Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. 15 dv Lesendur „Lagið hans Valgeirs var aldrei liklegt til stórræðanna en það er laglegt lag, áskorun til þjóða um að breyta út frá því hefðbundna Eurovisionformi." Söngvakeppnin stór- kostleg skemmtun Ingibjörg Jónasdóttir skrifar: Mig langar til að lýsa ánægju minni með fólkið okkar sem bar erfiði söngvakeppninnar fyrir Islands hönd. Lagið hans Valgeirs var aldrei lík- legt til stórræðanna en það er laglegt lag, áskorun til þjóða um að breyta út frá því hefðbundna Eurovision- formi. Ég dáist af þvi hvað Valgeir, kona hans, Halla Margrét og fleiri komu laginu vel frá sér miðað við allt glingr- ið og prjálið sem oft vill fylgja svona keppnum. Sáuð þið bara kynninn sem var eins og illa skreytt jólatré. Nei, það var stór sómi að okkar fólki, Halla Margrét eins og norður- ljósin og Valgeir eins og óhagganlegur borgarísjaki, þau héldu sínu striki með einfaldleikanum sem hæfði þessu lagi vel. Það eina sem ég gat fundið að var að Halla Margrét hefði mátt syngja aðeins sterkara í upphafi. Mér fannst dásamlegt að heyra bakraddir okkar besta söngfólks, röddin hans Egils er nú svo frábær og sexí, það hefði kannski mátt heyrast aðeins meira í þeim. Kynnirinn Kolbrún Halldórs- dóttir stóð sig einnig vel en hún hefði mátt sleppa þvi að tala á meðan stiga- gjöfin fór fram, að öðru leyti frábær. Hvemig stendur á því að þeir sem eru í dómnefnd mega ekki vera eldri en 60 ára, ég er sjálf 61 árs og er í kafi í öllu svona? Mér finnst ekki rétt að hafa svona aldurstakmarkanir. I lokin vil ég taka fram að mér fannst íslendingamir stórkostlegir í keppn- inni og þjóð sinni til mikils sóma. Léleg þjónusta Ólafur Ólafsson, 6779-4958, hringdi: Mig langar að vara fólk við Lúkasarverkstæði i Síðumúlanum. Ástæðan er sú að þeir standa ekki við það sem þeir segja. Málið er það að ég panta tíma kl. 9 um morguninn til að hjólastilla bíl- inn. Tók ég það sérstaklega fram að bifreiðin væri atvinnubifreið svo að öll tímasetning yrði að standast. Klukkan 9 mæti ég stundvíslega en er beðinn að koma kl. 10.50 og þá verði bílinn tilbúinn. Nei, aldeilis ekki, - bíllinn var rneira að segja á sama stað óhreyfður. Er ég bað um skýringu á þessu fékk ég fyrirslátt og dónaskap að svörum. Þetta er hlutur sem fólk á rétt á að vita svo það þurfi ekki að lenda í slíku. Hæfari dansara í heimsmeistarakeppnina Rut Pálsdóttir skrifar: Voðalega er skrítið að íslandsmeistarar í suðuramerískum dönsum skuli ekki vera sendir í heimsmeistarakeppnina í flokki áhugamanna í suðuramer- ískum dönsum. Þeir sem voru í þriðja sæti í Islandsmeistarakeppninni, sem haldin var í Laugardalshöllinni hér fyrr um árið, í suðuramerískum dönsum verða sendir í heimsmeistarakeppnina. Því er ekki nema von að maður spvrji af hverju eru ekki sjálfir íslands- meistararnir í þessum dönsum sendir utan? Þeir hljóta að eiga mesta- möguleika. RAFMOTORAR Á GÓÐU VERÐl Vorum að fá einfasa og þriggjafasa rafmótora frá Kína. Mótorarnir eru í I. E. C. málum, í flestum stærðum, 1400 og 2900 s/m. Sérlega hagstætt verð. HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK ' SÍMI: 685656 og 84530 ZIOTUMM',' ÞARFT ÞÚ AÐ SELJA BÍLINN ÞINN STRAX? Blaðið BÍLASALINN kemur út á fimmtudaginn. Þá mun bíllinn þinn birtast þúsundum áhugasamra kaupenda um allt suð-vesturland. VIÐ KOMUM TIL ÞÍN OG TÖKUM MYND AF BÍLNUM ÞÍNUM OG ÞÚ AFHENDIR OKKUR TEXTANN EF ÞÚ ÓSKAR. SKRÁNING í FYRSTA TÖLUBLAÐ STENDUR YFIR TIL KL. 19:00 Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLD. Hringdu strax í síma 689990 eða komdu við á Suðurlandsbraut 22 (sjá kort). - BLAÐIÐ SEM SELUR BÍLINN ÞINN Suöurlandsbraut 22 108 Reykjavik ________simar 689990 og 687053 FLUTNINGUR YINNUTÆKJA Ótrúlega einialdur M/S Esja er fjölhæfniskip sem hentar mjög vel til flutninga á vinnuvélum. Skipið er búið öflugum krana, skutbrú og hiiðaropi. Við keyrum t.d. allt að 50 tonna krana um borð og flytjum hann á Bakkafjörð sé þess óskað. Kynntu þér kosti M/S Esju við flutn- ing á vinnutækjum. I RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnorhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.