Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987. Utlönd Loftárás m Hií iii.. a fiotta- manna- búðir Að minnsta kosti ellefu manns létust þegar ísraelskar herþotur réðust á bækistöðvar skœruliða og palestínskar flóttamannabúðir í Suður-Líbanon í gœr. Var það skömmu eftir að ísraelskir her- menn höfðu drepið þrjá skæruliða sem ætluðu að laumast inn í ísra- el, að því er Israelsmenn fullyrða. Meða) þeirra ellefú sem létust voru tvö börn. Fiest dauðsfoliin urðu er flugskeyti lenti við inn- ganginn á ioftvamaskýli í flótta- mannabúðunum. Fjörutíu manns særðust í loftárásinni. óttast var að fómarlömb árásar- innar væm fleiri og grófu skæm- liðar og íbúar flóttamannabúð- anna með berum höndum eftir þeim í húsarústunum en tólf hús vom jöfriuð við jörðu og tugir húsa urðu fyrir skemmdum. Engir skæruliðar særðust í loft- árásinni en ráðist var á bækistöðv- ar skæmliða Yassers Arafat. Israelar gerðu ioftárás á venjuleg íbúasvæði í Líbanon þann 6. maí síðastliðinn. Sjö manns biðu bana í þeirri árás. Þann 1. maí létust sextán skæruliðar og tvö böm í loftárás Israela. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur 10 12 Lb óbgnd. Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 10-15 Sb 6 mán. uppsögn 11-20 Ib 12mán. uppsögn 14-25,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 22-24,5 Bb Ávisanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar 4-7 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb, Lb.Sb, Ob.Vb 6 mán. uppsögn Innlán meö sérkjörum 2.5-4 Ab.Úb 10-22 Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 5,5-6.25 Ib Sterlingspund 8,5-10,25 Ab Vestur-þýsk mörk 2,5-4 Ab Danskarkrónur 9-10,25 Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 20-24 Bb.Sb, Úb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 22,5-26 eða kge Almenn skuldabréf(2) 21-27 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningar(vfirdr.) 21-24,5 Bb.Sb Utlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 6-7 Lb Til lengri tíma 6,5-7 Bb.Lb, Sb.Úb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 16,25-26 lb SDR 7,75-8,25 Bb.Lb. Úb Bandaríkjadalir 8-8,75 Bb.Sb Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb Vestur-pýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Lb, Úb.Vb Húsnaeðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 30 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala maí 1662 stig Byggingavísitala 305 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. apríl HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 110 kr. Eimskip 246 kr. Flugleiöir 170kr. Hampiðjan 114 kr. Iðnaðarbankinn 124 kr. Verslunarbankinn 114 kr. (1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavixla gegn 21 % ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil- alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð- tryggð lán, nema I Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum. Búist við ósigri kommúnistaflokks Embættismenn í Manila á Filippseyjum spáðu því í gær að kjörsókn í þingkosningum þeim er fram fara í landinu á mánu- dag yrði mjög mikil. Telja þeir víst að kjörsóknin verði allt að níutíu prósent, eða að meira en tuttugu milljónir manna muni greiða atkvæði. Er jafnframt búist við að kommúnistar bíði ósigur í kosningunum, ef kjör- sóknin reynist góð. Filippseyingar hafa sýnt þing- kosningum þessum mikinn áhuga, bæði stjómmálamenn og almennir kjósendm-. Liðlega tvö hundruð frambjóðendur slást um tuttugu og fjögur sæti í öld- ungadeild þingsins og nær tvö þúsund bjóða sig fram til neðri deildar þingsins, þótt aðeins tvö hundruð sæti séu í boði. Segja embættismenn að meira að segja skæruliðar, sem eiga í erjum við stjómvöld, og kom- múnistar