Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1987.
BORGARA
FLOKKURim
STOFNFUNDUR.
Mánudaginn 15. júní 1987 verður haldinn stofnfundur
Félags Borgaraflokksins I Reykjavík.
Fundurinn fer fram í Veitingahúsinu Glæsibæ, að Álf-
heimum 74, og hefst klukkan 20.30 stundvíslega.
Dagskrá:
- Setning.
- Ræða, Albert Guðmundsson alþingismaður.
- Settar samþykktir fyrir félagið.
- Kosning formanns.
- Kosning stjórnar.
- Almennar umræður.
Stuðningsmenn Borgaraflokksins eru hvattir til að fjöl-
menna.
Undirbúningsnefnd að stofnun
Félags Borgaraflokksins í Reykjavík.
Fyrir endurvarps-
kerfi Stöðvar 2
UHF-loftnet fyrir
rásir 36-69.
Fyrir endurvarps-
kerfi Stöðvar 2
UHF-loftnet fyrir
rásir 36-69.
rstaklega næmt.
Breiðbandsloftnet
fyrir RUV og Stöð 2
VHF fyrir rásir 5-12
Breiðbandsloftnet
fyrir RUV og Stöö 2
VHF fyrir rásir 5-12.
Sérstaklega næmt.
Væntanlegt samsett loftnet
VHF - UHF fyrir allar rásir
Eigum á lager mikið úrval loftneta fyrir
útvarp og sjónvarp, úti og inni, fyrir bílinn
og farsímann..
SKIPHOLTI
SÍMI 29800
Utlönd
Bettino Craxi, leiðtogi ítalska sósíalistaflokksins, greiðir atkvæði i kosningunum
í gær. Símaniynd Reuter
Kjörsókn var fremur dræm á Ítalíu
í gærdag, fyrri dag kosninganna sem
nú fara fram þar. Kjörfúndi lýkur í
landinu um hádegi í dag, mánudag.
Talið var í morgun að hitabylgja, sem
gengið hefúr yfir landið, muni valda
þvi að þátttaka í kosningunum verði
með minna móti.
Stjómmálaleiðtogar á Ítalíu, sem
segja að kosningar þessar séu ein-
hverjar þær mikilvægustu sem haldn-
ar .hafa verið í landinu í fjögurra
áratuga sögu lýðveldis þar, hafa birt
ítrekaðar hvatningar til kjósenda að
nota kosningarétt sinn. Um 45,5 millj-
ónir manna eru á kjörskrá.
Kosningabaráttan í landinu hefúr
einkennst ákaflega af átökum milli
sósíalista og kristilegra demókrata,
sem hafa verið áhrifamesti flokkur
landsins. Flokkarnir hafa verið aðilar
að samsteypustjómum á Ítalíu í tvo
áratugi en bitrar deilur milli flokk-
anna hafa skapað aðstæður sem talið
er að geti orðið til þess að róttækar
breytingar verði á ítölskum stjóm-
málum. Ef flokkamir tveir geta ekki
komið sér saman um stjórn að aflokn-
um þessum kosningum myndu
kommúnistar fá tækifæri til að setjast
í ríkisstjóm, í fyrsta sinn frá árinu
1947. Italski kommúnistaflokkurinn er
sá stærsti í Evrópu og skoðanakann-
anir síðustu dagana fyrir kosningar
sýndu að flokkurinn virtist ætla að
keppa hart við kristilega demókrata
um að verða stærsti flokkur landsins.
Bretland:
Kosningarnar staðfesta dýpið
milli ríkra og fatækra
Jón Ormur Halldórssan, DV, Lundúnum;
Þó að íhaldsflokkurinn hafi unnið
mikinn og sögulegan sigur í kosning-
unum, staðfesta úrslitin aukið dýpi á
milli ríkra og fátækra. Fylgi flokksins
er bundnara við ákveðin svæði og
ákveðnar stéttir en verið hefúr á síð-
ari áratugum,
Þannig skiptast þingsæti fyrir utan
London með þeim hætti, að íhalds-
flokkurinn fékk 170 sæti en Verka-
mannaflokkurinn 3. í Skotlandi,
Wales og nyrstu héruðum Englands
var skiptingin hinsvegar þannig , að
Ihaldsflokkurinn fékk 26 en Verka-
mannaflokkurinn 101. Öll þingsæti
íhaldsmanna í þessum landshlutum
vom í úthverfúm stórborga og í smá-
bæjum en öll þingsæti Verkamanna-
flokksins í Englandi vom í stórborg-
um. íhaldsflokkurinn hefúr nú ekkert
þingsæti í stórborgum norður Eng-
lands og Verkamannaflokkurinn
ekkert sæti utan helstu borga lands-
ins.
