Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Side 7
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987.
7
Fréttir
Verið var aö æfa útgöngu úr flugvél í öryggisþjálfanum þegar Ijósmyndari
DV tók þessa mynd og er ekki annað að sjá en að stúlkunni á myndinni þyki
þetta hin ágætasta skemmtun.
Öiyggisþjátfi tekinn í notkun hjá Flugleiðum:
Hátt í 600 manns í
þjálfun á 3 mánuðum
Sérstakur öryggisþjálfí hefur verið
tekinn í notkun hjá Flugleiðum. Hér
er um að ræða hluta af flugvélar-
skrokk sem er notaður til þjálfunar
áhafna við að komast út úr vélinni ef
óhapp ber að höndum. Reiknað er með
því að allar áhafnir Flugleiða hafi far-
ið í gegnum þjálfun i öryggisþjálfanum
fyrir lok júnímánaðar en aðstaða þessi
var tekin í notkun um miðjan apríl
síðastliðinn. Alls er um að ræða hátt
í 600 manns.
Kennarar eru þeir Þorkell Jóhanns-
son og Jón A. Stefánsson. Guðmundur
Snorrason, sem er flugþjálfunarstjóri
Flugleiða og hefur yfirumsjón með
þjálfun áhafha félagsins, sagði í sam-
tali við DV, þegar blaðamaður og
ljósmyndari skoðuðu aðstöðuna, að
þessi öryggisþjálfi væri mikil framfór
frá því sem áður var en þá fór þjálfun
sem þessi fram í vélunum sjálfúm á
Keflavíkurflugvelli. Nú er verið að
þjálfa áhafnir Boeing 727 flugvélanna
en nýlega lauk þjálfun áhafna DC-8
véla. Á öryggisþjálfanum eru tvennar
útgöngudyr og eru aðrar eins og á
DC-8 vélum en hin eins og á Boeing
727 vélum. Oryggisþjálfinn er keyptur
frá hollenska flugfélaginu KLM.
1 þjálfun þessari eru kennd þau
grundvallaratriði sem flugliðar þurfa
að kunna þegar yfirgefa á flugvél og
felur það í sér kennslu á meðferð
tækja, staðsetningu þeirra og fleira.
Jafnframt er kennd notkun björgunar-
báta.
-ój
y- ' 4 « -
yEftghpG'XSÖÍ
t;í- 7 •„ „. -- J
. '1
'
* - • - > V • V .*-í-Í
• ■ - • :
Þorkell Jóhannsson kennari leggur nemendum sinum lifsreglurnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Nýkomið í
húsgagnadeild:
Unglingahúsgögn.
Reyr-húsgögn.
Finnsk leðursófasett.
OPIÐ TIL KL. 4 í DAG
Matvörumarkaður 1. hæð - Rafdeild 2. hæð -
Húsgagnadeild 2. og 3. hæð -
Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð -
Ritfangadeild 2. hæð - Munið JL-grillið
Leikfangadeild 2. hæð
Sérverslanir í JL-portinu
Jl!
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
hjálpartækjasýning
Fötlun 37
Aðstandendur: ÖB(, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Sjálfsbjörg, landssamband og Reykjavíkurfélag.
Landssamtökin Þroskahjálp, Hjálpartækjabankinn, Svæðisstjórnir um málefni fatlaðra, Reykjavík og Reykjanesi.
Laugardagur 9. maí kl. 11 - 20
11.00: Erindi: Vöðvagigt, ný viðhorf í verkjameðferð.
Magnús Ólason orku- og endurhæfingalæknir.
13.00: Erindi: MBD-börn.
Sveinn Már Gunnarsson, barnalæknir.
14.00: Frásögn og upplestur:
Márta Tikkanen, rithöfundur og foreldri MBD-barns.
15.00: Erindi: Álag á fjölskyldur fatlaðra.
Einar Hjörleifsson, sálfræðingur.
16.00: Skemmtidagskrá:
- tónlist
- tískusýning
- talkór
18.00: Erindi: Ákvarðanatekt foreldra vegna sérþarfa barns
síns, - Hvers konar skóli?
Keith Humphreys gestakennari við KHÍ.
19.00: Kvikmyndir: „Því fyrr, þeim mun betra"
og „Auðvitað getum við".
sýningínerf
borganeikhúsinu
Aðgangur er ókeypis.
ð