Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. Fréttir Þremenningamir sem lentu í miklum hrakningum á smábáti: „Kuldinn var verstur'1 Ingibergur ískarsson, Guðmundur Olafsson og Jóhann Ragnarsson um borð i plastbátnum. DV-mynd Ömar Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum; Aðfaranótt laugardags var gerð umfangsmikil leit af þremur ungum mönnum sem höfðu um klukkan 21 á föstudagskvöldið haldið áleiðis út í Elliðaey sem er um eina sjómílu austan Heimaeyjar. Mikil þoka var um nóttina og er þeir höfðu ekki skilað sér var farið að óttast um þá. Klukkan fjögur aðfaranótt laugar- dags var ákveðið að hefja leit. Humarbátar, sem voru á veiðum við Eyjar, félagar úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja, Lóðsinn og varð- skipið Týr hófu leitina. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið klukkan 6.45 og hálftíma síðar fann hún bátinn þar sem hann var rétt við land utan við brimgarðinn um 12 sjómílur vestan við Eyjar. Leið- beindi hún varðskipinu og björgun- arbáti Eyjamanna að týnda bátnum og var þeim fylgt til Eyja. Þegar blaðamaður ræddi við þre- menningana, voru þeir að mestu búnir að ná sér eftir volkið. En þeir heita Ingibergur Óskarsson, Guð- mundur Ólafsson og Jóhann Ragn- arsson. Jóhann var beðinn um að lýsa ferðinni og sagði hann að þeir hefðu um klukkan 21 á föstudag siglt áleiðis út í Elliðaey. Mikil þoka var Egilsstaðir 40 ára en það sást í Bjarnarey sem er nær höfninni og átti að taka stefnuna þaðan á Elliðaey. En þegar þeir voru komnir áleiðis umlukti þokan þá og misstu þeir alla landsýn. „Þegar þarna var komið var sólin það eina sem við gátum áttað okkur á en við sáum hana í gegnum þokuna og tókum stefnuna út frá henni. Við ákváðum að sigla áleiðis upp í sand með sólina á vinstri hönd. Þegar við komum að brimgarðinum sigldum við vestur með honum í átt að Þor- lákshöfn. Eftir um klukkutíma sigl- ingu ákváðum við að stöðva bátinn og bíða en þá var farið að ganga á bensínið. Við héldum okkur fyrir utan brimgarðinn en það braut mikið og bátinn rak að landi svo við urðum að kippa út annað slagið. Einn okkar sat alltaf uppi og fylgdist með til að við færum ekki of nálægt.“ Þeir heyrðu svo í þokulúðri um klukkan sjö um morguninn „og fimmtán mínútum síðar fann þyrlan okkur“, sagði Jóhann. Skömmu síðar kom varðskipið og bátur Björgunarfélagsins að þeim og var þeim fylgt til hafnar í Eyjum. „Þessi túr, sem átti að taka eina klukkustund, dróst á langinn en það sem hrjáði okkur mest var kuldinn. Einnig að geta ekki látið fólkið okk- ar vita að allt væri í lagi. Við hefðum frekar viljað hafa talstöð en átta- vita,“ sagði Jóhann. Vítavert Þremenningamir, sem fóru á litl- um piastbáti út í Elliðaey aðfaranótt laugardagsins, þykja hafa sýnt víta- vert kæruleysi því ekkert var af öryggistækjum um borð í bátnum, að sögn lögreglunnar í Vestmanna- eyniun. I þokunni römbuðu þeir svo á Bjamarey sem er næsta eyja við Elliðaey og reyndu þá að komast á áfangastað en misstu af honom. Sigldu þeir upp undir meginlandið og fann þyrla Landhelgisgæslunnar þá þar rétt fyrir utan brimgarðinn. Eins og fyrr sagði höfðu þeir hvorki talstöð né kompás um borð sem er furðulegt þar sem einn þeirra er meðlimur í björgunarsveitinni í Eyjum. Vitað er að