Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987.
Útlönd
Forsetavín fer á rúma milljón
Hálfilaska af frönsku rauðvíni, sem þriðji forseti Bandaríkjanna, Thomas
Jefferson, átti, fór á tæplega 1,2 milljónir ísl. kr. á vínuppboði í Bordeaux
i Frakklandi. Vínið er af tegundinni Chateau Margaux og árgangurinn er
1784.
Ónefhdur Bandaríkjamaður keypti flöskuna. Flaskan er ómerkt að öðru
leyti en því að á henni er fangamark Thomasar Jefferson og misritunin „Mar-
gau“ Jefferson var reglulegur kaupandi á Chateau Margaux-vínum og enn
eru til nokkrar flöskur af þessu eðalvíni. f desember síðastliðnum keypti
Jórdani, sem er bindindismaður, heilflösku úr safhi Jeffersons og pungaði
fyrir hana út nærri 2,5 milljónum íslenskra króna.
Vínsérfræðingur segir þetta 200 ára rauðvín „fullkomið".
Lánið ekki pókerspilara
Maður nokkur í Vestur-Þýskalandi lánaði félaga sínum rúmlega 160 þús-
und íslenskar krónur þar sera félaginn sat við pókerspil. Fjárhættuspilarinn
tapaði peningunum og hvorki vildi né gat borgað lánið til baka. Sá sem
lánaði fór í mál fyrir héraðsdómstólum í Celle og krafðist þess að fá sitt aftur.
Dómstóllinn var á annarri skoðun og sagði að fjárhættuspilarinn þyrfti
ekki að greiða skuldina. Rökin eru þau að í Vestur-Þýskalandi er íjár-
hættuspil bannað og sá sem lánar tii slíkrar spilamennsku á engan rétt á að
fá féð til baka.
Á fslandi er fiárhættuspil einnig bannað svo menn skyldu fara varlega í
það að lána spilasjúkum peninga.
Hanagalið varð eigandanum dýrk
Það getur verið dýrt að trufla svefnfrið nágrannanna, sérstaklega ef mað-
ur á heima í Þýskalandi. DómstóU í Frankfurt dæmdi mann nýverið í þunga
sekt fyrir að halda skrauthana og leyfa hananum að valsa að vild sinni
utandyra að nóttu.
Dómurinn hnekkti þar með niðurstöðu héraðsdómstóls sem kveðið hafði
upp úr um að hanagal væri nokkuð sem fóik í sveitabyggðum yrði að lifa með.
Frjálslyndur dómari hættir í hæstarétti
Einn virtasti hæstaréttardómari Bandaríkjanna, Lewis Powoll, tilkynnti
í gær að hann myndi hætta störfum. Powell hefur setið í hæstarétti í 15 ár
og verið talinn frjálslvndur og kreddulaus dómari. Hann er 79 ára og bar
fyrir sig aldri og veikindum þegar hann tilkynnti afsögn sína.
Afsögn Powells gerir Reagan, forseta Bandaríkjanna, mögulegt að setja
enn einn skoðanabróður í hæstaréttinn sem hefur mikið gildi í bandarísku
réttarfari og lagasetningum. Hingað til hefur Reagan sett þrjá dómara í
hæstarétt og allir aðhyllast þeir svipuð viðhorf og hugmyndafræði og forset-
inn.
Bandaríkjaforseti skipar hæstaréttardómara og dómarastaðan er lífstíðar-
embætti.
Frakkar afhenda Spánverjum Baska
Franska lögreglan afhenti í gær spænskum yfirvöldum Baska sem grunað-
ur er um að hafa starfað í hryðjuverkasamtökunum ETA. ETA er aðskilnað-
arhreyfing Baska sem berst fyrir sjálfctæði Baskahéraðs á landamærum
Frakklands og Spánar.
Til akamms tíma áttu Baskar víst hæli í Frakklandi þegar þeir voru á
flótta undan spænskum yfirvöldum. Samkomulag sósíalistanna Mitterrands,
forseta Frakklands, og Gonsalez, fbrsætisráðherra Spánar, batt enda á flótta-
leiðina yfir Frakkland. Á síðasta ári aihentu Frakkar 67 Baska yfir landa-
mærin til Spánar.
