Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Side 12
12 MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1987. Neytendur Mikil qölbreytni í steina- og hellugerð Síðustu áratugi hafa íslendingar verið mjög stórtækir í nýtingu stein- steypu við mannvirkjagerð. Stein- steypan er íyrir löngu orðin ráðandi byggingarefrii hér á landi og reyndar olli hún byltingu í húsabyggingum á sínum tíma. Það ætti því engttm að koma á óvart að hellu- og steinagerð er afar grósku- mikil framleiðslugrein sem stöðugt skilar á markaðinn nýjum gerðum af gangstígahellum, kantsteinum, tröppuþrepum, hleðslusteinum, múr- steinum, blómakerum og jaínvel garðhúsgögnum úr steini ef því er að skipta. Það er til marks um þessa grósku að nú er Hellu- og steinsteypan að framleiða múrsteina sem virðast hafa ýmsa'kosti fram yfir erlenda múr- steina. Lengi vel var fjölbreytnin á þessu sviði takmörkuð við þær gangstíga- hellur sem til skamms tíma prýddu opinberar gangstéttar höfuðborgar- innar, en á síðustu árum hafa fram- leiðendur verið að fikra sig áfram með ýmsar nýjungar á þessu sviði. Árang- urinn lætur ekki á sér standa. Nú er komið á markaðinn ótrúlegt úrval af fallegum og hugvitsamlega hönnuðum steinum og hellum til margvíslegra nota. Við á Neytendasíðunni töldum því tíma til kominn að kynna fyrir hús- byggjendum og garðeigendum, þó ekki væri nema hluta af þeirri fjölbreyttu íslensku framleiðslu sem þeir geta valið úr í þessum efnum. Undirbúningsvinnan er alltaf sér- staklega mikilvæg þegar lagðar eru hellur í gangstíga, tröppur eða kanta. Þess ber að gæta að frostlaus jarðveg- Verð á ómynstruðum, ólituðum hellum Ferhyrndar hellur B.M.Vallá Hellu- og steinsteypan Ós Stétt sf. Vinnuhælið Litla-Hrauni flatarmál þykkt stk. m2 stk. m2 stk. m2 stk. m2 stk. m2 50x50 cm 5cm 146,- 584,- 146,- 584,- 50x25 cm 5cm 75,- 600,- 75,- 600,- 25x25 cm 5cm 40,60 650,- 40x40 cm 5cm 97,- 606,- 97,- 606,- 97,- 606,- 97 606,- 92,- 575,- 40x20 cm 5cm 51,- 637,50 51,- 637,- 51,- 637,- 50,- 594,- 48,- 600,- 20x20 cm 5cm 27,- 675,- 26,50 662,- 26,- 650,- 25,- 594,- 26,- 650,- 60x30 cm 5cm 116,- 638,- 120,- 660,- 30x30 cm 5cm 59,- 649,- 60,- 660,- 15x30 cm 5cm 30,- 662,- 31,- 648,- 28,- 621,60 10x30 cm 5cm 21,- 648,- 10x10 cm 5cm 7,50 750,- 90x30 cm 8cm 233,- 862,10 72x24 cm 6cm 128,- 741,10 24x24 cm 6cm 43,- 746,50 24x8 cm 6cm 15,- 781,20 8x8 cm 6cm 11,- 1.718,75 Sexhyrndar hellur 649,- 629,- 616,- 607,- ur sé undir hellunum og nái a.m.k. 60 sm dýpt. Eins skiptir auðvitað miklu máli að sandurinn undir hellunum sé sléttur, vel troðinn og myndi við hellulögnina hæfilegan vatnshalla svo ekki myndist pollar í stéttinni. Nú færist það mjög í vöxt, að menn leggi afrennsli heita vatnsins í gang- stíga heim að íbúðarhúsum, í því skyni að bræða snjó og svellbungur af stíg- unum. Þetta er vel til fundið, enda er þá verið að nýta yl sem annars færi til spillis, en framkvæmdir af þessu tagi eru yfirleitt einfaldar og efriið til þeirra er að öllu jöfnu mjög ódýrt. Á töflunni, sem hér fylgir, gefur að líta verð á helstu stærðum á ólituðum og ómynstruðum ferköntuðum hellum. Þar fyrir utan eru svo einnig á boðstól- um ýmsar aðrar gerðir af hellum og steinum eins og best sést á myndunum hér á síðunni. Eins og sjá má á töflunni eru hellur frá Vinnuhælinu á Litla-Hrauni ódýr- astar í tveimur tilfellum en vegna afmælisafsláttar hjá