einir tíu bátar, sem voru á veiðum á þessum slóðum, tóku unp troll sín og héldu í leitina að mönnunum auk þess sem varð- skipið Týr kom frá Þorlákshöfh. -FRI Arma ingólfedóttir, DV; Egflsstöðum: Egilsstaðabúar minnast þess nú að 40 ár em liðin frá stofnun Egils- staðahrepps. Þessara tímamóta verður minnst með ýmsum samkomum og við- burðum tímabilið 24. maí - 8. júlí í sumar en þann dag verður hátíðar- fundur í bæjarstjóm Egilsstaðabæjar. Hátíðarsamkoma var í Valaskjálf í gær. Þar var dagskrá í umsjón Menn- ingarsamtaka Héraðsbúa, kórsöngur, opnun málverka- og sögusýningar o.fl. Hátíðin var öllum opin. Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika á Egilsstöðum 29. maí og í júní verða m.a. íþróttaviðburðir. Félagasamtök hafa gengist fyrir ýmsu tengdu afmælinu; Rotaryklúbb- unnn mun gefa út ömefnakort, Lionsklúbburinn Múli mun reisa út- sýnisskífu, JC-Hérað reisir nýja af mörkum við fegrunina og klæða vegvísa við bæinn og íbúar leggja sitt hinn nýja bæ í sín bestu spariföt. Frá vinstri: Bjöm Ágústsson, Sigurður Símonarson sveitarstjóri og Bjami Björg- vinsson, formaður afmælisnefndar. Á myndina vantar Ragnar Steinarsson sem einnig situr í afmælisnefnd. Þokan raskar flugi Ómar Garðaissan, DV, Vestmannaeyjum: Undanfama daga hefur þokan gert Vestmannaeyingum lífið leitt. Röskun hefur orðið á flugi. Má helst líkja við gemingaveður að sjá þok- una koma héma inn yfir eyjuna og á stundum hefur þoka legið yfir hluta hennar meðan annars staðar hefur skinið sól. Á föstudaginn var vesturbærinn umlukinn svartri þoku svo varla sást út úr augum meðan austurhluti bæjarins var baðaður í sól. Á laugardagsmorgun tepptist ein véla Flugleiða í Vestmannaeyjum vegna þokunnar. Hún komst ekki í loftið aftur fyrr en um klukkan 15 sama dag en þá þurfti að sæta lagi. I gær, sunnudag, gekk flug vel enda ágætasta veður og gott skyggni. I dag mælir Dagfari____________________ Kvennalistinn kostar Irtið Enn virðist allt með ró og spekt í stjórnarmyndunarviðræðum þrí- flokkanna og menn tóku sér meira að segja frí frá viðræðum í gær og nutu góða veðursins. Enda liggur svo sem ekki lífið á. Það er ekki nema mánuður frá því kosningar fóru fram og allra flokka mönnum ber saman um að í þeim kosningum hafi kjósendur lýst trausti á fráfar- andi ríkisstjóm. Hún ætti því að geta setið áfram hin rólegasta næstu vikur eða mánuði meðan verið er að bræða saman nýja stjóm. Lítið hefur síast út um hvað þríflokkarnir hafa verið að stinga saman nefjum um. Þó er helst að heyra að fulltrúar flokkanna séu að tala saman um það hvort þeir eigi að tala saman í fullri alvöm eða ekki. Það ku þó vera komin sú niðurstaða að flokkarnir haldi áfram að tala saman og ætli að tala saman í alvöru um það sem þeir em sammála um til að byrja með. Ekki fylgir það hins vegar sög- unni um hvaða atriði flokkamir em sammála en eflaust má finna ýmsa fleti þar að lútandi, til dæmis að efla hag lands og þjóðar án þess að hleypa verðbólgunni á fullt skrið. í frétt í DV á laugardaginn var því lýst að þátttaka Kvennalista í nýrri ríkisstjórn kostaði minnst fimm milljarða króna. Engum ætti að bregða við slíkar tölur enda kostaði þátttaka Útvegsbankans í rekstri Hafskips ríkissjóð ekki nema tæpan milljarð svo allir sjá að hér er ekki um