Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. Udönd c Q^^^^rsfjörður Xa FINN - LAND Frá þvi að seinni heimsstyrjöldinni lauk hefur ekki verið hleypt af skoti við landamæri Noregs og Sovétrikjanna. Þeir einu sem ekki virða þessi landamæri eru norsk hreindýr. Horfa á kúreka- myndir og snæða saman kavíar Norskir og sovéskir landamæraverðir langt frá kalda stríðinu Nálægt Kirkeiies i Noregi eru það aðeins nokkrir kofar. virgirðing, nokkrir varðstaðir og hlið með hengilás sem minna á að þarna eigi Natóland landamæri að Sovétríkjunum. Yfirmaður norsku landamæravarðanna. Inge Torhaug liðsforingi, og sovéskur starfsbróðir hans, Alexander Ivanovich ofursti, leggja sitt af mörkum til þess að þessi landamæri séu undantekning og gjörólík Berlínarmúmum. Á hverjum degi talast þeir við i sima og einu sinni í mánuði hittast þeir í Noregi og Sovétríkj- unum til skiptis. Fundur þein-a hefst á formleg- um umræðum um starfsemina með aðstoð túlks. Þegar skyldustörfunum er lokið slaka þeir á yfir vodkaglasi og gæða sér á kavíar. Á dag- skrá er einnig gufubað, kvikmyndasýning eða vélsleðaakstur. Kúrekamyndir og myndir um Bleika pardusinn eru vinsælastar, hefur Tor- haug látið hafa eftir sér kíminn á svip. Friðsæl landamæri Frá því að seinni heimsstyrjöldinni lauk hefur ekki verið hleypt af skoti við þessi landamæri. Átakamiklar flóttatilraunir frá Sovétríkjunum eru óþekkt fyrirbæri. Þeir einu sem ekki virða landamærin eru norsk hreindýr sem fara þar vfir ísilagða á, sæl og ánægð, og er algjörlega ókunnugt um hugmyndafræðilegan ágreining. Noregur, sem lagt hefur áherslu á að halda niðri spennunni þama norður frá, hefur ekki leyft æfingar Nató á þessum slóðum og landa- mæraverðirnir eru aðeins hundrað og fimmtíu talsins. Hinn norski vfirmaður þeirra tekur fram að þeir geti ekki með aðferð sinni kornið í veg fyrir stríð en nauðsyn sé á að Norðmenn og Sovétmenn skilji hvorir aðra. Það sé nauð- synlegt fyrir Norðmenn að gera sér grein fyrir hvað það sé sem þeir óttist af hálfu Sovét- manna sem óttist Norðmenn jafnmikið. Sovét- mönnum er enn í fersku minni að það var frá þessum stað sem Þjóðverjar réðust á Sovétríkin 1941 eftir að Noregur var hernuminn. Hreindýrin fundarefni Það er lítið rætt um varnarmál og stjómmál á fundum yfirmannanna tveggja. Fundarefnið er hvemig best sé að safna saman hreindýrun- um sem villst hafa yfir til Sovétríkjanna eða hvort varðstaðirnir þurfi viðgerðar við eftir harðan vetur. Báðir eru þeir listunnendur og ræða gjaman það áhugamál sitt, auk þess sem fjölskylduna ber oft á góma. Á landamærunum dró síðast til tíðinda fyrir nær tveim tugum ára. Þegar sovéskir skriðdrek- ar réðust inn í Tékkóslóvakíu 1968 ók vélvædd herdeild í allt að hundrað metra fjarlægð að norsku landamærunum. Sovétmenn vildu vera viðbúnir viðbrögðum af hálfu vesturveldanna en það varð aldrei úr neinum slíkum. Að vera landamæravörður á þessum slóðum veldur því ekki neinni umtalsverðri streitu og vonar sá norski að ástandið haldist óbreytt. Framfara- sinnaður og íhaldssamur í síðustu viku bættist enn í hóp þeirra sem nú gefa kost á sér sem forsetaefni fyrir Demó- krataflokkinn í kosningum þeim sem fara fram í Bandaríkjunum á næsta ári. Paul Sim- on, öldungadeildarþingmaður frá Illinois fvlki, tilkynnti þá að hann hygðist keppa að útnefningu flokksins. Við þetta bættist Simon formlega í hóp þeirra sem gárungar í Bandaríkjunum kalla dvergana sjö. Flokk þennan skipa þeir