Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstlórn ~ Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sínni 27022
LAUGARDAGUR 9. MAI 1987.
Missti af
2 milljón kióna
Lottóvinningi
Rúmlega sjötug kona varð um
* tveimur milljónum króna fátækari
um næstsíðustu helgi er hún missti
af Lottóvinningi vegna mistaka af-
greiðslustúlku í búðinni sem hún
keypti miðann í.
Er hún keypti miðann bað hún um
að hann yrði stimplaður þrjár vikur
fram í tímann. Er hún komst svo að
því að hún hafði verið með 5 tölur
réttar og hugðist sækja vinninginn
kom í ljós að miðinn hefði ekki ve-
rið stimplaður eins og hún bað um
og missti hún því af vinningnum.
„Þetta var bölvað klandur og er
ég ætlaði að ræða þetta mál við af-
greiðslustúlkuna vildi hún ekkert
við mig tala, var bara leiðinleg."
sagði konan í samtali við DV en hún
' vill ekki láta nafns síns getið.
Hún sagðist ekki hafa haft sam-
band við forráðamenn Lottósins
enda .taldi hún það til lítils i'ir því
sem komið væri en eitt er víst, hún
mun ekki kaupa Lottómiða í við-
komandi búð aftur.
-FRI
Þorskafli
svipaður
og ífyrra
Fiskifélag íslands hefur sent frá sér
aflatölur fyrir fjóra fyrstu mánuði
þessa árs og þar kemur i ljós að
þorskaflinn er mjög svipaður nú og
á sama tíma í fyrra. Þorskaflinn hjá
öllum veiðiskipum var orðinn
156.367 lestir 30. apríl. Á sama tíma
í fyrra var hann 160.350 lestir.
Heildaraflinn var 30. apríl 752.943
lestir en var í fyrra 617.043 lestir. I
þessu sambandi munar mestu að
loðnuaflinn í vetur var 492.122 lestir
en í fyrra 345.222 lestir.
; Þótt menn hafi kvartað víða um
lítinn afla á vetrarvertiðinni í vetur
kemur í ljós að víðast hvar er aflinn
svipaður og í fyrra, þó nokkur
hundruð tonnum minni á verstöðv-
unum sunnanlands. Annars staðar
má segja að aflinn sé mjög svipaður.
-S.dór
LOKI
Skyldi Halla á Valgeir?
Coldwater Seafood í Bandankjunum:
Alvariegur skortur
er nú á þorskflökum
- birgðastaðan í Bandaríkjunum hefur aldrei verið jafnslæm og núna
„Því miður er málið orðið alvar-
legt Birgðastaða okkar hvað viðvík-
ur þorskflökum hefur aldrei í sögu
fyrirtækisins verið jafhslæm og
núna. Við urðum að taka upp
skömmtun til viðskiptavina okkar
síðari hluta árs í fyrra og okkur
hefur ekki tekist að aflétta henni
enn,“ sagði Magnús Gústafeson, for-
sfjóri Coldwater Seafood, dótturfyr-
irtækis Sölumíðstöðvarinnar í
Bandaríkjunum, í samtali við DV í
gær
Magnús sagði augljóst fyrst þorsk-
veiðin í vetur væri svipuð og 1 fyrra,
að gámaútflutningurinn ætti hér
stærstan þátt í. Hann sagði menn
lifa í voninni um að þorskveiðin í
júní yrði góð, en oft hefði mikið skil-
að sér af þorskflökum til Coldwater
eftir veiðamar í júnímáuði.
„Vissulega er þessi þrönga birgða-
staða hættuleg. Markaðurinn er
settur í hættu með því að við verðum
að halda uppi skömmtun. Nú
streyma þorskflök firá Kanada á
markaðinn og jafiivel þótt þau séu
ekki jafhgóð. og okkar flök þá taka
menn þau ef við getum ekkert látið
þá hafa,“ sagði Magnús.
-S.dór
Skippý frá Hraukbæ er fiklega frjósamasta ær á landinu. Hún hefur eignast 21 lamb á sl. sjö vorum. Hér er
hún með nýjasta afrekið, sprellhressa fjórlembinga. Sigurbjörg Andrésdóttir, sem tók á móti lömbunum,
verðlaunar Skippý með brauði. DV-mynd JGH
Metí
frjósemi
Jón G. Hauksaom, DV, Akuieyxi;
Ærin Skippý, sjö vetra, nefnd eftir
áströlsku kengúrunni, sem var í
framhaldsmyndaflokki í sjónvarpinu
hér áður, eignaðist fjögur lömb
skömmu eftir hádegið í fyrradag.
Skippý er frá bænum Hraukbæ, sem
er skammt norðan við Akureyri.
Hún er sennilega frjósamasta ær
landsins því hún hefur eignast 21
lamb á síðastliðnum sjö vorum.
„Ég hef aldrei þurft að hjálpa
henni fyrr en í þetta skiptið. Ég varð
að losa um fyrsta lambið,“ sagði Sig-
urbjörg Andrésdóttir, sem tók á
móti lömbunum.
Skippý eignaðist sín fyrstu tvö
lömb strax sem gemlingur, vet-
urgömul. Síðan eignaðist hún þrjú
lömb fimm vor í röð og í gær eignað-
ist hún svo fjögur.
Sigurbjörg Andrésdóttir segir að
sjálf sé Skippý tvílembingur og þetta
sé eðlisfrjósemi. „Það þarf ekki að
beita neinum ftjósemislyfjum á hana
Skippý," sagði Sigurbjörg.
„ „ í f
f■■
.
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Svaltveður
Hæg breytileg átt verður á Suðvesturlandi og gola víðast hvar á landinu. Fremur svalt, einkum þó vestanlands. Víðast skýjiað og lítilsháttar rigning.
Hiti verður á bilinu 2 til 8 stig.