Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 28
40
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987
Hús til sölu
Nýjar bækur
Tilboð óskast í 260 m2 timburhús sem stendur að
Krókhálsi 7. Húsið, sem selst til brottflutnings, er í
þrem einingum.
Einnig er til sölu á sama staó vandaður vinnuskúr.
Tilboð sendist Eignarumsjón Sambandsins að Sölv-
hólsgötu 4. Sími 28200 - 8155 innanh.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Staða forstöðumanns við leikskólann Fellaborg,
Völvufelli 9, er laustil umsóknar. Fóstrumenntun áskil-
in.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónar-
fóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 2 72 77.
?l! LAUSAR STÖÐUR HJÁ
m REYKJÁVÍKURBORG
Staða forstöðumanns við leikskólann Árborg, Hlaðbæ
17, er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónar-
fóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
BLAÐBuRÐmR-
FÓLK
VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI
Eskihlíð
Blönduhlíð
************************
Sólvallagata 12-út
Hávallagata 18-út
************************
Leifsgata
Egilsgata
***********************
Melabraut, Seltjarnarnes
************************
Hverfisgata 1-66
************************
Háaleitisbraut 14-51
************************
Skólagerði, Kópv.
************************
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú. á fcúlri ferð
SKILAFRESTUR
í BÍLAGETRAUN
ER TIL KL. 22
MIÐVKUDAGSKVÖLDIÐ
27. maí
TOMAS
1(1111 1(1 ÍIIU
Tómas Jónsson metsölubók
komin úi á ný
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér skáldsögu Guðbergs Bergs-
sonar, Tómas Jónsson metsölubók.
Þetta er endurútgáfa sögunnar sem
kom fyrst út haustið 1966. Hún seld-
ist þá upp á örskömmum tíma og
hefur síðan verið ófáanleg.
Tómas Jónsson metsölubók vakti
bæði úlfúð og aðdáun þegar hún kom
fyrst út, segir í fréttatilkynningu frá
Forlaginu. Menn skiptust í flokka.
með eða á móti skáldverkinu, og
margir sökuðu höfundinn um niður-
rifsstarfsemi. Þar örlaði hvergi á
„heilbrigðu mótvægi við sorann".
En aðrir tóku Tómasi Jónssyni af-
burðavel.
Ólafur Jónsson, sem þá var einn
ágætasti gagnrýnandi hér á landi,
líkti sögunni m.a. við kraumandi
seiðketil „þar sem nýtt efni, nýr stíll
kann að vera á seyði. Fátt er líklegra
en að sagan verði þegar frá liður
talin tímaskiptaverk í bókmennta-
heiminum: Fyrsta virkilega nútíma-
sagan á íslensku.1' Skáldið og
gagnrýnandinn Sigfús Daðason
sagði: „Guðbergur Bergsson hefur í
ritum sínum brotið nýjum veruleika
braut inn í íslenskar bókmenntir.“
Guðbergur Bergsson ritar formála-
að endurútgáfu sögunnar þar sem
hann lýsir viðhorfum sínum til ís-
lenskrar menningar og islenskra
bókmennta á þeim tíma sem hann
samdi söguna og rekur þar hvernig
hugur hans stefndi að því að „skapa
táknmynd hinna trénuðu afla í þjóð-
félagsgarðinum, skapa mann af hinni
títt umræddu „aldamótakynslóð“.“
Tómas Jónsson metsölubók er 356
bls. í kilju. Auglýsingastofan Krass/
Guðrún Ragnarsdóttir hannaði
kápu. Prentstofa G. Benediktssonar
prentaði.
eftirlýst augnablik
ágúst b. sverrisson
Eftirlýst augnablik
Út er komið ljóðakverið Eftirlýst
augnablik eftir Ágúst Sverrisson. Er
þetta fyrsta bók höfundar en áður
hefur birst eftir hann smásagan
Saknað í Tímariti Máls og menning-
ar. Eftirlýst augnablik er 44 síður
að lejigd og inniheldur 20 ljóð sem
flest eru prósaljóð og lýsa yfirleitt
andartökum í lífi mismunandi mann-
gerða við hversdagslegar en afhjúp-
andi aðstæður.
Jón Óskar Sólnes hefur hannað
kápu bókarinnar og jafnframt mynd-
skreytt hana og er teikningum hans
m.a. ætlað að endurspegla oft og tíð-
um drungalegt andrúmsloft ljóð-
anna.
Prentun annaðist Stensill hf.
VORB Q O
LJÚF 1, SAA
1
VORHAPPDRÆTTI SÁÁ DREGIÐ 10. JÚNÍ
UPPLAG MIÐA 100.000