Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. dv Fréttir Samræmt próf í íslensku: Sýnist þetta níðþungt - segir Sverrir Hermannsson „Ég er nýbúinn að lesa þetta yfir og ég sé ekki betur en að hér sé um að tefla níðþungt próf. Þetta segi ég að vísu að lítt könnuðu máli. Það gengur hins vegar alls ekki að setja einhveij- ar prófgildrur íyrir ungt fólk. Raunar óttast ég mest að slíkt gæti valdið óbeit hjá þeim gagnvart námsefninu,“ sagði Sverrir Hermannsson mennta- málafáðherra í gær þegar DV spurði hann álits á þeim deilu sem risin er um samræmt próf í íslensku. Ymsir kennarar hafa haldið því fram að mikið fall í prófinu stafi af því að það hafi verið allt of þungt. Nú í dag munu fulltrúar kennara líklega ganga á fúnd menntamálaráðherra, Sverris Hermannssonar, og kynna honum sjónarmið sin. Munu þeir fara fram á að komið verði á einhvem hátt til móts við nemendur, t.d. með því að hækka þá upp eða endurmeta prófin. „Ég mun að sjálfsögðu hlusta á sjón- armið þeirra kennara sem hyggjast ganga á minn fund. Ég veit ekki hvort vald mitt nær til þess að breyta á ein- hvem hátt þeim einkunnum sem gefnar hafa verið. Ef mér sýnist eitthvað óeðlilegt þarna á ferðinni, eftir nánari skoðun, og ef vald mitt nær til þess þá væri ég vel til með einhvers konar upp- hækkanir,“ sagði Sverrir Hermanns- son menntamálaráðherra. -ES Reiðhjóladellan hefur gripið um sig víðar en á Akureyri, eins og með- fylgjandi mynd úr Reykjavík ber með sér. DV-mynd S Reiðhjóladella á Akureyri Jón G. Hautesan, DV, Akureyii: Reiðhjóladella virðist hafa gripið um sig á Akureyri. Að sögn Viðars Garð- arssonar, sem selur reiðhjól á Akur- eyri, hefur salan tvöfaldast frá því í fyrra. Giskar hann á að hann sé búinn að selja fimm til sex hundmð hjól í vor. „Það er áberandi hvað konur kaupa mikið af hjólum og eins em það böm- in,“ sagði Viðar. Viðar sagði ennfremur að það kæmu bílar til sín tvisvar í viku með þrjátíu til sjötíu hjól í hverri ferð og það færi allt saman. „Ætli ég selji ekki um hundrað reið- hjól á viku þessa dagana,“ sagði Viðar að-loknm. OG þÚ FLÝGUR í GEGNUM DAGINN Unnur Steinssonílugíreyjaerein fjölmargra *?*J*S*£ U fjölskyldutnmmtæki r/£L , Ummæll Jóns Páis- Ú9 er^&'dutrim^ mu 3öjhalda sér í formi hentar Hverníg á að nota fjölskyldutrimmtækið rétt? Burt með aukakíló. Æfið 5 mín. á dag. Tll þess að ná árangrl verður að æfa hinar þrjár mikilvægu undlrstöðuæfingar daglega. Eftir að byrjað er að æfa samkvæmt æfingar- prógrammf mótast vaxtarlag líkamans af sjálfu sér. Æfing 1 Þessl æfing er fyrir magavöðva og stuðlar að mjóu mitti Setjist á sætið á trimmtæklnu, legglð fæturna undir þverslána, hendur spenntar aftur fyrir hnakka. Látið höfuðið sfga hægt að gólfi. Efri hlutl líkamans er reistur upp og teygður í átt að tám. Mikllvægt: Æflngu þessa verður að framkvæma með jöfnum hraða án rykkja. í byrjun skal endurtaka æfinguna flmm sinnum, en síðan fjölga þeim í allt að tíu sinnum. Æflng 2 Þessf æflng er (yrlr handleggl og rassvöðva. Legglst á hnén á sætið á trimmtæklnu. Taklð báðum höndum um vinklana, handleggirnir hafðir belnir og stffir allan tímann. Teyglð úr fótunum þannig að setan renni út á enda, hnén dregin aftur að vinklunum. Æflngin endurtekin a.m.k. fimm sinnum. Æflng 3 Þessi æflng er til þess að þjáffa og móta lærvöðva, fætur og handleggl. Setjist á sætlð og takið báðum höndum um handföngln á gormunum og draglð sætlð að vinklunum. Teygið úr fótunum og halllð efrl hluta Ifkamans aftur og togið í gormana. Haldið gormunum strekktum allan tímann og spennið og slaklð fótunum tll skiptis. Æfingln endurtekin a.m.k. tíu slnnum. Enginn líkami er góður án vöðva í brjósti, I maga og bakhluta Kúlumagi, fitukeppir, slöpp brjóst, slappur bakhluti o.s.frv.) Allt þetta sýnir slappa vöðvavefi. Byrjaöu strax að stækka og styrkja vöövana þína með þessari árangursríku og eölilegu aðferð. Shippir yödvar Urjt»s«v(iðvar MjiiLHvðdviir niissvofíviir Sluppir vöövnr ÆJöir vöövur Leggðu fljótt af Misstu aukakíló með því að æfa 5 mín. á dag. Á ÍSLE^ ÖTAXM®% leS£S^ Verð aðeins 2.890.- Pöntunarsími 91-651414 Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00 Póstverslunin Príma Box 63, 222 Hafnarfirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.