Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987. Skák Sveit Taflfélags Reykjavíkur mætir rúmensku meisturunum Beljavsky, Tal, Romanishin, Dorf- man, Kuzmin og Tseskovsky allir í sömu skáksveitinni! Hver gæti trúað því að þessum þekktu stórmeisturum tækist ekki að vinna skák þótt hver þeirra fengi tvær tilraunir? Það gerðist þó í desembermánuði sl. er sveitin mætti ofjarli sínum í úrslita- tafli Evrópukeppni skákfélaga. Nöfn mótherjanna hljóma ekki síður kunnuglega í eyrum: Karpov, Jusu- pov, Tukmakov, Lputjan, Malanjuk og Vladimirov - allir í skáksveit Moskvudeildar hersins. Þeim tókst að leggja íyrmefnda skákkappa að velli með 8 Vi v. gegn aðeins 3 Vi v. með tvöfaldri 6 borða umferð. Um næstu mánaðamót hefst Evr- ópukeppni skákfélaga á nýjan leik og nú verður sveit Taflfélags Reykja- víkur í fyrsta skipti meðal þátttak- enda. Sveit Búnaðarbanka íslands reið á vaðið síðast, fyrst íslenskra sveita til þess að taka þátt í keppn- inni. En lengra en í 1. umferð komst sveitin ekki þvi að Barcelónabúar reyndust harðskeyttari á heimavell- inum. Þá treystu forráðamenn Taflfélags Reykjavíkur sér ekki til þess að taka þátt vegna mikilla fjár- útláta en nú hafa þeir látið undan eindregnum óskum skákmanna sem vilja helst gera TR að Evrópumeist- ara hvað sem það kostar! Sveit TR mætir rúmensku meistur- unum, Politehknika Bukaresti, í 1. umferð. Teflt verður í Búkarest 29. og 30. þessa mánaðar. Rúmenska sveitin er skipuð sterkum skák- mönnum en tveir snjöllustu og um leið ófyrirleitnustu skákmenn Rúm- ena eru þó fjárri góðu gamni - stórmeistararnir Gheorghiu og Suba. Á 1. borði teflir Ghinda, síðan Stoica - mestu harðjaxlar rúmenska liðsins á síðustu ólympíumótum - Ghitescu er á þriðja borði (kunnur íslenskur skákmeistari uppnefnir hann gjaman og kallar „Skítaskó", þó án sýnilegrar ástæðu), á 4. borði teflir ungur og upprennandi skák- ari, Marin að nafni, sem skaut gömlu biýnunum ref fyrir rass á svæðis- móti Austur-Evrópu fyrir skömmu og komst áfram á millisvæðamót, Berechet teflir á 5. borði og Dum- itrache á 6. borði. Þessi sveit verður áreiðanlega erf- ið heim að sækja enda em Rúmenar kunnir fyrir útsjónarsemi sína í slík- um keppnum, þó kannski einkum þeir félagar Suba og Gheorghiu sem svífast einskis og beita öllum tiltæk- um brögðum. Sveit TR er sterkari á pappímum og sigurlíkumar ættu að vera meiri. Aðalsveitin er skipuð öllum sterkustu skákmönnum ís- lands og líkur em á því að allir eigi heimangengt keppnisdagana. Þeir em: Helgi Olafsson, Jóhann Hjartar- son, Margeir Pétursson, Jón L. Ámason, Guðmundur Sigurjónsson og Friðrik Ólafeson, sem allir em stórmeistarar, og varamaður er Karl Þorsteins, alþjóðlegur meistari. Tuttugu og fjórar sveitir taka þátt í keppninni að þessu sinni: sovésku sveitimar tvær, sem nefndar vom hér að framan, Taflfélag Reykjavík- ur og að auki sveitir frá Svíþjóð, Noregi, Englandi, Wales, Skotlandi, Hollandi, Belgíu, V-Þýskalandi, Sviss, Ítalíu, Spáni, Júgóslavíu, Póll- andi, Búlgaríu, Ungverjalandi