Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 12
12 MANUDAGUR 25. MAl 1987. Orsök dauðaslysa og alvarlegustu umferðaróhappanna er gáleysi og kæruleysi í 49% tilvika* Gáleysi 32% Ef það, að virða ekki almennan umferðarrétt, biðskyldu, stöðvunarskyldu og umferðarljós, er flokkað undir almennt kæruleysi og sofandahátt er gáleysi orsök alvarlegustu slysanna í 49% tilvika! Annaðtilgreint 1% Hlutlæg ábyrgð, (ökumaður á ekki sök, enbótaskyldur) 26% Bifreið vanbúin 5% ölvun 8% Ofhraðurakstur 9% Biðskylda 10% Þessari auglýsingu er ætlað að vekja athygli á þeirri nöturlegu staðreynd að alvarlegustu umferðarslysin á íslandi, flest dauðsföllin og mestu örkumlin eiga oftast rætur sínar að rekja til sofandaháttar og kæruleysis hinna svokölluðu „góðu“ ökumanna. Þeir telja sig fullreynda í umferðinni, aka um á góðum bílum, eru á ferð við bestu skilyrðin - og slaka á við stýrið, oft með hörmulegum afleiðingum. Ef okkur tekst að fá þig til þess að skoða skífuritin í þessari auglýsingu, kynna þér helstu orsakir alvarlegustu umferðarslysanna og líta svolítið í eigin barm í leiðinni, ertilganginum náð. Við verðum að vakna til meðvitundar um ábyrgð okkar í umferðinni, fækka þessum hörmulegu slysum og eyða algjörlega því óþolandi gáleysi sem alls staðar skín í gegn þegar þessar myndir eru skoðaðar. Þegar skilyrði til aksturs eru best, bjart eða skýjað en þurrt, verða alvarlegustu slysin. Ástæðan: Ökumenn slaka á og gera sig seka um vítavert gáleysi. Slæmum bílum verður ekki kennt um stærstu slysin. í 86% tilvika voru engar athugasemdir gerðar við búnað þeirra bifreiða sem.tjónunum ollu. 5AMVINNU TRYGGINGAR -gegngáleysi ‘Samkvæmt könnun Samvinnutrygginga á orsökum 149 alvarlegustu umferðarslysanna sem félagið hafði afskipti af á árunum 1978-1984.1 þessum slysum létust 36 manns og 114 hlutu varanlega örörku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.