fram- bjóðendur sem opinberlega hafa gefið kost á sér sem forsetaefni fyrir demókrata en nafn- giftin er dregin af því að enginn þeirra hefur verulegt fylgi innan flokksins. Flestir hafa þeir sýnt þrjú til fimm prósent fylgi í skoðana- könnunum og jafnvel þótt Gary Harc, sá sem naut áberandi mests fylgis, drægi sig í hlé vegna kvennamála sinna virðist lítið af at- kvæðum hans hafa færst yfir á sjömenning- ana. Dvergarnir sjö eru þeldökki klerkurinn Jesse Jackson, Michael Dukakis, fylkisstjóri Massachusetts, Bruce Babbit, fyrrum fylkis- stjóri Arizona, Joseph Biden, öldungadeildar- þingmaður frá Delaware, Albert Gore, öldungadeildarþingmaður frá Tennessee, Ric- hard Gephardt, fulltrúadeildarþingmaður frá Missouri, og svo Paul Simon. Langur stjórnmálaferill Paul Simon, sem fæddur er í Oregon árið 1928 og verður því sextugur á kosningaárinu, á að baki nokkuð langan og traustan stjórn- málaferil. Hann var fyrst kjörinn til fulltrúadeildar Illinoisþings árið 1955 og til öldungadeildar sama þings 1963. Þar þjónaði hann til ársins 1969 þegar hann var kjörinn aðstoðarfylkis- stjóri Illinois en því embætti gegndi hann til ársins 1972. Simon var kjörinn til fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings árið 1975 og árið 1984 hlaut hann svo kosningu sem öldungadeildarþingmaður. Simon var ritstjóri og útgefandi dagblaðsins Troy Tribune í Illinois árin 1948 til 1966. Hann hefur skrifað fjölda fræðirita um stjórn- mál og heimsmál, meðal annars um fólksfjölg- unarvandann og hungur í heiminum. Framfarasinnaðurog íhaldssamur Simon þykir framfarasinnaður í öllu því sem lýtur að félagsmálum en á sama tíma er hann íhaldssamur í efnahagsmálum og því sem lýt- ur að ríkisútgjöldum. Hann greiddi á sínum tíma atkvæði með jafnréttislöggjöf og með ýmsum umbótum í almannatryggingum. Þá hefur hann groitt atkvæði með því að frysta aukningu kjarnorkuvígbúnaðar. Hann hefur hins vegar setið hjá í ýmsum mikilvægum atkvæðagreiðslum, svo sem um fóstureyð- ingamál. Paul Simon nýtur virðingar meðal sam- starfs- manna sinna, jafnt sem kjósenda i kjördæmi sínu. Hann er einn þeirra er sáu fyrir þá ná- kvæmnisskoðun sem tíðkast hefur um hagi stjórnmálamanna, af hálfu fjölmiðla og ann- arra. Ef til vill er það þess vegna sem hann hefur gætt þess að hafa líf sitt eins og opna bók. Öll hans fjármál liggja fyrir, hverjum sem vill til athugunar og umfjöllunar. Hann hefur ekki borist á að neinu marki og ekki hætt sér út í neinar umdeilanlegar aðgerðir eða bar- áttumál. Simon er því fremur litlítill frambjóðandi og þykir vart líklegur til stórræða í forkosn- ingum demókrataflokksins. Enda er hlutverk hans, líkt og hinna dverganna sjö, fyrst og fremst það að halda umræðunni um forkosn- ingarnar gangandi, að halda frambjóðenda- sætunum volgum meðan þeir stóru það er demókratar á borð við Mario Cuomo, Bill Bradley og Sam Nunn - velta vöngum yfir því hvort þeir eigi að bjóða fram. Paul Simon. MAL Síðustu sætin 13. júní -TTO daga eða 3 vikur. Fjölskylduafsláttur Einn borgar fullt - aðrir í fjölskyldunni minna. Verð á mann miðað við hjón með tvö börn yngri en 16 ára: kr. 27.300,- Brottfarardagar: Júní 1., 13., 22. Júlí 4., 13., 25. Ágúst 3., 15., 24. Sept. 5., 14., 26. Okt. 5. Aðeins í þessa einu ferð. Umboö á islandi fyrir DINERS CLUB INTERNATIONAL FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstigl. Símar 28388 og 9.8580

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.