og ísrael, að ógleymdum Rúmenum. Skákir frá Brussel Víkjum þá sögunni að stórmótdnu í Brussel þar sem heimsmeistarinn Kasparov og Júgóslavinn Ljubojevic deildu efeta sætinu eins og skýrt var frá í skákþætti DV á fimmtudag í liðinni viku. Ljubojevic tefldi eins og herforingi á mótinu og útlit var ■ fi,TÍr að hann yrði einn efstur. í loka- Fyrsta umferð Evrópukeppni skákfélaga að hefjast skákinni gerði hann örstutt jafntefli við Karpov en Kasparov, sem átti hálfum vinningi minna, tókst aftur á móti að vinna Tal. Nokkrir tortryggnir skákunnend- ur höfðu á orði að nú hefði Tal tapað viljandi fyrir landa sínum svo Sovét- menn fengju hlutdeild í efsta sætinu. Það er a.m.k. freistandi að álykta sem svo er litið er á skák þeirra. Langt er síðan Tal hefur fengið slíka útreið við skákborðið - eftir tuttugu leiki átti hann gjörtapaða stöðu. Hitt er svo annað mál að þetta var ekkert einsdæmi á mótinu. Kasparov teflir byijanaleikina iðulega af hví- líkum krafti að mótheijar hans eiga í stökustu vandræðum allt frá fyrsta leik. Sjáið sjálf hvemig fór fyrir Tal: Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Mikhail Tal Nimzo-indversk vöm. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 d5 6. cxd5 exd5 7. Re2 Nú er í tísku að setja riddarann á þennan reit í stað f3 þar sem hann stendur í vegi fyrir f-peðinu. I fram- 12. f3 Bh5 13. Rf4 Bg6 14. Rxg6 fxg6!, með prýðilegu tafli, eða 12. Bg5 Dd6 13. Dbl sem stungið er upp á í móts- blaðinu en strandar á 13. - Bxe2 14. Bxe2 Re4 o.s.frv. 12. Dc2 Bd7?! Og nú er 12. - h6 betra. 13. Bg5 Rg6 14. f4! h6 15. Bxf6 DxfB 16. f5 Re7 17. Rg3 Rc8 Það er makalaust hvað Tal er Skák Jón L. Árnason kominn í óskemmtilega aðstöðu. Hvítur hótaði 18. Rh5 Dg5 19. Rxg7! ásamt gaffli með f-peðinu. 18. Hf4 Rd6 19. Df2! Hfe8 Kannski var eina vonin fólgin í því að pakka í vöm með 19. - Re8 20. Rh5 Dd6 21. Dg3 Kh8 22. Hel Hg8 en slíkt er ekki í anda Tals. c4 Dxa3 28. Rf5 Df8 29. He3 Bd7 30. Hg3 Bxf5 31. Dxf5 + - og Tal lagði niður vopn. Hinn sigurvegari mótsins, Ljubojevic, átti sitt besta mót í lang- an tíma, eins og íslenskir skák- unnendur ættu að vita. í Brussel vann Ljubojevic 24 Eló-stig með tafl- mennsku sinni og endurheimti þar með aftur hluta af tapi síðustu mán- aða. Lítum á skák hans við Larsen. Ljubojevic jafhar taflið með svörtu mönnunum og nær svo frumkvæð- inu er Larsen missir af tækifæri til þess að grugga taflið með skipta- munsfóm i 23. leik (23. Hxe7!? Dxe7 24. Rxd5 De6 25. c4 o.s.frv.). Drottn- ingarriddari Larsens verður vand- ræðagripur á heimareitnum og á endanum fellur hann fyrir borð. Heilsteypt skák af Ljubojevics hálfu en Larsen tefldi oft betur á þessu móti. Hvítt: Bent Larsen Svart: Ljubomir Ljubojevic Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Hvítur er lentur í harla óskemmti- legri aðstöðu. Drottningarriddarinn á sér ekki undankomu auðið. Ef nú 32. Hfl þá 32. - Da2! og hvítur er bundinn í báða skó. 32. Hdl g4! Einfaldast en 32. - a5 33. Kfl. a4 34. Kel a3 35. Rd2 Dxdl + ! 