Stétt sf. eru þar hins vegar bestu kjörin í öðrum tveim- ur tilfellum. Taflan gefur einnig vísbendingu um þá staðreynd að Hellu- og steinsteypan hefur mest úrval af hellum og steinum, en þár eru á boðstólum 37 vöruflokkar. Hjá þeim fyrirtækjum, sem við leit- uðum til, er svo hægt að fá ýmsar tegundir af hellum í fleiri en einum lit. Að lokum ber svo að ítreka það að hér er ekki um að ræða allsheijarút- tekt á öllum þeim tegundum sem til eru heldur er þessari kynningu fyrst og fremst ætlað að hvetja fólk til að skoða sjálft það sem á boðstólum er. KGK Ofið í sandinn með hellum og steinum Garðhúsgögn og útigrill úr U-steinum frá B.M. Vallá. U-steina má einnig nota í tröppuþrep, kantsteina, blómaker og tjarnarbakka, svo eitthvað sé nefnt. U-steinninn er 40 sm á kant og 30 sm á þykkt Hann kostar 410 krónur stykkið. U-steinn með stólsetu kostar 1370 kr, tveir steinar með bekksetu kosta 3620 kr. og tveir steinar með borðplötu kosta 3220 kr. Grassteinar frá B.M. Vallá. Þeir eru mikíð notaöir á innkeyrslur, bilastæöi og jafnvel gangstíga. Eins og sjá má mynda steinarnir möskva en ætlast er til að gras vaxi þar upp á milli. Grassteinarnir eru 60 sm langir, 40 sm breiðir og 10 sm þykkir. Þeir kosta 199 kr. stykkiö þannig aö fermetrinn kostar 830 kr. Grassteinar fást einnig hjá Stétt sf. Þeir hafa sama flatarmál og steinarnir frá B.M. Vallá en eru hins vegar 8 sm þykkir og kosta 170 kr. stykkið, þannig að fermetrinn kostar 709 kr. Götustelnar frá Stétt sf. Götusteinarnir hafa skemmtilega áferö sem minnir mjög á steinlögð stræti fyrri tíma. Hjá Stétt sf. eru götusteinarnir 21 sm á lengd, 14 sm á breidd, 6 sm þykkir og kosta 22 krónur stykkið þannig að fermetrinn kostar 748 krónur. Götusteinar fást einnig hjá Hellu- og stein- steypunni. Þeir eru 13 sm á breidd, 20 sm á lengd, 5,5 sm á þykkt og kosta 16,70 kr. stykkiö. Fermetr- inn kostar þvi 695 krónur. l-steinar frá Stétt sf. en þeir fást líka hjá Ós og hjá Hellu- og steinsteypunni. Hjá Stétt eru steinarnir 6 sm þykkír og kostar fermetrinn þar 737 kr. en i til- efni af 25 ára afmæli fyrirtækisins veitir þaö nú afslátt af ýmsum vörum sínum og þ.á m. l-steinum sem þess vegna kosta nú 700 krónur fermetrinn. Ós er með 6 sm þykka l-steina á 756 krónur fer- metrann og 7 sm þykka á 828 krónur fermetrann. Hellu- og steinsteypan er hins vegar með 5 sm þykka l-steina á 695 krónur fermetrann. Þetta eru ekki Legó-kubbar en kubbar heita þeir engu aö síöur og eru hleöslusteinar frá Stétt sf. Þeir henta vel i hleöslur enda ganga þeir hver inn í annan og standa því nokkuö stööugir án þess að steypt sé með þeim. Þeir eru 58 sm á lengd, 3 sm á breidd, 10 sm á þykkt og kosta 100 krónur stykkið. Hér gefur að líta mynsturhellur frá Hellu- og stein- steypunni en þeir eru meö fjórar mismunandi tegundír af mynstri sem hægt er aö fá i ýmsum litum. Þessar hellur eru 40x40 sm að flatarmáli, 5,5 sm á þykkt og kosta 115 krónur stykkiö, eða 718 krónurfermetrinn. Mynsturhellur fásteinnig hjá Ð.M. Vallá. Laufsteinar frá Hellu- og steinsteypunni sem eru upplagöir i gangstíga. Hver steinn kostar 16,70 kr. I fermetranum eru 40 steinar, þannig að fermetrinn kostar 695 krónur. Götusteina, mynsturhellur og laufsteina frá Hellu- og steinsteypunni má fá i svört- um, gulum og rauöum lit og eru þá 20% dýrari enella.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.