stórar upphæðir að tefla. í fyrr- nefhdri frétt segir að dýrasta krafa kvennanna sé sú að gamalt fólk og öryrkjar fái hátt í 40 þúsund krónur frá ríkinu á mánuði. Þetta muni kosta ríkissjóð í heild nærri fjóra milljarða. Ekki fylgir það sögunni hvort greiða eigi ellilífeyrisþegum þessa summu á mánuði án tillits til þess hvort viðkomandi hafi þörf fyr- ir peningana eða ekki. Það er nefnilega svo, sem betur fer, að margt gamalt fólk hefur úr nokkm fé að spila og hefur nurlað saman til elliáranna þótt bömum og bama- bömum hafi í sumum tilfellum tekist að krækja sér í dágóðan hlut af þeim sjóði. Og eflaust eykst umhyggja af- komendanna í réttu hlutfalli við hækkun ellilaunanna. Þá vilja kon- umar að ríkisstarfsmenn hækki í launum. Það er víst ekki vanþörf á þótt hitt sé mjög algengt að ríkis- starfsmaður með 40 þúsund króna mánaðarlaun fái tvöfalda þá upphæð í raun af einhverjum dularfullum ástæðum. En auðvitað ber fyrst og fremst að tryggja hag þeirra sem vinna hjá kerfinu því annars gæti kerfið verið í hættu. Enda er það ekki lengur gulltryggt að þeir sem einu sinni em komnir á ríkisjötuna geti dundað sér þar til æviloka án tillits til þess hvað þeir gera eða láta ógert. Þetta kemur glöggt fram hjá flug- umferðarstjórum þessa dagana. Þeir hafa uppi háar kröfur að venju en hafa nú lýst því yfir að þær eigi enn eftir að hækka. Ástæðan er sú að saksóknari gerðist svo ósvífinn að höfða mál gegn flugumferðarstjórum sem taldir em hafa gerst sekir um mistök í starfi. Vill saksóknari svipta þá réttindum. Þetta finnst flugum- ferðarstjórum hin mesta ósvinna og krefjast þess að það verði metið í launum alveg sérstaklega ef þeir eigi á hættu að verða látnir gjalda fyrir mistök sín. En það er ekki nóg að hækka laun ríkisstarfsmanna og gamla fólksins því það þarf líka að hyggja að þeim sem eiga að erfa landið og konumar vilja því lengja fæðingarorlof og fjölga vistheimilum fyrir blessuð bömin svo vandræða- laust sé að koma þeim í ömgga geymslu strax og fæðingarorlofinu lýkur. Ennfremur að skólabörn verði látin dvelja í skólanum jafnlengi dag hvem og foreldramir em að störfum og er þá sjálfsagt stutt í að skólam- ir verði opnir mestan hluta sólar- hringsins svo foreldramir geti unnið tvöfalda eftirvinnu án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að blessuð bömin dundi sér við að brjóta postu- línsvasa heima í stofu. Það er því margt sem ber að hafa í huga þegar myndun nýrrar ríkisstjómar er ann- ars vegar. Og auðvitað verða kratar og íhald að bjóða fram góð málefhi líka svo fólk haldi nú ekki að þaðan komi eintóm atvinnuillmenni. Okk- ur kjósendum verður svo sendur reikningurinn að venju og auðvitað borgum við hærri skatta með bros ávör því öllum verða tryggð hærri laun svo þeir geti borgað hærri skatta og þá er tilganginum náð - eða hvað? Óþarfi er að fjölyrða um annað sem heyrst hefur varðandi viðræður þrí- flokkanna svo sem kröfu kvennanna um að gerð varaflugvallar tengist ekki hemaðarframkvæmdum. Gall- inn er bara sá, að herflugvélar em gerðar með þeim ósköpum að þær geta notað sömu flugvelli og far- þegavélar og ef til hættuástands kemur verður enginn spurður hveij- ir megi nota flugvelli landsins og hvetjir ekki. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.