Eftir mannskætt sprengjutilræði fyrir tveim vikum í Barcelona á málstað-
ur Baska erfitt uppdráttar á Spáni og Gonsalez forsætisráðherra sór þess
dýran eið að gengið yrði milli bols og höfuðs á ETA.
Samþykkt gegn pyntingum tekur gildi
í gær tók gildi alþjóðleg samþykkt sem hefur það að markmiði að draga
þá sem stunda pyntingar fyrir dóm og veita fómaflömbum þeirra skaðabæt-
ur. Sameinuðu þjóðimar standa fyrir þessari samþykkt og hafa 20 ríki
staðfest samþykktina.
Samþykktin kveður upp úr um að einstaklingar geti ekki firrt sig ábyrgð
á pyntingum með þvi að segjast hafa hlýtt skipunum.
Bakkerhjónin sjálfumglaðir krakkar
Einn af aðalpostulum sjónvarpstrúboðsins í Bandaríkjunum, Pat Roberta-
son, sagði að fyrrum kollegar sínir, hjónin Jim og Tammy Bakker, væru
sjálfiunglaðir krakkar. Hjónin lentu í hneykslisraáli út af framhjáhaldi og
sóun á fé.
DV
Leiðtogi stjómar-
andstöðu handtekinn
Kim Young-Sam, einn helsti leið-
togi stjórnarandstöðunnar í Kóreu,
var handtekinn í Seoul, höfuðborg
landsins, í gær þegar hann og stuðn-
ingsmenn hans voru á leið til mikils
mótmælafundar sem haldinn var í
miðborginni.
Kim átti að ávarpa mannfjöldann
Eftir ósigurinn í þingkosningunum
fyrir tveim vikum er mikil óeining í
ítalska kommúnistflokknum. Flokkn-
um var spáð miklu fylgi í kosningum
og jafnvel talað um að flokkurinn
kæmist í ríkisstjóm í fyrsta sinn í 40
ár. Þess í stað tapaði flokkurinn þrem
prósentum af fylgi sínum.
Ágreiningurinn í kommúnista-
flokknum kom upp á yfirborðið þegar
Allessandro Netta, formaður flokks-
ins, skipaði Occhetto í ritaraembætti
i flokknum. Með þessu er Netta talinn
Fjörutíu og níu manns fórust í gær
þegar farþegaflugvél fórst á afekekktu
svæði í fjalllendi á norðurhluta
Filippseyja.
Talsmaður filippseyska hersins sagði
að vélin væri af gerðinni Hawker
Siddeley 748, sem er skrúfuvél. Um
borð í vélinni voru fjörutíu og fimm
farþegar og fjögurra manna áhöfn.
Flugvélarinnar var saknað þegar
talstöðvarsamband við hana rofnaði,
skömmu áður en hún átti að lenda á
sem saman var kominn við ráðhús
borgarinnar en lögregla handtók
hann fyrir utan skrifstofu hans.
Tugþúsundir stjórnarandstæðinga
söfnuðust saman á mikilvægum stöð-
um í höfuðborg S-Kóreu í gær. Mikill
fjöldi lögreglumanna hafði uppi við-
búnað til þess að koma í veg fyrir
undirbúa að Occetto taki við for-
mennskunni af sér.
Tíu af 28 í forystusveit flokksins
greiddu atkvæði gegn skipun Occetta.
Það er sjaldgæft að slíkur ágreiningur
komi upp í ítalska kommúnistaflokkn-
um sem lengi hefur verið sá stærsti í
Vestur-Evrópu og næststærsti stjóm-
málaflokkur Ítalíu.
Occetto er aðaltalsmaður þeirra sem
vilja gera Kommúnistaflokkinn að
skýrum vinstri kosti við Sósíalista-
flokkinn sem vann á í þingkosningum.
flugvelli við ferðamannastað í bænum
Baguio. Talsmenn flugfélags Filipps-
eyja sögðu að meðal farþega í vélinni
væru margir japanskir ferðamenn og
að þyrlur frá flugherjum Filippseyja
og Bandaríkjanna leituðu nú ákaft að
flaki hennar.
Baguio er í um 2.200 metra hæð yfir
sjávarmáli, í fjallahéruðum þar sem
hæstu tindar em um 3.000 metra háir.
Lítið er af vegum í héraði þessu og
því erfitt um vik að leita vélarinnar.
það sem stjórnvöld sögðu að væru
mótmæli er græfu undan öryggi
landsins.
