Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. 7 Utlönd Saragosa rústir einar eftir hvirfilvindinn Þeir, sem komust lífs af er hvirfil- vindur gekk yfir Saragosa í Texas í Bandaríkjunum, héldu í gær minn- ingarguðsþjónustu um þá sem urðu náttúruhamförunum að bráð á föstu- daginn. Alls létust tuttugu og níu manns og hundrað og tuttugu særð- ust. Um sextíu hús jöfnuðust við jörðu í Saragosa í Texas er hvirfilvindur gekk þar yfir á föstudaginn. Meðal þeirra var kirkjan en kirkjuklukkan og nokkr- ir kirkjumunir sluppu við eyðilegginguna. Simamynd Reuter Minningarstundin var haldin þar sem kirkjan stóð áður en þar eru nú rústir einar. Aðeins standa um þrjátíu hús af þeim níutíu sem í þorp- inu voru. Veðurofsinn var slíkur að hús og farartæki lyftust upp. Bifreiðar flött- ust út og voru orðnar að járnarusli. Móðir nokkur sagði frá því að fjög- urra ára sonur hennar hefði þeyst upp í loftið en að bróður hennar hefði tekist að ná taki á fæti drengs- ins og toga hann niður og koma honum fyrir undir bekk. Skólaslit voru er hvirfilvindurinn gekk yfir og létust sex barnanna sem voru við athöfnina. Björgunarmenn, sem vanir eru störfum í Suður-Ameríku, áttu varla orð til að lýsa eyðileggingunni sem varð. Höfðu þeir á orði að þegar um jarðskjálfta væri að ræða hefði fólk einhveija hugmynd um hvemig bregðast mætti við. Hér var ekki um slíkt að ræða og hvergi hægt að leita skjóls. Einn eftirlifenda sagðist hafa haldið að heimsendir væri kominn. Ekki er hægt að segja að hvirfil- vindar hagi sér eftir ákveðnu mynstri nema hvað þeir eyðileggja allt sem á vegi þeirra verður. Þeir geta tekið niðri hér og þar eða þá farið um á hundrað ferkílómetra svæði. Þessi systkin huga að því litla dóti sem bjargað var er heimili þeirra eyði- lagðist í hvirfilvindinum. Á meðan fjarlægir jarðýta rústir hússins. Simamynd Reuter Aldraður biskup lést úr eyðni Sjötíu ára gamall meþódistabiskup á eftirlaunum, sem veitti eyðnisjúkling- um í Texas aðstoð sína, hefur látist úr sjúkdómnum. Að sögn fjölskyldu biskupsins er ekki vitað hvemig hann smitaðist af eyðni. Hann var ekki í neins konar ástarsambandi utan hjónabandsins. Ekki hafði honum verið gefið blóð né heldur var hann eiturlyfjaneytandi. Þegar biskupinn lét af störfum 1984 tók hann.til við að hjálpa fómarlömb- um eyðni. Hann skipulagði jarðarfarir, sá um flutninga sjúklinga á sjúkrahús og þreif íbúðir þeirra. Slanga send heim til að tiyggja uppskeru Heilagri pýtonslöngu, sem var í með- ferð í Nairobi vegna brunasára sem hún hlaut í ijóðureldum í febrúar, hefur nú verið komið aftur til heim- kynna sinna. Óttuðust íbúamir í Nyakach í Kenýa uppskembrest vegna fjarvem slöngunnar en nærvera hennar er talin tryggja góða uppskem. Slöngunni, sem enn er á lyfjum, verður ekki sleppt út á víðavang held- ur verður hún fyrsti íbúinn í slöngu- garði sem koma á upp í Kisumu. Fundu 2,5 kíló af heróíni Á norðvesturströnd Frakklands fannst poki með tveimur og hálfu kílói af heróíni, að sögn lögregluyfirvalda þar. Var það fólk á gangi á ströndinni sem fann heróínið en andvirði þess, komið á götuna, er fimmtán milljónir íslenskra króna. Fyrir tíu dögum fannst plastpoki á sömu slóðum og innihélt hann þrjú hundmð og fimmtíu grömm af heróíni. n Jeep EGILL VILHJÁLMSSON HF. umboóið Smiójuvegi 4, Kóp., s. 7 72 00-7 72 02. flugnbiH Verð frá kr. 14.700,- 4 saman í bíl i viku. Brottför alla fimmtudaga. OTltXVTMC FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.