Ósigur íhaldsmanná í Skotlandi var
mikill, flokkurinn hélt aðeins 10 sæt-
um, en þingmenn Skota eru 72.
Vamarmálaráðherra landsins komst
inn á örfáum atkvæðum en hann hlaut
góða kosningu í síðustu kosningum.
Verkmannaflokkurinn hefur nú að-
eins stuðning 15 prósent þeirra sem
em í efstu þrepum þjóðfélagsins, hvað
snertir tekjur og menntun. fhalds-
flokkurinn hefur fylgi nær 60 prósenta
þessa fólks en aðeins 20 prósent þeirra
sem tilheyra neðstu þrepum þjóðfé-
lagsins. Þar hefur Verkamannaflokk-
urinn 60 prósent fylgi. Meðal þeirra
sem eiga sitt eigið íbúðarhús styðja
meira en helmingur Ihaldsflokkinn en
rúmlega fimmtungur Verkamanna-
flokkinn. Þetta snýst við þegar litið
er til þeirra sem búa í leiguhúsnæði.
Allur þorri svartra manna í Bret-
landi kaus Verkamannaílokkinn. í
fyrsta sinn í sögunni komust svartir
menn á þing, tveir karlmenn og ein
kona.
Filippseyingar taka
Shultz með fyrirvara
Filippseyingar hafa tekið George
Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, og vilyrðum hans um fjárhags-
aðstoð og annan stuðning Bandaríkj-
anna með fyrirvara en ráðherrann
hélt í heimsókn til Filippseyja beint
af ráðherrafundi NATO í Reykjavík
fyrir helgina.
Forystumenn á Filippseyjum hafa
lýst því yfir að íbúar eyjanna eigi ekki
að hoppa um eins og simpansar í hvert
sinn sem aðstoð frá Bandaríkjunum
ber á góma. Segja þeir stjómvöld í
Bandaríkjunum ekki lengur reyna að
leyna afskiptum sínum af stjómmálum
og öðrum innanríkismálum á Filipps-
eyjum og því beri að sýna mikla varúð
í því að þiggja frekari aðstoð frá þeim.
í síðustu viku gáfu bandarísk stjóm-
völd her Filippseyja tíu gamlar þyrlur,
til þess að aðstoða í baráttunni gegn
kommúnistum á eyjunum. Fréttaskýr-
endur þar telja gjöf þessa dæmigerða
fyrir þau viðhorf Bandaríkjamanna
að Filippseyingar séu annars flokks
bandamenn, nánast leppar, en ekki
sjálfstæð vinaþjóð eins og látið er i
veðri vaka.
Stuðningsmenn Marcosar, fyrrum
forseta Filippseyja, sem settur var af
á síðasta ári, fóm þess á leit við Shultz
að hann hlutaðist til um að Markos
fengi að snúa aftur heim úr útlegð
sinni á Hawaiieyjum. Fullyrða þeir að
Markosi hafi verið rænt og því beri
Bandaríkjamönnum að skila honum
aftur.
Síðast þegar Shultz heimsótti
Filippseyjar reiddust stjómvöld þar
því ákaflega að ráðherrann hafði með
sér hunda sem þjálfaðir em til
sprengjuleitar. Þótti það bera þess
greinilega vott að ráðherrann teldi
Filippseyinga þess ekki umkomna að
tryggja öryggi sitt.
í þetta sinn tóku fjölmiðlar á eyjun-
um sérstaklega fram að hundamir
væm ekki með ráðherranum.
Margir Filippseyingar binda helstu
vonir sínar við að komast til Banda-
ríkjanna og fá þar atvinnu. Segja
sumir þeirra að mótmæli gegn komu
Shultz beri merki þeirra vona því
helsta slagorðið sem notað er sé:
„Farðu heim, Kani, og taktu mig með
þér.“