Umferð um borgina truflaðist veru-
lega og lögreglan skaut hverri
hrinunni af annarri af táragas-
sprengjum á manníjöldann til þess
að reyna að dreifa honum.
I borginni Kwangju, í suðvestur-
hluta landsins, kom til átaka milli
stúdenta og lögreglu. Lögreglan
beitti táragasi á stúdentana sem
svömðu fyrir sig með grjótkasti og
bensínsprengjum.
Vitni sögðu í gær að hundruð öku-
manna hefðu stöðvað bifreiðir sínar
á umferðaræð fyrir austan Seoul til
þess að lýsa samstöðu sinni með
mótmælendum.
Kim Young Sam, sem látinn var
laus að nýju síðar í gær, sagði við
fréttamenn að margir hefðu meiðst,
mikið vegna harkalegra og ofbeldis-
kenndra viðbragða lögreglu við
friðsamlegum kröfufundum þeirra
sem vilja efla lýðræði í landinu.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 10-13 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 12-15 Sb.Úb
6 mán. uppsögn 13-20 lb
12 mán. uppsögn 15-25,5 Sp.vél.
18mán. uppsögn 22-24,5 Bb
Ávísanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar 4-6 Ib.Lb,
Innlán verðtryggð
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb,
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,5-4 Lb.Sb, Úb.Vb Ab.Úb
10-23,9
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 5,75-6,5 Úb.Vb
Sterlingspund 7,5-9 Ab.Vb
Vestur-pýsk mörk 2,5-3,5 Sb.Úb
Danskarkrónur 8,5-10 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 23-24,5 Bb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) 25-26 eða kge
Almennskuldabréf 24-25.5 Bb.Sp.
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Úb Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 24-26 Bb
Utlan verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 6,75-8 Úb
Til lenqri tíma 6,75-8 Úb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 18,5-24 Ab
SDR 7,75-8.25 Bb.Lb,
Bandarikjadalir 8,75-9,25 Úb.Vb Bb.Lb.
Sterlingspund 10-11,5 Sp.Vb Bb.Lb.
Vestur-þýsk mörk 5.25-5,5 Vb Bb.Lb.
Húsnæðislán 3.5 Úb.Vb
Lífeyrissjóðslán 5-6,75
Dráttarvextir 33.6
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júni 1687 stig
Byggingavisitala 305 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. aprll
VERÐBRÉFASJÖÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestim
arfélaginu);
Ávöxtunarbréf 1,1334
Einingabréf 1 2,123
Einingabréf 2 1,260
Einingabréf 3 1,320
Fjölþjóðabréf 1,030
Kjarabréf 2,128
Lífeyrisbréf ' 1,067
Markbréf 1,063
Sjóðsbréf 1 1,044
Sjóðsbréf 2 1,044
Tekjubréf 1,197
HLUTABRÉF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 112 kr
Eimskip 252 kr.
Flugleiðir 173kr. ’
Hampiðjan 114 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 113 kr.
Iðnaöarbankinn 134 kr.
Skagstrendingur hf. 350 kr.
Verslunarbankinn 116 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 150 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge, Búnaðarbanki kaupir viðskiptavíxla
gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25% og
nokkrir sparisj. 26%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn
birtast í DV á fimmtudögum.
Kim Young-Sam, einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar, tekinn höndum í Seo-
ul í gær. Simamynd Reuter
Arabí skotinn í Róm
Arabi með alsfrskt vegabréf var
skotinn á götum Rómar í gær. Yfir-
völd á Ítalíu telja að tilræðið hafi
verið unnið af tveim Líbýumönnum
sem handteknir voru nærri morð-
stað.
Þótt fómarlambið hafi verið með
alsírskt vegabréf er ekki loku fyrir
það skotið að maðurinn sé frá Líbýu
og vegabréfið falskt.
Undanfarin misseri hefur komið
til átaka og tilræða á milli and-
stæðra fylkinga Líbýumanna í Róm.
Lögreglan telur að morðið í gær
hafi verið dæmi um það. Annars
vegar em það andstæðingar Gaddaf-
is, leiðtoga Líbýu, og hins vegar
málsvarar hans sem elda grátt silfur
í Róm.
Arabinn var skotinn mörgum skot-
um í bakið og höfuðið.
Óeining ítalskra
kommúnista
Fjörutíu og níu
fórust í flugslysi