og Höllu
Margréti að nánast allir hljóm-
sveitarmeðlimirnir eru hrifnastir
af íslenska laginu.
OPIÐ TIL KL. 41DAG