Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. Greiöslukjör útborgun eftirstöðvar Eurokredit 0 kr. 11 mán. Skuldabréf 19.000,-kr. 6 - 8 mán. Fréttir Hvalavinafélag Islands: Mun berjast gegn vís- indaveiðum íslendinga - alþingismenn meðal félaga Hvalveiðar Islendinga hafa mikið verið í sviðsljósinu undanfarið. Ekki eru allir sáttir við þær veiðar og á miðvikudagskvöld verða stofnuð samtökin Hvalavinafélag íslands. Magnús Skarphéðinsson, einn af forsvarsmönnum samtakanna, sagði í samtali við DV að samtökin myndu einbeita sér að fræðslu og friðsam- legum mótmælum. Magnús sagði að það væri ljóst að þetta félag myndi starfa óháð erlendum samtökum. Ekki sagðist hann búast við að beitt yrði svipuðum aðgerðum og Sea Shepard cg fleiri hafa beitt erlendis, a.m.k. myndi félagið einskorða sig við löglegar leiðir til að ná sínu fram. Tilgangur félagsins verður m.a. að vinna að friðun hvala, stuðla að fræðslu um hvali og beijast fyrir að hafnar verði skoðunarferðir á hvala- slóðir en ekki veiðiferðir. Stofnfundurinn á miðvikudags- kvöld verður haldinn á Hótel Borg og að sögn Magnúsar verða þar margvísleg skemmtiatriði. Meðal annars sagði hann að hápunktur kvöldsins yrði flutningur hvalatón- listar en þá verður spiluð upptaka af þeim hljóðum sem hvalir gefa frá sér. Það munu vera einhvers konar blísturshljóð. Sagði Magnús þetta áheyrilegt mjög og áhugavekjandi. Undirbúningshópur hefur unnið að stofriun samtakanna að undan- fömu og meðal 52 skráðra félags- manna eru nokkrir líffræðingar og náttúrufræðingar auk fólks úr ýms- um öðrum starfsgreinum. M.a. hefur Guðrún Helgadóttir alþingismaður gerst félagi og sagði Magnús að mik- ill vilji væri meðal félagsmanna að hún tæki sæti í stjóm félagsins sem kosin yrði á stofhfundinum. Samkvæmt heimildum DV mun einnig vera hart lagt að einni þing- konu Kvennalistans að taka sæti í stjóminni. Því gæti eins farið svo, ef stjómarmyndunarviðræðumar bera árangur, að einn af ráðherrum þeirrar ríkisstjómar yrði stjómar- maður í Hvalavinafélagi íslands. -ES A A MITSUBISHI FARSÍMINN ,,, átöduqt i teunfcutcii 79.980,- staðgreidd eða kr. 89.980,-með afborgunum. Undirbúningsnefndin sem undanfarið hefur unnið að stofnun Hvalavinafélags Islands; (frá vinstri) Magnús Skarp- héðinsson, Guðmundur Guðmundsson, Benedikt Erlingsson, Rúnar Guðbjartsson, Þórir Jakobsson og Hrannar B. Arnarsson. DV-mynd Brynjar Gauti Rjúpan heilög í Hrísey Jón G. Haukssan, DV, Akureyri: Rjúpnastofninn virðist vera að minnka samkvæmt talningu sem gerð var í Hrísey í síðustu viku. í Hrísey er þéttasta ijúpnabyggð í heimi og þar er rjúpan heilög líkt og kýrnar á Indl- andi. Að sögn Þorsteins Þorsteinssonar á Akureyri, en hann var aðstoðarmaður dr. Finns Guðmundssonar fuglafræð- ings í tíu ár, sem talið hefur rjúpumar í Hrísey em ijúpnapörin þar nú 252 en talningin fór fram í síðustu viku. I fyrravor var stofninn í hámarki en þá vom í Hrísey 315 pör. „Það tekur rjúpnastofninn um þrjú ár að detta niður. Þegar hann er í mestri lægð em í Hrísey þrjátíu til fjörutíu pör,“ sagði Þorsteinn. 19 SKIPHOLTI SÍMI 29800 VlfHOKUM VEL A MOTIÞÉR BIAGKSlDECKER Garðáhöldunum Kantskerar í úrvali Verð frá kr. 3.943,- Við eigum einnig fyrir- liggjandi stærri sláttuvél- ar og ýmis gæðaáhöld. Útsölustaðir um land allt. ___brsteinsson &1ohnson ÁRMÚLA1-SIMI 68-55-33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.