hafi tekið þátt í kosningabaráttunni og telja það sönnun þess að Filippseyingar vilji útkljá mál sín á friðsamleg- an og þingræðislegan máta. Komið hefur til töluverðra óeirða í kosningabaráttunni og hafa liðlega fjörutíu manns látið lífið í þeim. Mannvíg hafa þó verið færri en venjulega því að meðaltali láta um hundrað manns lífið í baráttunni fyrir hverjar kosningar á Filippseyj- um. Tveir starfsmenn stjórnvalda i Manila færa kjörkassa til flutnings út í eitt af héruðum landsins. Símamynd Reuter Vilja eyða helmingi langdrægra kjamavopna Fulltrúar Bandaríkjanna við af- vopnunarviðræðumar í Genf lögðu í gær fram uppkast að sáttmála þar sem lagt er til að langdrægum kjamavopn- um verði fækkað um helming. Ronald Lehman, sem yeitir forstöðu samninganefhd þeirri er sér um lang- dræg vopn, skýrði fréttamönnum frá því að drög þessi gerðu ráð fyrir mikl- um samdrætti í þessum hluta vig- búnaðar á sjö ára tímabili. Þetta em fyrstu samkomulagsdrög sem lögð em fram á fundum stórveld- anna síðan tilraunir þeirra til að ná samkomulagi um samdrátt kjamorku- vígbúnaðar hófúst að nýju árið 1985. Lehman sagði í gær að drögin b'yggðu á því samkomulagi sem varð á milli Reagan Bandaríkjaforseta og Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkjanna, á fundi þeirra á íslandi síðastliðið haust. Leiðtogamir samþykktu þá að fækka kjamaoddum á langdrægum eldflaugum í sex þúsund hjá hvom stórveldanna og að takmarka fjöida eldflauga við sextán hundmð. Nú búa stórveldin, hvort um sig, yfir um tíu þúsund og fimm hundmð kjamaoddum á langdrægum eldflaug- um, í kafbátum, á landi og í flugvélum. Drögin, sem lögð vom fram í gær, setja takmarkanir við því hversu marga kjamaodda er heimilt að setja á eina tegund farartækja. Er það ákvæði til þess ætlað að koma í veg fyrir að Sovétmenn setji alla sína odda á SS-18 eldflaugar sem em aflmiklar og hraðfleygar. Samningamenn Sovétmanna hafa þegar hafnað öllum hugmyndum um takmarkanir af þessu tagi og hefur þetta atriði þegar orðið ásteytingar- steinn í viðræðum stórveldanna. Bandaríkjamenn gera í drögunum ráð fyrir að samdrátturinn taki sjö ár í stað þeirra fimm ára sem leiðtogam- ir töluðu um í Reykjavík. Er tíminn lengdur gagngert til þess að veita Sov- étmönnum svigrúm til þess að aðlaga sig fyrmefndum sértakmörkunum. I morgunsárið, þegar aðeins kettir og syfjaðir sýrlenskir hermenn eru á ferli í Beirút, syngur Abu Ahmad og slaer á trommuna sína. Á þann hátt vekur hann múhameðstrúarmenn til siðustu máltíðarinnar fyrir Ramadan- föstuna. Ramadan er heilagur mánuður meðal múhameðstrúarmanna og neyta þeir ekki matar né drykkjar frá því að dagur rís þar til rökkva tekur. Margir fá sér þó morgunverð þegar þeir vakna við trommuleikinn en Ahmad telur það skyldu sína að vekja trúbræður sína til að þeir geti búið sig undir föstuna. Unglingur skotinn til bana á ÍHandi Kaþólskur tmglingur var skot- inn til bana á heimili sínu í Belfast á N-írlandi í gær. Þrír aðrir særð- ust í sömu árás. Unglingurinn, Gary McCartan, var sjötti meðlimurinn úr sömu fjölskyldu sem skotinn er til bana á síðastliðnum tíu árum. Það voru þrír vopnaðir menn, að því er talið er úr röðum mótmæiendatrúar- marma, sem réðust inn á heimili McCartan og hófu skothríð á þá sem þar voru staddir. Miklar óeirðir voru í Belfast á fimmtudagskvöld. Lögregian í borginni segir að yfir sveitir henn- ar hafi rignt bensínsprengjum og urðu iögreglumenn að skjóta plastkúlum að hópum óéirðaseggja sem stolið höfðu strætisvögnum og bifreiðum. í einu tilviki hellti hópur bílræn- ingja bensíni yfir bifreiðareiganda og kveiktu í honurry Að sögn iög- reglu var það mesta mildi að maðurinn slapp iifandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.