Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháö dagblað MANUDAGUR 25. MAI 1987. Omar brotlenti Ómar Ragnarsson fréttamaður og flugmaður, með meiru, gat með snar- ræði sínu og langri flugreynslu forðað sjálfum sér og farþegum sín- * um frá mjög alvarlegu flugslysi þegar hann nauðlenti flugvél á Revkjahlíðarafrétti, 10 km vestan við Grímsstaði á Fjöllum. Samkvæmt upplýsingum Ómars voru þeir að mvnda afréttinn á þess- um slóðum í því skyni að rannsaka gróðurástand svæðisins en flugferð- in var farin í samráði við Vélflugfé- lagið. Landgræðsluna og Náttúru- vemdarráð. Fimm manns voru um borð i vél- inni og sluppu þeir allir ótrúlega vel. Vélin er hins vegar gjörónýt að dómi Ómars. Tildrög óhappsins voru þau að vélin lenti í óvenju miklu niður- strevmi sem nressaði hana niðui' á (t > við á ótrúlega skömmum tíma: ..Ég hef flogið mikið um dagana en ég man ekki eftir að hafa lent í öðru eins niðurstreymi. nema ef verið hefúr fý-rir 18 árum.“ sagði Ómar i viðtah við DV. „Ég hafði hjólin uppi og kviðlenti vélmni en þama var laus sandur og nokkuð óslétt svo að vélin fór fram yfir sig í lendingunni og hvolfdi þar með." Ómar og tveir aðrir fengu smá- skrámur og tveir farþeganna voru aumir í baki en þar með eru meiðsl- in upptalin. ..Ég er forsjóninni mjög þakklátur fvrir að ekki fór verr.“ sagði Ómar að lokum. -KGK Grænt Ijós á Pólverjana Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Grænt ljós er komið frá félags- málaráðuneytinu á ráðningu Slipp- stöðvarinnar á Akurevri á pólskum málmiðnaðarmönnum. Að sögn Gunnars Arasonar hjá Slippstöðinni 'vjA vom pólsku rafvirkj amir afþakkaðir því ekki þurfti á þeim að halda þar sem íslenskir rafvirkjar hafa verið ráðnir að undanfömu. Gunnar sagðist reikna með því að pólsku málmiðnaðarmennirnir kæmu til starfa fljótlega í næsta mánuði. th&'* LOKI Þær eru varasamar, þessar fljúgandi fréttastofur. Tillögur Kvennalista um lágmarkslaun: Mikill ágreiningur um lögbindinguna Eitt af þeim skilyrðum, sem Kvennalistinn setur fyrir þátttöku í ríkisstjóm, er að tryggð verði 36-40 þús. kr. lágmarkslaun. Andstæðingar þessarar hugmynd- ar hafa bent á að lágmarkslaun hafi nú þegar hækkað mjög mikið og mun meira en öll önnur laun. Kvennalistakonur segja þessa hækkun einfaldlega ekki nógu mikla því að lágmarkslaun dugi einstakl- ingi ekki til framfærslu. Ljóst er að þessi hugmynd grund- vallast á því að hækkunin skili’sér ekki upp alla taxta í samningum eða launaskriði en hvemig koma ætti í veg fyrir það er enn alls óljóst „Nei, þessar hugmyndir ganga ekki upp. Mér virðist ljóst að þetta myndi þýða hækkun fyrir allan þorra launafólks en væri ekki bund- ið við lægstu laun. Eins og dæmið stendur núna þá verður nógu erfitt að viðhalda þeim kaupmætti sem þegar er fenginn. Menn verða að gera sér grein fyrir því að góðar óskir einar sér verða aldrei tmdirstaða kaupraáttar. Aukin verðmætasköp- un verður að standa undir honum,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, þegar DV spurði hann álits á þessum hug- myndum. „Ég tel að lágmarkslaun verði að hækka og sé það ekki mögulegt með almennu samkomulagi milli aðila hefði ég síður en svo á móti því að lágmarkslaun yrðu lögbundin. Þetta er mín persónulega skoðun,“ sagði Aðalheiður Bjamfreðsdóttir, þing- maður Borgaraflokksins, rnn þessar hugmyndir í morgun. Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði i samtali við DV að það væri ljóst að hækkun lægstu launa um- fram önnur laun væri vandasamt verk. „Ef lægstu laun eiga að hækka hlutfallslega umfram önnur laun þá verða líka önnur laun að hækka minna. Þetta höfiun við verið að reyna að gera, raunar með misjöfh- um árangri. Ég hef ekki séð hvemig hugmyndin er að framkvæma þetta nú og fyrr get ég ekkert sagt um málið,“ sagði Ásmundur. -ES/FRI Grillað í góða veðrinu Nemendur við Kársnesskóla í Kópavogi og foreldrar þeirra létu hendur standa fram úr ermum í blíðviðrinu um helgina, hreinsuðu skólalóðina eftir veturinn og gróðursettu þar tré og plönt- ur. Að afloknu góðu verki er svo prýðilegt að fá sér grillaðar pylsur. DV-mynd S Veðríð á morgun: Hæg breyti- leg eða suðaust- læg átt á landinu Á þriðjudaginn verður hæg breytileg eða suðaustlæg átt á landinu. Léttskýjað verður inn til landsins og hiti 12-18 stig en sums staðar þokubakkar við ströndina og hiti 7-13 stig. Eldur í verslun Slökkviliðið var kallað út að Þing- holtsbraut 21 í KópaVogi aðfaranótt laugardagsins en þar var eldur laus í versluninni Matvali. íhúar í nærliggj- andi götu höfðu orðið eldsins varir og hringt í slökkviliðið. Er slökkviliðið kom á staðinn lagði töluverðan reyk úr versluninni og talsverður eldur var kominn í lager- plássi hennar. Tveir reykkafarar vom sendir inn í verslunina og tókst þeim fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. Nokkrar reykskemmdir urðu í versl- unni og rífa þurfi niður millivegg á lagemum þar sem eldurinn hafði kom- ist í hann. Ibúð er á efri hæð verslunarinnar en hún slapp alveg við reykskemmdir. -FRI Rafeindavirkjar: Samnings- tilboð í dag i i Rafeindavirkjar sitja í dag fund hjá ríkissáttasemjara og leggja þar fram tillögu sína að samningi við ríkið en fyrir helgi höfnuðu rafeindavirkjar framkomnu samningstilboði ríkisins, samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Guðlaugi Þorvaldssyni ríkissátta- semjara. Verkfall rafeindavirkja, sem starfa hjá Pósti og síma, Flugmálastjóm og Vita- og hafhamálastjórn, hófst á fimmtudag en á föstudaginn næstkom- andi hefst verkfall rafeindavirkja hjá Ríkisútvarpinu og Ríkisspítulum. Er reiknað með að verkfall starfsmanna þessara stofnana hafi vemleg áhrif. Aðspurður sagði ríkissáttasemjari að hann vildi ekkert segja um horfur í samningamálum þessai'a aðila á næstunni. -ój Þyrla sótti slasaðan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan sjómann um borð í togarann Arinbjöm frá Reykjavík á sunnudags- morguninn. Hafði sjómaðurinn fengið vír í höfuðið en við nánari skoðun vom meiðsl hans ekki talin alvarleg. Arinbjöm var á veiðum um 20 mílur suðvestur af Eldey er óhappið varð. Þyrlan lagði af stað úr borginni um kl. 6.25 um morguninn og var komin með manninn á slysadeild Borgar- spítalans um klukkutíma seinna. -FRI Stjómarmyndunartilraunimar Fundalota skipulógð Stjómarmyndunartilraunir Þor- steins Pálssonar halda áfram í dag. Sett hefur verið upp dagskrá fyrir viðræðumar í þrjá daga, þ.e. mánu- dag, þriðjudag og miðvikudag. Er þá ráðgert að ræða meðal annars um rík- isfjármál, efnahagsmál og utanríkis- mál. Á miðvikudag verður þessari funda- hrinu lokið og sagði Þorsteinn Pálsson í samtali við DV í morgun að þá ætti að vera orðið ljóst hvort þessir flokk- ar, Sjálfstaaðisflokkur, Alþýðuflokkur og Kvennalisti, hefðu einhvem mögu- leika á því að ná saman um myndun ríkisstjómar. Fundurinn í morgun hófst kl. 10.30 og er búist við að hann muni standa langt fram eftir degi. -ES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.