36. Kxdl a2 37. Da6 Hbl+ hefði einnig leitt til vinnings. 33. Kfl h5 34. Kel Bh6 35. Rd2 Hxd2! - og Larsen gafst upp. Kortsnoj vann Karpov tvöfalt! Að loknu mótinu í Bmssel var haldið ægisterkt hraðskákmót sem nefiit var 1. óopinbera heimsmeist- aramótið í hraðskák. Skipti engum togum að Gam' Kasparov varð lang- efstur, hlaut 17 v. af 22 mögulegum. I 2. sæti varð Timman með 15 v., síðan komu Karpov og Ljubojevic með 12 Zi v., þá Hubner með 12 v., Kortsnoj og Short fengu 11 v., Tal fékk 10 Vi v., Larsen og Sosonko 8 v., Van der Wiel 7 Vi v. og Torre varð neðstur með 7 v. Innbyrðis viðureign Karpovs og Ljubomir Ljubojevic. haldinu leikur hvítur oft Í2-Í3 og síðan annaðhvort e3-e4 og reynir að ná yfirráðum á miðborðinu eða g2-g4 með sókn á væng. Timos- henko, einn aðstoðarmanna Ka- sparovs, mátaði höfund þessara lína eftir svipuðum nótum á alþjóðamót- inu í Helsinki í fyrra (lék Re2 í 6. leik) og upplýsti að þessi leikmáti hefði lengi verið í vopnabúri heims- meistarans. 7. - c5 8. 6-0 Rc6 9. a3 cxd4 10. exd4 Bxc3 Þennan má gagnrýna með hliðsjón af framvindu mála. Eftir 10. - Bd6 11. Khl Rg4! jafnaði Smyslov taflið gegn Gligoric á millisvæðamótinu á Mallorca 1970 en t.d. 11. f3 er hugs- anleg endurbót með að því er virðist liðlegri stöðu á hvítt. 11. bxc3 Re7? Hann fær vitaskuld ekki tækifæri til þess að „stinga upp í“ hvítreita- biskupinn með 12. - Bf5. Hér kemur 11. - Bg4!? sterklega til greina, t.d. abc^defgh 20. Rh5 Dd8 Svarið við 20. - Dg5 yrði 21. h4! Dxh5 22. g4 og drottningin er fönguð. 21. Rxg7! Með vinningsstöðu. Lakara var hins vegar 21. Hg4 g5! eða 21. Dg3 Dg5 með björgunarvon. Nú er 21. - Kxg7 svarað með 22. f6+ Kf8 23. Dh4 og mátar. 21. - Re4 22. Bxe4 Hxe4 23. 06 Kh7 24. Hxe4 dxe4 25. Df4 Bc6 26. Hel Dffi 27. Bg7 5. d3 e6 6. Rge2 Rge7 7. 0-0 0-0 8. Bg5 h6 9. Be3 Rd4 10. Dd2 Kh7 11. Bxd4 cxd4 12. Rb5 Db6 13. a4 a6 14. Ra3 d5 15. exd5 exd5 16. Rf4 Be6 17. a5 Dd6 18. c4 dxc3 frhl. 19. bxc3 Dc7 20. Rbl Had8 21. d4 Bf5 22. Hel g5 23. Rd3 Rc6 24. Rc5 Rxa5 25. Hxa5 Dxa5 26. Rxb7.Dal! 27. Rxd8 Hxd8 28. Bfl Hb8 29. Bd3 Bg6 30. Bxg6? fxg6 31. Dd3 Hb2! abcdefgh Kasparovs lauk 1 Vi - Vi Kasparov í vil. Kasparov tapaði tveim skákum á mötinu, gegn Short og Ljubojevic. Athygli vakti að Viktor „grimmi“ Kortsnoj náði fram hefndum á Karpov, eftir að hafa snert rangan mann í skák þeirra á stórmótinu og tapað. Kortsnoj vann báðar hrað- skákimar af Karpov. Mótið vakti mikla lukku meðal áhorfenda því að með nýrri tækni var leikjum skákanna varpað sam- stundis yfir á sýningartöfl. Áhorf- endur áttu því hægt með að fylgjast með handapatinu í lok skákanna og spennan var mikil í síðustu umferð- unum, enda verðlaun þau hæstu sem verið hafa á hraðskákmóti. Fyrir sig- urinn hlaut Kasparov 6 þúsund Bandaríkjadali eða tæpar 240 þús- undir íslenskra króna. Ætlunin er að þetta hraðskákmót verði árlegur viðþurður. -JhA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.